Fréttablaðið - 17.08.2004, Blaðsíða 6
6 17. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Framsóknarkonur:
Ekki aftur til fortíðar
STJÓRNMÁL Frekari fundahöld
framsóknarkvenna um fyrirhug-
uð ráðherraskipti innan flokksins
eru meðal þess sem rætt verður á
fundi framkvæmdastjórnar
Landssambands framsóknar-
kvenna (LFK) í dag. Una María
Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri
LFK, segir þessi mál nokkuð mik-
ið rædd meðal framsóknar-
kvenna þessa dagana, en á mál-
þingi sem sambandið stóð fyrir
um málið í maí kom fram sú hug-
mynd að konur kæmu aftur sam-
an og ræddu málið enn frekar.
„Við viljum flokknum okkar vel
og það er skoðun margra að það
skipti máli að konur séu fleiri og
ekki settar út úr ríkisstjórn,“ seg-
ir Una María og vísar meðal ann-
ars til ályktunar málþingsins frá
því í maí.
Þá segir Una María mikilvægt
að missa ekki niður fylgisaukn-
ingu flokksins meðal kvenna sem
könnun LFK eftir síðustu kosn-
ingar hafi sýnt. „Ég trúi því ekki
fyrr en ég tek á því að flokkurinn
ætli að hverfa aftur til fortíðar
og fækka konum í sínu ráðherra-
liði. Við þurfum alls staðar að
vinna að því að fjölga þeim þan-
nig að þær verði nokkurn veginn
til jafns við karla í stjórnunar-
stöðum og í störfum fyrir flokk-
inn,“ segir Una María. ■
Hagnaður eykst í
harðri samkeppni
Flugleiðir skiluðu tæplega 900 milljóna króna betri afkomu á fyrri hluta ársins
miðað við sama tíma í fyrra. Eldsneyti hefur hækkað í verði og samkeppnin
aukist. Forstjóri Flugleiða segir afkomuna til marks um styrk félagsins.
VIÐSKIPTI Hagnaður Flugleiða, það
sem af er ári, var talsvert betri en
greiningardeildir bankanna gerðu
ráð fyrir. Hagnaður annars árs-
fjórðungs nam rúmum 900 milljón-
um króna. Hagnaður fyrstu sex
mánuði ársins nam tólf milljónum
króna sem er um 900 milljón króna
betri afkoma en fyrir sama tímabil í
fyrra. Þá var tapið 903 milljónir
króna.
Tekjur Flugleiða jukust um 18
prósent milli ára og nam veltan
fyrri hluta ársins tæpum nítján
milljörðum króna. Farþegum fjölg-
aði verulega en á móti fjölda far-
þega kom lækkandi farmiðaverð og
eldsneytishækkanir sem koma fé-
laginu illa. Sigurður Helgason, for-
stjóri fyrirtækisins, segist gera ráð
fyrir að eldneytishækkanir hafi
meiri áhrif á afkomuna á seinni
hluta ársins. „Það er til marks um
styrk félagsins og uppbyggingu að
þrátt fyrir eldsneytishækkanir og
aukna samkeppni í alþjóðaflugi er
gert ráð fyrir að hagnaður verði af
starfsemi félagsins á árinu í heild.“
Afkoma Flugrekstrarins er betri en
í fyrra þrátt fyrir aukna samkeppni
og hækkandi launakostnað og elds-
neyti.
Sigurður segir að skipting
félagsins í móðurfélag og dóttur-
félög með skýra ábyrgð á eigin
rekstri hefði tvímælalaust átt
þátt í að styrkja afkomuna und-
anfarin tvö ár. Hann segir áfram
haldið á sömu braut. Markmiðið
sé að auka enn vöxt í starfsem-
inni og nýta tækifæri á nýjum
mörkuðum í alþjóðlegu leigu-
flugi, fraktflugi og á fleiri svið-
um. Þá segir Sigurður að félagið
muni herða sókn á alþjóðlegan
ferðamannamarkað sem hafi
skilað umtalsvert meiri vexti í
ferðaþjónustu hér á landi en í ná-
grannalöndum beggja vegna
Atlantshafsins. Sigurður boðar
einnig aukinn sveigjanleika í
rekstrinum til þess að takast á
við sveiflukenndan markað.
Stefnt er að því að efla móður-
félagið og verður sett upp stefnu-
mótunar- og fjármálasvið undir
forystu Einars Sigurðssonar.
Markmið sviðsins er að vinna að
áformum fyrirtækisins um auk-
inn vöxt og fylgja eftir markmið-
um um arðsemi.
haflidi@frettabladid.is
Lögreglan á Ísafirði:
Handtekin
vegna fíkniefna
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Ísafirði
handtók tvo karlmenn og konu á al-
mannafæri á laugardagskvöld vegna
gruns um fíkniefnamisferli. Í kjölfar-
ið var gerð húsleit í íbúð annars
mannanna. Við leitina fundust um
fimmtán grömm af kannabisefnum,
þrjú grömm af amfetamíni og 83 töfl-
ur sem innihalda efedrín og steralyf.
Þremenningunum var sleppt úr
haldi lögreglu á sunnudag og höfðu
þau játað að fíkniefnaneysla hefði
farið fram í íbúðinni þar sem fleiri
komu við sögu. Einn aðilanna játaði
að hafa selt fíkniefni á Ísafirði. Menn-
irnir hafa báðir komið við sögu lög-
reglu áður en ekki konan. ■
BÍLVELTAN Á KRÍSUVÍKURVEGI
Ökumaður bílsins er ákærður fyrir mann-
dráp af gáleysi. Einn farþeganna kastaðist
út úr bílnum og lenti undir honum. Fimm
dögum síðar lést farþeginn af áverkum
sínum.
Þjóðverji í farbanni:
Ákærður fyr-
ir manndráp
af gáleysi
DÓMSMÁL Fjörtíu og fjögurra ára
Þjóðverji hefur verið ákærður af
sýslumanninum í Hafnarfirði
fyrir manndráp af gáleysi og ölv-
un við akstur þegar hann velti bíl
sem hann ók laugardaginn 24. júlí.
Einn farþeganna í bílnum lést af
völdum áverka sem hann hlaut í
bílveltunni.
Maðurinn er sakaður um að
hafa ekið bílnum frá Kleifarvatni
og áleiðis vestur Krísuvíkurveg í
átt til Hafnarfjarðar þar sem
hann velti bílnum við Vatnsskarð.
Vínmagn í blóði mannsins var 0,89
prómill. Farþeginn sem lést
kastaðist út úr bílnum og hafnaði
undir bifreiðinni og lést fimm
dögum eftir slysið.
Þjóðverjinn var úrskurðaður í
farbann til 27. ágúst næstkom-
andi. Málið gegn honum verður
þingfest í vikunni. Krafist er að
maðurinn verði dæmdur til refs-
ingar og verði sviptur ökuréttind-
um. ■
■ VIÐSKIPTI
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 70,37 -0,94%
Sterlingspund 129,72 0,39%
Dönsk króna 11,68 0,19%
Evra 86,85 0,17%
Gengisvísitala krónu 121,23 0,21%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 221
Velta 1.017 milljónir
ICEX-15 3.197 -0,12%
Mestu viðskiptin
Actavis Group hf. 281.664
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 251.066
Landsbanki Íslands hf. 193.905
Mesta hækkun
Afl fjárfestingarfélag 6,28%
Jarðboranir hf. 3,11%
Flugleiðir hf. 1,89%
Mesta lækkun
Opin kerfi Group -0,79%
Actavis Group -0,64%
Kaldbakur hf. -0,61%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ * 9.937,6 1,14%
Nasdaq * 1.782,0 1,41%
FTSE 4.350,2 1,13%
DAX 3.699,1 1,43%
NIKKEI 10.687,8 -0,65%
S&P * 1.077,2 1,17%
* Bandarískar vísitölur kl. 17.00
VEISTU SVARIÐ?
1Hvaða íslenska þáttaröð var frum-sýnd í Bandaríkjunum í gær?
2Hvað heitir fellibylurinn sem ollimanntjóni á Flórída um helgina?
3Í hvaða bæjarfélagi á höfuðborgar-svæðinu varð mest fjölgun á fyrri
hluta ársins?
Svörin eru á bls. 38
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Flott dagbók fyrir
hressar galdrastelpur,
stútfull af alls kyns
skemmtilegu efni og
dagbók frá og með
1. júlí '04 til 30. júní '05.
Mögnuð dagbók!
SPÁIR SAMSUNG FRAMA For-
svarsmenn suður-kóreska fyrir-
tækisins Samsung spá því að
stutt sé þar til félagið verði
næststærsti framleiðandi far-
síma í heiminum. Nú er Nokia
stærst og Mororola næststærst.
HAGNAÐUR AFLS FIMMFALDAST
Fjárfestingarfélagið Afl hefur
hagnast um 954 milljónir það
sem af er ári samanborið við
148 milljónir á sama tímabili í
fyrra. Tæpur helmingur hagn-
aðar kemur frá útlendum fjár-
festingum. Gengi bréfa í félag-
inu hækkaði um 6,28 prósent í
Kauphöll Íslands í gær.
UNA MARÍA ÓSKARSDÓTTIR
Framkvæmdastjóri LFK segir vel hafa verið
unnið að jafnréttismálum innan flokksins
og telur mikilvægt að bæði kynin komi
áfram að mikilsverðum ákvörðunum.
GÓÐ AFKOMA
Forsvarsmenn Flugleiða geta verið ánægðir með sögulega góða afkomu það sem af er ári.
Samkeppni í flugrekstri hefur aldrei verið meiri og eldneytisverð sjaldnast hærra. Þrátt fyrir
þetta batnar afkoman milli ára um 900 milljónir króna.
SPÁR GREININGARDEILDA UM
HAGNAÐ FLUGLEIÐA Á ÖÐRUM
ÁRSFJÓRÐUNGI:
KB banki 406 milljónir
Íslandsbanki 554 milljónir
Landsbankinn Engin spá
Niðurstaða: 903 milljónir
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA