Fréttablaðið - 23.07.2004, Qupperneq 40
FÖSTUDAGUR 23. júlí 2004
Rússneska skáldið Isaac Asimov
hafði velt afleiðingum gervi-
greindar fyrir sér löngu áður en
Arnold Schwarzenegger setti upp
sólgleraugun í fyrstu Terminator-
myndinni. I, Robot var sú fyrsta í
fimm bóka seríu sem fjallaði um
það þegar vélmenni vakna til vit-
undar og gera uppreisn gegn
skapara sínum, öllu mannkyninu.
Fyrsta bókin, sem heitir sama
nafni og myndin en er ekki mikið
skyld henni hvað söguþráð varð-
ar, var skrifuð snemma á fimmta
áratugnum og var safn smásagna
sem allar tengdust á þann hátt að
fjallað var um samband vél-
menna og manna.
Saga kvikmyndarinnar gerist
árið 2035 þegar vélmenni sjá um
að þjóna mannkyninu í einu og
öllu. Lögregluforinginn Del
Spooner (Will Smith) rannsakar
morð og svo virðist sem vélmaður
sé flæktur inn í það. Spooner er
bölsýnismaður á tækniframfarir
mannkynsins og treystir ekki vél-
mönnunum. Starfsmenn fyrir-
tækisins, USA Robotics, þar sem
morðið var framið fullyrða að
enginn vélmaður geti skaðað
manneskju, þar sem það sé gegn
forritun þeirra. Spooner óttast að
ef vélmaður getur brotið þessa
reglu, þá sé ekkert til þess að
stöðva vélmennin, til þess að yfir-
taka allan heiminn.
Spooner fær vélmannasál-
fræðinginn dr. Susan Calvin í lið
með sér, sem hefur rannsakað
hegðunarmynstur vélmanna.
Saman óttast þau að mannkynið
sé orðið háð vélmönnunum sem
gefi þeim yfirhöndina komi til
stríðs. Auðvitað fer svo allt í bál
og brand og ótti Spooner reynist á
rökum reistur. Mannkynið er allt
í hættu.
Hugmynd Asimov hefur verið
nýtt í margar myndir og teikni-
myndir. Hver man ekki eftir svip-
uðum söguþræði í gömlu frönsku
teiknimyndunum Sú kemur tíð í
ríkissjónvarpinu fyrir um tuttugu
árum síðan? Og af einhverjum
ástæðum líta öll vélmennin í
myndinni út eins og Björk gerði í
myndbandi sínu All is Full of
Love. Þar voru þau þó öllu vina-
legri. ■
■ FRUMSÝND Í DAG
Innrás vélmannanna
I, ROBOT
Will Smith grunar að það sé maðkur í rafgeyminum hjá vélmönnunum.
Leikarinn Bruce Willis og leik-
stjórinn John McTiernan ætla að
gera fjórðu myndina um lögguna
John McClane og ævintýri hans í
Die Hard.
McTiernan ætti ekki að vera
ókunnugur verkefninu því hann
leikstýrði fyrstu Die Hard mynd-
inni og þeirri þriðju. Finninn
Renny Harlin gerði hins vegar
aðra myndina. Handritshöfundar
verða Doug Richardsson, sem
skrifaði síðustu mynd Willis,
Hostage, og Marc Bomback, sem
skrifaði handritið að Godsend.
Tökur hefjast næsta sumar en
myndin hefur enn ekki fengið
nafn. ■
Die Hard 4 á leiðinni
BRUCE WILLIS
Willis í hlutverki John McClane, sem ekki hefur enn sungið sitt síðasta í baráttunni við
vondu karlana.
Jerry
Goldsmith
látinn
Óskarsverðlaunahafinn og tón-
skáldið Jerry Goldsmith er
látinn, 75 ára að aldri. Goldsmith
var afar virtur í Hollywood og
samdi kvikmyndatónlist við fjöl-
margar stórmyndir.
Á meðal þeirra frægustu eru
Planet of the Apes, L.A. Con-
fidential, Chinatown, Mulan og
The Omen sem hann vann Óskar-
inn fyrir. Hann samdi einnig tón-
listina við sjónvarpsþættina Star
Trek. Goldsmith var alls tilnefnd-
ur til sautján Óskarsverðlauna á
farsælum ferli sínum. ■
JERRY GOLDSMITH
Goldsmith árið 1999 þegar hann var
heiðraður fyrir framlag sitt til tónlistarinnar.
38-39 (30-31) Bíó 22.7.2004 17:56 Page 3