Fréttablaðið - 17.08.2004, Blaðsíða 34
26 17. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR
ÓLYMPÍULEIKAR Guðmundur Guð-
mundsson landsliðsþjálfari var
ekki upplitsdjarfur rétt eftir leik
en eftir að hafa melt leikinn í
nokkrar mínútur náðum við tali af
honum.
„Þetta var rosalega svekkjandi
að því leyti að við vorum með
tækifæri í höndunum mjög lengi
að taka forystuna. Nýttum ekki
færi á mikilvægum augnablikum
og ég er eiginlega svekktari yfir
því að en að tapa svona stórt þótt
það hafi verið sárt. Nú verðum við
að einbeita okkur að því sem eftir
er. Við megum ekki detta í þung-
lyndi yfir þessu. Þetta fell ekki
okkar megin og ég er sársvekktur
með það.“
Guðmundur er enn að glíma
við það að liðið hans virðist ekki
kunna að taka forystu í leikjum.
„Við erum að spila við hörkulið
og það er í sjálfu sér ekkert auð-
velt að taka forystu og halda
henni. Þetta þróaðist þannig að
við unnum okkur inn og þetta var
vel spilað en svo koma sóknir það
sem við erum annað hvort of fljót-
ir á okkur eða við nýtum ekki fín
færi sem við fáum. Þetta tvennt
ræður úrslitum. Varnarleikurinn
var mjög góður og markvarslan
mjög fín og það er auðvitað já-
kvætt en við verðum að skoða
þessi mál. Næsti leikur verður að
vinnast ef við ætlum að komast
áfram en við eigum enn tæki-
færi,“ sagði Guðmundur.
„Þegar upp er staðið þá eru
margir litlir þættir sem ráða því
hvort þú ert yfir og undir. Því
miður er það svo að nokkur
dómarapör hérna eru að dæma
illa. Mér fannst þýska parið sem
dæmdi fyrsta leikinn hjá okkur
dæma illa. Skandinavarnir hafa
verið að dæma vel og svona er
þetta en ég ætla samt ekki að
kenna dómurunum um.“
henry@frettabladid.isLÁRA ÚR LEIK Lára Hrund Bjargardóttir hefur aðeins einu sinni synt betur 200 metra
fjórsund en í gær en hún var þá svekkt að ná ekki að bæta sig. Fréttablaðið/Teitur
Í NÓGU AÐ SNÚAST Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari hefur í nógu að
snúast í leikjum íslenska landsliðsins í Aþenu. Fréttablaðið/Teitur
Megum ekki detta í þunglyndi
Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari var ekki upplitsdjarfur eftir leik.
Lára Hrund Bjargardóttir náði sínum næstbesta tíma:
Nenni ekki að lemja
mig í hausinn
ÓLYMPÍULEIKAR Lára Hrund Bjargar-
dóttir var tiltölulega sátt þótt hún
hefði verið nokkuð frá sínu besta í
lauginni í Aþenu í gær. Lára
Hrund tók þátt í 200 metra fjór-
sundi og kom í mark á tímanum
2:22,00 mínútum en Íslandsmet
hennar er 2:20,35 mínútur.
„Ég er alveg búinn á því núna,“
sagði Lára Hrund skömmu eftir
að hún steig úr lauginni í Aþenu
en hún komst ekki áfram. „Þrátt
fyrir að mér hafi ekki tekist að slá
metið þá er þetta minn næstbesti
tími. Engu að síður er þetta svolít-
ið svekkjandi að það þýðir ekki að
velta sér upp úr því. Ég er samt
ekki óánægð og þetta er tími sem
ég sætti mig þannig séð við þótt
ég sé pínu svekkt. Ég nenni ekki
að lemja mig í hausinn yfir
þessu.“
Það var óvenju kalt, eða óvenju
lítið heitt, í Aþenu í gær og nokk-
uð sterkur vindur var þegar Lára
Hrund synti. Hafði þessi vindur
einhver áhrif á hana? „Ég hugsa
ekki. Laugin var að vísu svolítið
kaldari en áður en það eru allir að
keppa við sömu aðstæður þannig
að það er ekki hægt að kvarta yfir
því,“ sagði Lára Hrund en hvernig
fannst henni sundið ganga hjá sér.
Var hún ánægð eða óánægð með
einhverja hluta sundsins?
„Ég hugsa að sundið hafi allt ver-
ið of hægt. Hvert sund fyrir sig.
Ég er ekki búinn að tala við þjálf-
arann þannig að ég veit það ekki
alveg en þetta er mín tilfinning
svona skömmu eftir sundið.“
henry@frettabladid.is
Guðmundur Hrafnkelsson:
Leikur okkar
hrundi í lokin
ÓLYMPÍULEIKAR Guðmundur Hrafn-
kelsson markvörður fann sig eng-
ann veginn í fyrsta leiknum á móti
Króötum en hann var heldur bet-
ur vaknaður í gær. Varði eins og
berserkur og hélt íslenska liðinu
inn í leiknum á köflum. Alls varði
Guðmundur 21 skot, 20 fleiri skot
en hann stoppaði í fyrsta leiknum.
Því miður þá dugði þessi stórleik-
ur Guðmundar ekki til sigurs.
„Í staðinn fyrir að komast yfir
í jöfnum leik og vinna hann þá
glutrum við þessu niður og töpum
með átta mörkum sem er hrika-
lega slæmt. Leikur okkar hrundi.
Mér fannst sóknarleikurinn fyrst
og fremst ekki ganga upp. Vörnin
var fín og ég er að finna mig. Það
er bara sóknarleikurinn en við
gerum allt og mörg mistök þar og
fáum á okkur hraðaupphlaup.
Þetta er allt of stórt tap.“
henry@frettabladid.is