Fréttablaðið - 17.08.2004, Blaðsíða 29
21ÞRIÐJUDAGUR 17. ágúst 2004
Þetta er algjör
rangtúlkun og útúr-
snúningur sjávarútvegsráð-
herra á bresku skýrslunni.
Rangtúlkun sjávarútvegsráðherra
Sjávarútvegsráðherra hefur í
fréttum gefið í skyn að megininn-
tak skýrslu Tony Blair, Net
Benefit, sem fjallar um fiskveiði-
stjórn, sé að Bretar íhugi að taka
upp kvótakerfi að íslenskri fyrir-
mynd. Þetta er algjör rangtúlkun
og útúrsnúningur sjávarútvegs-
ráðherra á bresku skýrslunni.
Meginmarkmið skýrslunnar var
að leggja fram tillögur sem yrðu
umræðugrundvöllur um fiskveiði-
stjórn framtíðarinnar. Helstu til-
lögur skýrslunnar snúa að því að
koma á svæðisbundinni fiskveiði-
stjórn og minnka fiskveiðiflotann.
Tillaga nr. 7 í skýrslunni felur m.a.
í sér að koma á sóknarstýringu í
blönduðum botnfiskveiðum líkt og
Færeyingar beita með árangurs-
ríkum hætti.
Ég hef áður skrifað grein í
Fréttablaðið undir fyrirsögninni
Skýrsla Tony Blair, þar sem fjallað
er með ítarlegri hætti um efni
skýrslunnar, og er hana að finna á
vef okkar í Frjálslynda flokknum
www.xf.is. Ég hvet alla þá sem vilja
kynna sér skýrsluna að fletta grein-
inni upp á netinu, en á henni er hægt
að tengjast beint inn á skýrslu bres-
ka forsætisráðherrans um fisk-
veiðistjórn og lesa hana án gler-
augna sjávarútvegsráðherra. ■
SIGURJÓN ÞÓRÐARSON
ALÞINGISM. FRJÁLSLYNDA FLOKKSINS
UMRÆÐAN
KVÓTAKERFIÐ
,,
BRÉF TIL BLAÐSINS
AFLANUM LANDAÐ
Greinarhöfundur segir að það sé algjör
útúrsnúningur að Bretar íhugi að taka upp
kvótakerfi að íslenskri fyrirmynd.
Vinstrivilla í Heimdalli
Síðastliðinn laugardag átti sér stað sá
sögulegi atburður að hægrikratar náðu
völdum í Heimdalli, félagi ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík. En eins og
þeir sem hafa fylgst með íslenskum
stjórnmálum vita hefur Heimdallur
lengi vel verið sterkasta vígi íslenskra
frjálshyggjumanna. Ekki lengur. Bolli
Skúlason Thoroddsen, nýkjörinn for-
maður Heimdallar, er eins og svo marg-
ir félagar hans á deiglan.com,
hægrikrati ekki frjálshyggjumaður. Ólíkt
fyrirrennurum sínum virðist Bolla vera
umhugað um að styrkja velferðarkerfið
til að taka á félagslegum vandamálum
eins og fátækt og atvinnuleysi. Slíkar
hugmyndir hafa ekki heyrst frá forustu
Heimdallar um langa hríð, ef þá
nokkurn tímann.
Sigurður Hólm Gunnarsson á
skodun.is
Ofstæki Jónasar
Jónas Kristjánsson kallar stjórnarliða
sirka 10 sinnum fasista í leiðara DV í
dag. Inn í fúkyrðaflaum sinn fléttar
hann ósmekklega veikindum Davíðs
Oddssonar. Fyrir afar mörgum árum
dáðist ég að ritstíl Jónasar en ofstækið
spillti smám saman skrifum hans og
gerði þau ótrúverðug enda hámarks-
bölsýni leiðarljósið í öllum málum.
Núna virðist hann vera búinn að laga
leiðaraskrif sín að öðrum standardi DV
á slæmum degi.
Ágúst Borgþór Sverrisson á agust-
borgthor.blogspot.com
Kennaraverkfall
Það má svo velta því fyrir sér hvort þessi
reglulegu kennaraverkföll séu ekki orðin
tímaskekkja. Skilningur almennings fyrir
þessari tregðu, sem ávallt virðist mynd-
ast í kjaraviðræðum milli kennara og
launanefndar sveitafélaganna, fer þverr-
andi. Ekki síst þegar opinberar tölur sýna
að heildarlaun grunnskólakennara
hækkuðu um 20% frá árslokum 2000 til
ársloka 2003, en laun á almennum
markaði hækkuðu um 18% á sama tíma.
Fanney Rós Þorsteinsdóttir á deigl-
an.com
Engir skussar
Miðað við neikvæðni menntamálaráðu-
neytisins í garð undanþágna mætti ætla
að háskólar landsins séu fullir af skuss-
um sem engar forsendur hafi til háskóla-
náms, nái engum prófum og þvælist
bara fyrir. Sú er alls ekki raunin. Og jafn-
vel þótt slíkir nemar slyppu inn í skólana
væri skaðinn ekki mikill, enda myndu
þeir í versta falli heltast úr lestinni í upp-
hafsnámskeiðum sem flest eru geysifjöl-
menn og kostnaður við hvern nemanda
sáralítill.
Stefán Pálsson á vg.is/postur
Vandi SÁÁ
Vandi SÁÁ hefur verið til umfjöllunar
vegna þess að þeir hafa veitt ungum
sprautufíklum nauðsynlega aðhlynn-
ingu en ekki fengið greitt fyrir. Ekki nóg
með það heldur hefur SÁÁ þurft að
greiða lyfjakostnað vegna þessara sjúk-
linga úr eigin vasa, nær milljón krónur á
mánuði. Þegar SÁÁ vakti athygli fjöl-
miðla á þessu var eins og bæði heil-
brigðisráðherra, Jón Kristjánsson, og
formaður heilbrigðisnefndar Alþingis,
Jónína Bjartmarz, kæmu af fjöllum. Það
er þó þakkarvert að ráðherra hefur gef-
ið það út að reynt verði að koma til
móts við samtökin, líklega með viðauka
við þjónustusamning sem í gildi er á
milli SÁÁ og heilbrigðisráðuneytisins.
Vonandi stenst það.
Helgi Hjörvar á helgi.is
Að lýsa á íslensku
Vissulega kostar fé að fá menn til að
lýsa leikjum. Það hlýtur hins vegar að
vera metnaðarmál íslenskrar sjónvarps-
stöðvar sem sendir út beint frá íþrótta-
viðburðum erlendis að þeim sé lýst á ís-
lensku. Satt best að segja finnst mér
ekki nógu góður bragur yfir því þegar
annars mjög góður umsjónarmaður
enska boltans á Skjá einum segir að lát-
ið verði reyna á ákvæði útvarpslaga
þessa efnis. Það er bara engin ástæða
til að láta reyna á það.
Guðjón Ólafur Jónsson á hrifla.is