Fréttablaðið - 27.06.2004, Síða 17
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 72 stk.
Keypt & selt 12 stk.
Þjónusta 21 stk.
Heilsa 4 stk.
Heimilið 8 stk.
Tómstundir & ferðir 7 stk.
Húsnæði 23 stk.
Atvinna 7 stk.
Tilkynningar 2 stk.
Ertu 9-5 manneskja?
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er sunnudagurinn 27. júní,
179. dagur ársins 2004.
Reykjavík 2.59 13.31 24.02
Akureyri 1.43 13.16 20.45
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Þú færð líka
allt sem þig vantar á
Svínasúpan er eitt vinsælasta innlenda
sjónvarpsefni sem sýnt hefur verið á skján-
um í langan tíma og er það meðal annars
Þrándi Jenssyni, einum af handritshöfund-
unum, að þakka. Hann er bullandi
húmoristi sem kemur fyndninni frá sér
með pennann að vopni.
Sveppi bar nokkra sketsa eftir æskuvin
sinn Þránd undir Sigurjón Kjartansson,
sem var að svipast um eftir fleiri handrits-
höfundum að fyrstu Svínasúpunni. Þá fóru
hjólin að snúast og Þrándur var tekinn inn í
hlýjuna. „Ég hef mjög gaman af því að
skrifa og það var sérstaklega skemmtilegt
að vinna seinni seríuna. Þá skiptumst við á
að skrifa saman, köstuðum hugmyndunum
á milli okkar og fyrir vikið varð húmorinn
fjölbreyttari.“
Nú standa yfir upptökur á annarri um-
ferð Svínasúpunnar en Þrándur gefur ekk-
ert upp um innihald þáttanna.
„Vinahópurinn minn er mjög fyndinn
sem eflir mann óneitanlega í að skrifa góða
sketsa. Við erum allir að keppast um að
vera fyndnastir og samkeppnin er mjög
hörð,“ segir Þrándur og viðurkennir að
vera dálítið „steiktur“. Auk þess að hrista
upp í þjóðinni með Svínasúpunni hefur
hann unnið sem rafvirki undanfarin sex ár.
„Ég ákvað að gerast rafvirki því það er fínt
að hafa iðngrein að stökkva í. Stúdentspróf
dugar lítið ef maður vill starfa sem hand-
ritshöfundur og það er hæpið að fara í
framhaldsnám í kvikmyndahandritsgerð
þegar maður er búsettur á Íslandi.“
Þrándur lauk Kvikmyndaskóla Íslands
þar sem hann lærði handritsgerð en hann
sigraði stuttmyndakeppni Reykjavíkur fyr-
ir fáeinum árum. Í dag eyðir hann stórum
hluta frítíma síns í skriftir. „Ég á orðið heil-
an helling af handritum og vonast til að
Kvikmyndasjóður styrki eitthvert þeirra í
framtíðinni. Ég er alltaf að punkta niður
brandara eða eitthvað fyndið sem gerist í
kringum mig og tek svo skorpur í skrifun-
um. Í bílnum og á náttborðinu mínu eru litl-
ar bækur sem ég skrifa í þegar mér dettur
eitthvað í hug. Hugmyndirnar nota ég til
dæmis í grínþáttaröð sem ég er búinn að
vera að skrifa lengi.“ Þrándur hefur óbil-
andi áhuga á öllu sem er fyndið og segist
vinna í grínþáttunum til að hvetja sig áfram
í að skrifa. Nú er hann með mörg járn í eld-
inum og hyggst ljúka við kvikmyndahand-
rit í fullri lengd áður en langt um líður.
thorat@frettabladid.is
Starfið mitt:
Súpa og steik
atvinna@frettabladid.is
Ný könnun hef-
ur leitt í ljós að
meira en helm-
ingur upplýsinga
sem koma fram á
starfsferilsskrá
umsækjenda eru
hagræðingar á
sannleikanum
eða beinlínis lygar. Könnunin
var gerð af starfshóp sem
kannar öryggi á vinnustöðum í
Bandaríkjunum. Könnunin sýnir
að 56 prósent umsókna inni-
halda óútskýranleg göt eða
fölsuð réttindi. Þessi prósentu-
tala hefur hækkað um fimmtán
prósent síðan árið 2001. Konur
á þrítugsaldri og karlar á
fertugsaldri voru stærsti
hluti þeirra sem falsað
höfðu starfsferilsskrárn-
ar sínar, eða 65 prósent.
Könnunin var unnin úr
2.700 umsóknum með
samþykki umsækjenda.
Menntun umsækjenda var
könnuð ásamt því að hringt var
í fyrrum vinnuveitendur.
Fjöldi þeirra sem sækja um
atvinnuleysisbætur
í Bandaríkjunum
um þessar mundir
hefur aukist mun
meira en búist var
við. Í síðustu viku
sóttu 13.000
manns um at-
vinnuleysisbætur
en hagfræðingar töldu að sá
fjöldi yrði aðeins 4000.
Efnahagsástand í Japan er
aldeilis að ná sér á strik. Nú
eru mun fleiri fyrirtæki sem bú-
ast við miklum hagnaði og
vinnuskilyrði hafa batnað mikið
á þessu ári samkvæmt gögnum
frá yfirvöldum.
Ný könnun hefur
einnig leitt í ljós
að meirihluti fyr-
irtækja hafa ekki
nóg af starfsfólki.
Önnur könnun
verður unnin af
japönskum banka í næstu viku
og fróðir menn segja að hún
komi til með að sýna sterkar
tölur og mikið góðæri í Japan.
Þrándur Jensson er einn af handritshöfundum Svína-
súpunnar. Hann er líka rafvirki.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í ATVINNU
Honda VT 1100 Shadow C3 ‘98. Glæsi-
legt hjól í mjög góðu ástandi. Uppl. í s.
895 4152.
Landsins mesta úrval af bátum, utan-
borðsmótorum og bátavörum. Vélasal-
an ehf. Ánanaustum 1. S. 580 5300.
www.velasalan.is A.t.h. Sumaropnunar-
tími til kl. 18.00.
Óskum eftir smiðum, járnamönnum,
múrurum og vönum byggingaverka-
mönnum. Upplýsingar gefur Bjarni í
síma 660 8775 Einnig er hægt að
senda tölvupóst á ev@ev.is
Til sölu Dodge Ram 3500 árg. ‘96, ek.
155 þ. mílur, dráttarstóll, vsk bíll. Uppl.
í síma 865 1891.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.