Fréttablaðið - 17.08.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
ÞRIÐJUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BJART OG FALLEGT VEÐUR á
Norður- og Austurlandi, en skýjað með
köflum annarstaðar. Yfirleitt þurrt og
bærilega hlýtt. Sjá nánar á bls. 6.
17. ágúst 2004 – 222. tölublað – 4. árgangur
ENGAR TRYGGINGAR Þúsundir hús-
eigenda eiga og bera ábyrgð á heimlögn-
um að húsum sínum. Fólk hefur orðið fyrir
verulegu tjóni af völdum vatns við bilun
þeirra. Tryggingafélögin tryggja ekki tjón af
þeim sökum þar sem lagnirnar eru utan út-
veggja. Fjölmargir með „tifandi tíma-
sprengju“ við hús sín. Sjá síðu 2
HERMENN KALLAÐIR HEIM
Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær um
brotthvarf tugþúsunda bandarískra her-
manna á erlendri grund. Breytingarnar
koma til framkvæmda á árunum 2006 til
2011. Fjölgað verður í herstöðvum í Austur-
Evrópu. Sjá síðu 4
HAGNAÐUR HJÁ FLUGLEIÐUM
Flugleiðir skiluðu tæplega 900 milljóna
króna betri afkomu á fyrri hluta ársins mið-
að við sama tíma í fyrra. Eldsneyti hefur
hækkað í verði og samkeppnin aukist. For-
stjóri Flugleiða segir afkomuna til marks
um styrk félagsins. Sjá síðu 6
Friðrik Ómar Hjörleifsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Of þungur
í tólf ár
● heilsa
36%50%
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
STOKKHÓLMUR, AP Ríkisstjórn Sví-
þjóðar hefur lagt til að áfengis-
skattar verði lækkaðir um 40 pró-
sent til að sporna við að fólk fari
utan til áfengiskaupa. Áfengis-
verð er hátt í Svíþjóð og er al-
gengt að fólk fari til Danmerkur,
Finnlands eða Eistlands til að
kaupa vín.
Sænsk yfirvöld leggja 1880 ís-
lenskar krónur á hvern lítra af
sterku áfengi. Ef sænska þingið
samþykkir tillögu ríkisstjórnar-
innar í haust lækkar álagningin
niður í 1129 krónur á hvern lítra
og smásöluverð mun lækka að
jafnaði um 30 prósent. Sænsk
yfirvöld gera ráð fyrir að lækkun-
in muni minnka innflutning á
áfengi um fimmtán prósent á
næsta ári.
Mun lægri álagning er á létt-
víni og bjór. Á hvern lítra af bjór
leggur ríkið 69 íslenskar krónur
en 207 krónur á léttvín. Það gæti
þó einnig breyst í haust þar sem
Evrópusambandið hefur sagt að
Svíar megi ekki leggja meira á
bjór en léttvín og þurfa hugsan-
lega að sæta dómsúrskurði jafni
þeir ekki álagninguna. ■
GAMLA LANDSSÍMAHÚSIÐ BROTIÐ NIÐUR Verið er að brjóta niður hús Landssímans við Sölvhólsgötu, þar sem hluti af
starfsemi Landssímans var til til húsa á árum áður. Lóðin undir húsinu er í eigu stjórnarráðsins og í framtíðinni mun þar rísa
bygging sem hýsa mun ýmis ráðuneyti. Ljósmyndari Fréttablaðsins brá sér inn fyrir á meðan stórvirkar vinnuvélar hömuðust á
húsinu og náði þessari mynd.
Áfengisskattur í Svíþjóð:
Lækkaður um 40 prósent
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
R
EY
N
IS
SO
N
KB banki í Svíþjóð:
Hlunnfarinn
fékk bætur
VIÐSKIPTI KB banki í Svíþjóð
féllst á kröfur manns sem taldi
sig vera fórnarlamb lélegrar
ráðgjafar við fjárfestingu.
Maðurinn átti eignir í traust-
um hlutafélögum í ársbyrjun
2000. Samkvæmt frétt Svenska
Dagbladet hafði miðlari hjá JP
Nordiska sem KB banki eignað-
ist síðar samband við manninn
og bauð honum að flytja eignir
sínar í vörslu JP Nordiska og
fjárfesta í tæknifyrirtækjum.
Átti eignasafnið að vera undir
daglegu eftirliti verðbréfamiðl-
ara.
Tapaði maðurinn 4,5 milljón-
um íslenskra króna af þeim
fimm sem hann hafði sett í
hendur miðlarans. Bankinn neit-
aði mistökum en afstaðan
breyttist hins vegar eftir að KB
banki eignaðist hann. Sátt var
gerð í málinu og fékk maðurinn
1,2 milljónir íslenskra króna í
skaðabætur. ■
FUNDUR Í IÐNÓ Framtíðarhópur Sam-
fylkingarinnar heldur opinn fund á Iðnó í
kvöld um framtíð norræna velferðarríkisins
og alþjóðlega samkeppni. Jón Baldvin
Hannibalsson og Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir munu hafa framsögu á fundinum
sem hefst klukkan 20.
SJÁVARÚTVEGUR „Það verður að ætla
að þetta verði þrautalending áður
en málið fer til alþjóðlegra dóm-
stóla,“ segir Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra vegna deilu
Íslands og Noregs um fiskveiðilög-
sögu undan ströndum Svalbarða.
Íslensk stjórnvöld hyggjast form-
lega hefja undirbúning að mála-
ferlum gegn Norðmönnum vegna
deilunnar en Halldór mun ræða
við norska utanríkisráðherrann í
næstu viku áður en frekari skref
verða tekin.
Halldór segist sjálfur telja
vænlegast fyrir deiluaðilana að
sáttir náist sem fyrst. „Það er mitt
álit að það sé bæði okkur og Norð-
mönnum fyrir bestu að klára þetta
mál áður en lengra er haldið. Mið-
að við þær viðræður sem ég hef
átt í dag við norska ráðamenn lít
ég svo á að vilji sé þeirra megin til
að leita sátta en það verður að
koma í ljós hvort við það verður
staðið.“
Verði niðurstaðan sú að leita
verði réttar Íslands fyrir alþjóða-
dómstólum mun slíkt að líkindum
taka nokkur ár og verða afar
kostnaðarsamt. Líklegt er þó að
grípa verði til þess konar aðgerða
þar sem Norðmenn hafa staðið
fast við sinn keip hvað varðar
veiðar Íslendinga við Svalbarða
þrátt fyrir formleg mótmæli utan-
ríkisráðuneytisins í sumar. Telja
Norðmenn sig hafa einhliða lög-
sögu á 200 sjómílna svæði kring-
um eyjarnar og hafa tekið sér vald
til að setja þar reglur og úthluta
kvóta án samráðs við aðra. Það er
ekki í samræmi við stofnsáttmála
þann sem í gildi er um svæðið og
Íslendingar eru aðilar að.
Hafa forsvarsmenn Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna ít-
rekað kallað eftir aðgerðum
stjórnvalda enda um mikið hags-
munamál að ræða.
albert@frettabladid.is
Norðmenn verða
dregnir fyrir dóm
Hefja á undirbúning að málaferlum á hendur Norðmönnum vegna fiskveiðideilunnar um Sval-
barða en reyna skal þrautalendingu til sátta á fundi utanríkisráðherra þjóðanna í næstu viku.
ÚR ÁTVR
Ríkiseinokun er á áfengisverslun í Svíþjóð
rétt eins og á Íslandi.
● unnu fjölni 6–0 í gær
Landsbankadeild kvenna:
▲
SÍÐA 28
Valskonur einum
sigri frá titilinum
Ellert Ingimundarson:
▲
SÍÐA 18
Grillar í góða
veðrinu
● 47 ára í dag
Jórunn Viðar:
▲
SÍÐA 38
Á lag á nýju
Bjarkarplötunni
● hefur verið sungið sundur og saman
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
UTANRÍKISRÁÐHERRA
Eftir fund Halldórs Ásgrímssonar með Árna
M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra í gær
var ákveðið að fara með málið fyrir dóm ef
lending næðist ekki í næstu viku.
Frændfólk Saddams:
Leitar hælis
í Svíþjóð
STOKKHÓLMUR, AP Frændfólk Saddams
Hussein, fyrrverandi forseta Íraks,
hyggst sækja um hæli í Svíþjóð sem
pólitískir flóttamenn, að því er
greint var frá í sænska útvarpinu.
Frænka Saddams sótti um hæli í Sví-
þjóð fyrir nokkrum mánuðum.
Lögregluyfirvöld í Svíþjóð segj-
ast vera að skoða umsóknirnar en
þau hafa þegar greint stjórnvöldum í
Bandaríkjunum frá málinu. Götu-
blaðið Expressen hélt því fram að
tveir frændur einræðisherrans fyrr-
verandi væru nú þegar búsettir í
Svíþjóð og þeir hefðu sótt um hæli
sem pólitískir flóttamenn. ■