Tíminn - 24.02.1973, Qupperneq 25
Laugardagur 24. febr. 1973.
TÍMINN
25
HVER VILL VERÐA
FANGELSISSTJÓRI?
Auglýst eftir manni, sem vill læra fangelsisstjórn
ÞÓ, Reykjavik — Nú á aö senda
islending i fyrsta skipti utan til
aö læra fangelsisstjórn, og hefur
dóms- og kirkjumálaráðuneytiö
þegar auglýst eftir umsækjend-
um, sem síðan verður valið úr.
Ætlazt er til að umsækjendur hafi
háskóla menntun. Þegar við-
komandi hefur lokið námi er-
lendis má búast við að hann verði
gerður að fangelsisstjóra á Litla
Hrauni, þar sem eflaust læiða enn
nokkur ár þangað til nýja rikis-
fangelsið, sein á að byggja nærri
Reykjavik, verður risið.
Baldur Möller, ráðuneytisstjóri
sagði i viðtali við blaðið i gær, að
það væri gömul hugmynd að
senda mann út til að sérmennta
i fangelsisstjórn, enda væri
þetta augljós nauðsyn. Hitt væri
svo annað mál, að ekki hefði
komizt skriður á þetta mál fyrr en
nú siðustu mánuðina.
Hann sagði, að fram til þessa
hefðu menn á íslandi ekki verið
undiirbúnir til fangelsisstjórnar,
menn hefðu aðeins verið teknir
eftir þvi, sem þeir hefðu boðizt.
Þvi hefðu starfsmenn dómsmála-
ráðuneytisins heitið sér nú, að
ráða sérmenntaðan mann.
Ennfremur sagði Baldur, að
ekki væri ákveðið til hvaða lands
viðkomandi sækti menntun sina,
en að öllum likindum yrði það til
Norðurlandanna eða Bretlands,
og færi það að einhverju leyti eftir
óskum umsækjanda. Ekki væri
ákveðið enn við hvaða fangelsi
maðurinn yrði ráðinn, það yrði
annað hvort við Litla-Hraun eða
rikisfangelsið, sem fyrirhugað er
að byggja. Þó má frekar reikna
með að maðurinn verði ráðinn i
fyrstu viðLitla-Hraun, enda mun
fangelsisstjórinn þarbráttláta af
störfum fyrir aldurssakir.
Vestmannaeyjasöfnunin:
FRAAALAG USTAMANN
ANNA YFIR 500 ÞÚS. KR.
FRAMLAG myndlistarmanna til
V’estmannaey jasöfnunarinnar
verður ekki undir hálfri millj. kr.
Endalegt uppgjör liggur ekki
fyrir og eru jafnvel likur til að
tekjur af sölu listavcrka og happ-
drættism iöa reynist talsvert
liærri.
Sem kunnugt er efndi Félag
islenzkra myndlistarmanna og
Listasafn Islands til sölusýningar
á listaverkum og gáfu 40 lista-
menn um 80 verk á sýninguna. Sá
háttur var hafður á um söluna, að
lágmarksverð var á myndunum,
en væntanlegir kaupendur gátu
siðan boðið i þær og var hver
mynd seld hæstbjóðanda.
Helmingur myndanna á
sýningunni seldist og komu mörg
boð i margar þeirra. t sumar
myndanna voru allt að 12 mis-
munandi boð. Þá var happdrætti i
sambandi við sýninguna og var
dnegið þar um fjórar myndir.
Dregið verður i happdrættinu i
næstu viku. Valtýr Pétursson,
formaður Félags isl. myndlistar-
manna, sagði i gær, að happ-
drættið verði ekki gert upp fyrr en
um það ieyti sem dráttur fer
fram. Er þvi ekki hægt að segja
með vissu hve tekjur af
sýningunni verða miklar enn sem
komiö er. Einnig seldist nokkuð
af veggspjöldum, sem Kristján
Daviðsson gerði og rennur ágóði
af þeirri sölu einnig til Vest-
mannaeyjasöfnunarinnar.
Ágætaðsókn var að sýningunni,
t.d. komu um 1400 manns fyrri
helgina sem hún var opin.
Þeim myndum sem ekki
seldust á sýningunni verður
skilað til gefendanna aftur. OÓ.
SOFNUN I FULLUM GANGI
í SVÍÞJÓÐ
SKÖMMU eftir að Vestmanna-
eyjagosið hófst, gekkst Fyns
Amts Avis fyrir fjársöfnun til
hjálpar tslendingum i samvinnu
við fslenzka ræðismanninn i
Svendborg, H.I. Ilansen for-
stjóra. „íslendingar hafa ekki
gengið manna á mcðal og beðið
um hjálp”, sagði hlaðið, er það
hóf fjársöfnunina, ,,en þessar
náttúruhamfarir eru svo geig-
vænlegar og afleiðingar þeirra
fyrirsjáanlega svo miklar, að það
er ekki aðeins þessi eini kaup-
staður, sem beðið hefur afhroð,
heldur öll isienzká þjóðin”.
„Með aðdáun höfum við hlustað
á fregnir af æðruleysi og hugarró
Islendinga, er þeir horfast i augu
við það, er ekki verður spornað
gegn, og geiglaus þrautseigja
verkanaannanna, sem snúa aftur
til fiskvinnslustöðvanna i háska-
legu nágrenni við glóandi
hraunið, er vellur úr eldfjallinu,
vekur hrifningu.
Einmitt þetta að þessi hug-
rakka bræðraþjóð okkar skuli á
slikri stundu ekki biðja neinn
neins, hefur orðið mjög mörgum
hvöt til þess að bjóða fram lið-
veizlu, og það gildir ekki sizt i
Svendborg, þar sem tengslin við
Island eru miklu meiri en flestir
gera sér grein fyrir i fljótu
bragði.
Höfnin i Svendborg stendur og
fellur með viðskiptunum við
Island — innflutningi og út-
flutningi. Meginhluti allra vöru-
skipta Dana og íslendinga fer um
böfnina i Svendborg, og þaðan
kom lika frumkvæðið að þessari
fjársöfnun. Það var islenzki
ræðismaðurinn, H.I. Hansen for-
stjóri, sem bar fram uppá-
stunguna og lagði sjálfur á borðið
fimmtiu þúsund krónur danskar,
en A.E. Sörensen, forstjóri eins
skipafélagsins, jók þegar við
fimm þúsund krónum”.
Þegar söfnunin hafði staðið um
hrið, birti þetta sama blað grein
um mikilvægi Islandsvið-
skiptanna fyrir Svendborg. Þrir
fjórðu hlutar allrar vöru, sem þar
er fermd eða affermd, er tengd
þeim. Þetta er ýmist vara, sem
Danir kaupa af Islendingum eða
Islendingar af Dönum, eða þá
varningur, sem þar er umskipað
á leið til Islands eða frá Islandi.
„Þannig er Svendborg hin
islenzka viðskiptahöfn' i Dan-
mörku”, segir blaðið.
Þaðan kemur mjög mikið af
fóðurvöru, sem Samband
islenzkra samvinnufélaga kaupir,
og eru þau viðskipti raunar
grundvöllur þess, hve mikil
tengsl eru á milli Islands og
Svendborgar. Þær vikur eru fáar,
sem ekkert af skipum Sambands
islenzkra samvinnufélaga hefur
viðkomu i Svendborg. Helgafell,
Arnarfell, Hvassafell, Mælifell,
Skaftafell og Disarfell eru skips-
heiti, sem þar koma kunnuglega-
fyrir sjónir. Það eru einmitt þessi
skip, sem tryggja hafnarverka-
mönnunum i Svendborg fulla
vinnu, auk allra annarra gagns-
muna, sem Fjónbúar hafa af við-
skiptunum við Islendinga.
— Það yrði Svendborg mikill
hnekkir, ef við misstum af
Islandsviðskiptunum, segir H.I.
Hansen, islenzki ræðismaðurinn.
Þá sortnaði i álinn hjá okkur. Nú
hefur sortnað i álinn hjá
Islendingum vegna eldgossins i
Vestmannaeyjum, og það var
mérmikil ánægja að geta farið til
fyrirtækis mins og fengið heimild
til þess að leggja fimmtiu þúsund
krónur danskar i söfnunina hjá
Fyns Amts Avis. Ég geri mér
miklar vonir um, að þessi söfnun
beri mikinn ávöxt, þvi að ég finn
glöggt hug fólks. Það ætti að
stuðla að góðum árangri, að þessi
liðveizla er utan og ofan við allt
stjórnmálaþref, auk þess sem
fiestir bera vinarhug til bræðra-
þjóðarinnar i úthafinu og dást að
þreki þessa stolta fólks andspænis
þungu áfalli. Við hefðum lika
kinokað okkur við að biðja
tslendinga um hjálp, ef eitthvað
áþekkt hefði dunið yfir okkur. Og
nú erum það við, sem fáum tæki-
færi til þess að hjálpa vinum, sem
eiga i vök að verjast, sagði ræðis-
maðurinn. —JH.
Vestri fermdur
saltflskl
ÞÓ, Reykjavik— Flutningaskipið
Vestri kom til Vestmannaeyja i
gærmorgun og var fermdur salt-
fiski. Atti skipið að taka allan
þann saltfisk, sem eftir var i Eyj-
um, en i gærkvöldi var talið, að
fiskurinn kæmist ekki allur um
borð i skipið. Vestri fór frá Vest-
mannaeyjum i gærkvöldi.
Saltfiskurinn, sem Vestri tók,
var uppháflega geymdur i þurrk-
FULLORÐIN kona slasaðist i
hörðum bilaárekstri i gærmorg-
un. Meiddist hún á höfði og viðar,
en ekki var búið að kanna meiðsl
hennar til fulls i gær, en hún ligg-
ur á Borgarspitalanum.
Slysið varð kl. 8,30. Cortinubil
var ekið vestur Skúlagötu og
í Eyjum
húsinu á Uröunum, en þegar
hraunið tók að siga i átt að hús-
inu, var fiskurinn fluttur yfir i
Vinnslustöðina.
Skafbylur af norðvestri var i
Vestmannaeyjum i gær. Um tima
snjóaði þó nokkuð, og þegar litið
er yfir bæinn, virðast gjallhaug-
arnir aðeins vera saklausir snjó-
skaflar.
árekstri
beygði til vinstri i átt að Baróns-
stig i veg fyrir Morris sendiferða-
bil, sem var á leið austur Skúla-
götu. Bilarnir skemmdust báðir
mikið, sérstaklega Cortinan.
Kona sem sat i framsæti sendi-
ferðabilsins kastaðist fram og
slasaðist illa. OÓ
fci /^SINNUI
LENGRI LÝSIN
n
neOex
2500 klukkustunda lýsing
við eðlilegar aðstæður
(Einu venjulegu perurnar
tramleiddar fyrir svo
langan lýsingartima)
NORSK ÚRVALS
HÖNNUN
Heildsala Smásala
Einar Farestveit & Co Hf
Bcrgstaðastr. 10A Simi 16995
Flogið livern
laugardag
Verð (Cairo)
frá kr. 26.347
liýður yður i ógleynianlega‘
ferð til Nilar. Þar dveljist
þér meðal ævaloriira forn-
uiinja
og liinna lieimsfrægu pýra-
m ida.
Ilalið samband við ferða-
skrifsiofu yðar.
EGVPTfllR
Unitcd Arab Airlines
Jernbanegade 5, I)K 1608,
Köbenhavn V, Tlf.
(01I128746
IfRÍMERKI — MYNT
Kaup — *ala
Skrifið eftir ókeypis|
vörulista.
Frí m erkj amiðstöðin
Skólavörðustíg 21 A|
Reykjavík
VELJUM ÍSLENZKT~/W^
ÍSLENZKAN IÐNAT
Menntamálaráðuneytiö
Kynningarfundir
um frumvörp til laga um grunnskóla og
skólakerfi verða sem hér segir:
1. Aö Leikskálum, Vik i Mýrdal, sunnudaginn 25.
febrúar, kl. 15.00-
2. 1 Sclfossbiói mánudaginn 26. febrúar, kl. 20.30.
Framsögumaður á fundunum verður
Birgir Thorlacius
wsmmm
Leikfimikennarar
Sökum veikindaforfalla vantar leikfimi-
kennara nú þegar að barnaskóla og gagn-
fræðaskóla Garðahrepps.
Upplýsingar gefa skólastjórar i simum
42193 og 42756.
Skólanefnd.
Árshátíð
Átthagasamfaka
Héraðsmanna
verður haldin á Hótel Loftleiðum
(Vikingasalnum) föstudaginn 2. marz og
hefst með borðhaldi kl. 19.
Aðgöngumiðar verða seldir i Bókv. Sigfúsar Eymunds-
sonar i Austurstræti, laugardaginn 24. febr. mánudaginn
26. og þriðjudaginn 27. Miðarnir verða einnig seldir sömu
daga i söluturninum á Barnónsstig 27 (simi 1 46 33) og auk
þess einnig þar á sunnudaginn 25. febr. Verð kr. 800.00.
A sömu stöðum fást einnig miðar, er gilda að dansleik, er
hefst að afloknu borðhaldi, væntanlega um kl. 22.30. Verö
kr. 300.00.Salnum verður lokað kl. 23.30.
öllum Héraðsbúum, sem staddir kunna að
vera i bænum, er heimil þátttaka.
Stjórnin.