Fréttablaðið - 17.08.2004, Blaðsíða 12
17. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR
flugfelag.is
kr.
kr.
EGILSSTAÐA
5.000
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
ÍSAFJARÐAR
5.000kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
5.000 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
18. - 24. ágúst
Börn, 2ja–12 ára, í fylgd með fullorðnum,
greiða 1.833 kr. aðra leiðina.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
F
LU
2
55
47
08
/2
00
4
VOPNAFJARÐAR/
ÞÓRSHAFNAR
5.000
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
Valið á milli 60 geðræktarverkefna hvaðanæva að í heiminum:
Íslenska verkefnið best
HEILBRIGÐISMÁL Geðrækt, verkefni
Landlæknisembættisins, Geðhjálp-
ar, Landspítala - háskólasjúkrahúss
og Heilsugæslunnar í Reykjavík,
hefur hlotið sérstaka útnefningu Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinn-
ar (WHO) í Genf og Alþjóðageðheil-
brigðissamtakanna (WFMH) sem
fyrirmyndarverkefni á sviði geð-
ræktar.
Viðurkenningin verður veitt í
tengslum við alþjóðlega útgáfu bók-
ar á vegum ofangreindra samtaka
um fyrirmyndarverkefni í geðrækt
á alþjóðlegri ráðstefnu um geðrækt
í Auckland á Nýja-Sjálandi. Þar eru
kynnt 35 geðræktarverkefni
hvaðanæva að úr heiminum. Verk-
efnin 35 voru valin úr hópi 60 verk-
efna sem bárust og voru 5 verkefni
útnefnd sérstaklega. Eitt þeirra,
Geðrækt, kom best út og hlaut
hæstu einkunn bæði hvað varðar
framkvæmd og hugmyndafræði.
Geðrækt var hrundið úr vör árið
2000 þegar Geðhjálp, Landlæknis-
embættið og Landspítali - háskóla-
sjúkrahús í samvinnu við fyrirtæk-
in Actavis, Eimskip, Landsbankann,
Skeljung og Íslenska erfðagrein-
ingu, ásamt heilbrigðisráðuneytinu
og Háskóla Íslands, tóku höndum
saman um rekstur þess. Síðar bætt-
ist Heilsugæslan í Reykjavík við. ■
Kapphlaupið
mikla á Íslandi
Keppendur raunveruleikasjónvarpsþáttarins Amazing Race komu til
Íslands um helgina. Keppendurnir gistu á Svartsengi við Bláa lónið.
Einn hópur var dæmdur úr leik í fyrrakvöld.
SJÓNVARP Raunveruleikasjón-
varpsþátturinn Kapphlaupið
mikla, Amazing Race, teygði sig
hingað til lands um helgina. Kepp-
endur þáttarins ferðast um allan
heim en þeir sem síðastir eru í
mark á hverjum stað eru dæmdir
úr leik.
Tólf lið keppenda komu til
landsins á sunnudagsmorgun en
eitt liðanna var dæmt úr leik áður
en haldið var af landi brott um há-
degisbil í gær að sögn Atla Más
Gylfasonar, ljósmyndara Víkur-
frétta, sem fylgdi hópnum eftir.
Slegið var upp búðum fyrir
keppendurna á Svartsengi, við
Bláa lónið, þar sem kveikt hafði
verið á kyndlum við komu kepp-
enda á endastöð í fyrrakvöld að
sögn Atla Más.
Keppni hófst á ný eldsnemma í
gærmorgun að sögn Atla þegar
keppendur héldu áleiðis til
Reykjavíkur, fyrir utan einn hóp
sem villtist til Reykjanesbæjar.
Allir hóparnir náðu þó sömu flug-
vél til Kaupmannahafnar laust
eftir klukkan eitt í gærdag. För-
inni var þaðan heitið til Óslóar þar
sem keppnin heldur áfram.
„Það var góð stemning í hópn-
um þrátt fyrir mikið stress,“ seg-
ir Ásborg Guðmundsdóttir, sölu-
maður Icelandair á Keflavíkur-
flugvelli, sem afgreiddi hópana
ellefu um flug frá landinu. „Þetta
var mikill hasar.“
helgat@frettabladid.is
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ
Geðræktarverkefni landlæknisembættisins
og fleiri aðila hlaut hæstu einkunn bæði
hvað varðar framkvæmd og hugmynda-
fræði.
REYNT AÐ RATA Í HRAUNINU
Í sjónvarpsþættinum Amazing Race ferðast nokkur lið um allan heim og keppast við að verða fyrst í mark. Upptökur sjöttu þáttaraðarinn-
ar teygðu sig til Íslands um helgina en það er líklega fyrsti viðkomustaður þáttaraðarinnar.
RÉTTA LEIÐIN
Rétta leiðin var merkt fyrir keppendur en þeir fóru meðal annars að Seljalandsfossi á
sunnudag að sögn Atla Más Gylfasonar, ljósmyndara Víkurfrétta.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
ÍK
U
R
FR
ÉT
TI
R/
AT
LI
M
ÁR
G
YL
FA
SO
N