Fréttablaðið - 27.06.2004, Síða 39
ÞRIÐJUDAGUR 27. júní 2004
Er fjölskylda flín
ein af fleim?
37 erlendir skiptinemar
koma til Íslands í ágúst n.k.
fieir bí›a spenntir eftir
a› heyra frá íslensku
fósturfjölskyldunum sínum.
Ef svo er gefst ykkur færi
á a› taka á móti erlendum
skiptinema næstu 5–10 mánu›i.
Vilji› fli› kynnast
... n‡jum vi›horfum?
... framandi menningu?
... n‡rri s‡n á land og fljó›?
Tónleikar Sir Paul McCartney sem
voru haldnir á torgi skammt frá
Vetrarhöllinni í St Pétursborg í
Rússlandi ollu skemmdum á verð-
mætum listaverkum Hermitage-
safnsins.
Að sögn Mikhail Piotrovski safn-
varðar er það algjörlega óásættan-
legt að halda tónleika svo nálægt
safninu vegna titringsins sem skaði
málverkin. „Eitthvað verður að
gera til þess að svona tónleikar
verði ekki haldnir aftur,“ sagði
Piotrovski. „Við undirbjuggum okk-
ur fyrir tónleikana eins og við ger-
um fyrir flóð,“ bætti hann við. „All-
ar deildir safnsins voru í viðbragðs-
stöðu.“ Að sögn Piotrovski var titr-
ingurinn frá tónleikunum mun
meiri en af völdum flugvéla sem
fljúga yfir safnið.
Um 60 þúsund manns komu á
tónleikana, sem voru þeir fyrstu
sem McCartney hélt í St Pétursborg
og jafnframt hans 3000. á ferlinum.
Bítillinn fyrrverandi spilar næst á
Glastonbury-tónleikahátíðinni í
Bretlandi ásamt hljómsveitum á
borð við Oasis og Muse. ■
PAUL MCCARTNEY
Bítillinn fyrrverandi er ekki hátt skrifaður
hjá Mikhali Piotrovski, safnverði í
St Pétursborg.
■ TÓNLIST
Tónleikar McCartney ollu
skemmdum
Vill fyndna hávaxna
menn með gott hjarta
Rómantíska gamanmyndin Sudden-
ly 30, með Jennifer Garner úr sjón-
varpsþáttunum Alias í aðalhlut-
verki, er komin í kvikmyndahús
hérlendis.
Myndin byrjar árið 1987 þegar
Jenna er 13 ára óvinsæl tánings-
stúlka í skólanum sínum. Strákur-
inn sem hún er skotin í veit varla af
henni og hún heldur partí sem fer
úrskeiðis þegar krakkarnir læsa
hana inni í eigin fataskáp. Þar óskar
hún þess að vera orðin fullorðin og
vaknar svo daginn eftir í líkama
þrítugrar konu sem er leikin af
Garner. Auk þess að leika í hinum
vinsælu þáttum Alias hefur Garner
reynt sífellt meira fyrir sér á hvíta
tjaldinu. Meðal annars hefur hún
leikið kvenskörunginn Elektru í
hasarmyndinni Daredevil sem naut
töluverðra vinsælda.
Jennifer segist ekki sakna þess
að vera 13 ára. „En mér finnst ég
hafa tekið allt það góða frá þeim
aldri með mér,“ segir hún. „Ég á í
góðum tengslum við mína innri 13
ára stúlku.
Hvaða skapgerðareinkenni 13
ára stúlku hefur þú geymt innra
með þér?
„Ég hef geymt mikið af sakleys-
inu og allri gleðinni og hrifningunni.
Ég er frekar hamingjusöm og bjart-
sýn og það var ég líka þegar ég var
13 ára.“
Varstu vinsæl í skóla?
„Nei, ég var ekki ein af þessum
vinsælu svölu stelpum. Það tóku
ekki margir eftir mér. Ég var mjög
hljóðlát og eyddi allri minni orku í
ballettnám og tónlistariðkun. Þessir
hlutir voru ekki svalir á þeim tíma.“
Ef þú gætir farið aftur í tímann
hverju myndir þú breyta?
„Ég veit það ekki. Þetta er erfið
spurning. Ég er viss um að það eru
mörg lítil atriði sem ég væri til í að
breyta og það eru atvik sem ég vildi
að hefðu ekki gerst. En á sama tíma
hugsarðu með þér, og þar er ég sam-
mála móður Jennu í kvikmyndinni,
að þú ert sá sem þú ert vegna þess
sem þú hefur gengið í gegnum. Ég
hugsa líka þannig: Allt í lagi, svona
er lífið mitt. Hvernig get ég notað
reynslu mína til að bæta mig sem
einstakling?“
Þú þarft að vera í góðu líkams-
ástandi vegna þáttanna Alias.
Hvernig heldurðu þér í formi?
„Ég æfi mig í eina klukkustund á
dag og stundum geng ég bara.
Stundum hleyp ég með lóð eða
stunda jóga, það er bara mjög mis-
jafnt. En það er bara ein klukku-
stund í senn, fimm sinnum í viku.“
Hvernig karlmenn heilla þig?
„Góðhjartaðir menn með gott
skopskyn. Það er heldur ekki verra
ef þeir eru hávaxnir,“ segir Jenni-
fer að lokum.
Myndin Suddenly 30 heitir 13
Going on 30 í Bandaríkjunum og er
sýnd í Smárabíó og Regnboganum. ■
JENNIFER GARNER
Leikur 13 ára stúlku sem er föst í líkama
þrítugrar konu í myndinni Suddenly 30.