Tíminn - 29.07.1973, Qupperneq 18

Tíminn - 29.07.1973, Qupperneq 18
18 TÍMINN Sunnu(|agur 29. júll 1973. Menn og málefni Skipulagning ferðamálanna STJÓRNARANDSTAÐAN er stundum að gagnrýna það, aö ekki sé nógu vel staðið að kynn- ingu á málstað okkar i land- helgismálinu, meðal erlendra þjóða. Vist má segja, að æskilegt hefði verið að þetta kynningar- starf hefði getað verið öflugra og kostaö til þess meiri fjármunum, og mannafla. Hins vegar má svara stjórnarandstöðunni þvi um leið, að ýmsum farist en ekki henni. Sannleikurinn er sá, að þeir menn, sem að kynningarstarfs- semi um landhelgismálið hafa staðið á vegum rikisstjórnarinnar sl. 2 ár, hafa skilað ótrúlega miklu og farsælu starfi og eiga þakkir skilið fyrir. Aumleg aðkorha Viðreisnarstjórnin gaf ekki út eitt einasta upplýsingarit um landhelgismál á 12 ára stjórnar- ferli sinum. Engin upplýsinga- gögn voru tiltæk, þegar rikis- stjórn Olafs Jóhannessonar tók við völdum. Siöan hafa veriö gefnar út 6 upplýsingagreinar- gerðir á vegum blaðafulltrúa rikisstjórnarinnar og tveir lit- prentaðir kynningarbæklingar og utanrikisráðuneytið hefur gefið út hvita bók um málið á ensku og þýzku. Þar að auki hefur verið gerð kynningarkvikmynd um málstað Islands og hefur hún verið sýnd viða um heim. Upplýsingaritunum hefur veriö dreift til 1000 erlendra frétta- manna, blaöa, timarita, útvarps- og sjónvarpsstöðva og albióð- legra fréttastofnana I 130 rlkjum heims. Þá hafs sendiráö tslands dreift þessum gögnum og mörg félög og islenzk fyrirtæki hafa einnig dreift þessum ritum. Störf Hannesar i ' , y ^ * I siöustu viku var afbragös heyskapartið um land allt og gcngur heyskapur vlða mjög vel og þess dæmi að bændur séu búnir að að alhiröa tún sin. Myndin sýnir heyi biásið I hiöðu. og Helga Hingaö til lands hefur verið stöðugur straumur erlendra fréttamanna og hefur mest mætt á þeim Hannesi Jónssyni, blaða- fulltrúa rikisstjórnarinnar, og Helga Agústssyni, blaðafulltrúa utanrikisráðuneytisins, i þvi sambandi. Stundum var fjöldi er- lendra fréttamanna svo mikill hér, að vikum saman hefur blaða- fulltrúi rikisstjórnarinnar þurft að hafa daglega fréttafundi, með fjölda blaðamanna. Nú er ákveðið að Helgi Agústsson fari til sendiráðsins i London i haust og annist þar upplýsingastarf- semi. Hannes Jónsson hélt frétta- mannafund á Lundúnaflugvelli i gær. En þetta kynningarstarf á mál- stað okkar I landhelgismálinu hefureinnig hvilt mjög á ráðherr- unum i rikisstjórninni. Er óhætt að fullyrða það, að engir islenzkir ráðherrar hafi átt eins mörg við- töl við erlenda fréttamenn um is- lenzk hagsmunamál og núverandi ráðherrar. Þetta starf hefur eink- um mætt á Ólafi Jóhannessyni, forsætisráðherra, Einari Agústs- syni, utanrikisráðherra, og Lúðvik Jósefssyni, sjávarútvegs- ráðherra. Hafa þeir allir fórnað miklu af tima sinum i þetta starf og hafa rætt við hundruð erlendra fréttamanna. Óhætt er að fullyrða það, að Is- land hefur aldrei verið svo mjög i sviðsljósinu og jafn oft og mikið i heimspressunni og á undanförn- um tveimur árum. Margt fleira en landhelgismálið hefur að visu stuðlað að þvi að athyglin hefur beinzt til Islands. Má þar til nefna stefnu rikisstjórnarinnar i varnarmálum, sem sifellt er til umræðu i erlendum blöðum, heimsmeistaraeinvigið i skák, i fyrra,og náttúruhamfarirnar i Vestmannaeyjum. Og pakkarnir, sem koma viku- lega með blaðaúrklippum úr erlendum blöðum stækka stöðugt og æ fleiri greinar birtast, sem skýra islenzk sjónarmið i land- helgismálinu. Hins vegar er þvi ekki að neita,að brezk blöð eru okkur oft andsnúin en upp á sið- kastið hefur greinilega mátt merkja einnig þar, að málstaður okkar á vaxandi fylgi að fagna i þessum löndum. Hins vegar nefur Mbl. gefið nokkuð ranga mynd af undirtektum erlendra fjölmiðla við okkar málstað, þvi að blaðið virðist sitja um að endurprenta aðeins þær greinar i erlendum blöðum, þar sem beitt er rang- færslum og missögnum um is- lenzk málefni. Ferðamdlin Timinn i gær og i dag er að verulegu leyti helgaður ferðamálum og ferðalögum. Ferðalög um Island standa nú hvað hæst á sumrinu og verzlunarmannahelgin, mesta ferðahelgi ársins, er fram undan. Talsvert er rætt um vaxandi straum erlendra ferðamanna hingað til lands um þessar mund- ir og sýnist sitt hverjum. Virðist sem talsverðra öfga gæti oft i þessum umræðum. A ráðstefnu Landverndar i april s.l. flutti Brynjólfur Ingólfs- son ráðuneytisstjóri i samgöngu- ráðuneytinu, mjög gott erindi um ferðamálin og ræddi m.a. um þessar öfgar i umræðunum um þau. t erindinu sagði Brynjólfur m.a.: „Þegar rætt er um ferðamál (tiirisma), einkum ferðir er- lendra manna hingað til lands svo og hvers konar skemmtiferðir innlendra eða erlendra manna um landið, vakna margvislegar spurningar. Eru slikar hreyfingar eðlilegar og æskilegar og á að stuðla að þeim? Er hér um þjóðhagslega athyglisvert mál að ræða, sem jafnvel gæti orðið veruleg stoð i efnahagskerfi okkar, eða eru ferðamenn ógnun við óspíllta náttúru landsins? Þegar rætt er eða ritað um þessi mál, eru skoðanir alla jafn- an ólikar og oft öfgakenndar. Aðfinnslu- og aðvörunarraddir hafa einkum verið háværar i hópi þeirra raanna, sem kenna sig við náttúru- og umhverfisvernd. Að áliti sumra úr þeim hópi eru erlendir umrenningar að kaffæra landið og jafnvel er unnið mark- visst að þvi að falbjóða Fjallkon- una til fylgilags við hæstbjóðend- ur. I hópi þeirra, sem mestan áhuga hafa á eflingu ferðamál- anna, finnast menn, sem sjá ekki annað glæsilegra markmið en gera tsland að fljótandi veitinga- húsi — barey i Atlantshafinu — þar sem hanastélsuppskriftir kæmu I stað gullaldarbókmennta. Sem betur fer er um aðra kosti áð velja, langt innan þessara tveggja endimarka öfganna”. Ennfremur segir Brynjólfur: ,,Það er skoðun min og ýmissa annarra, sem kvnnt hafa sér ferðamál, að ferðamannastraum ur verði ekki stöðvaður með vald- boði, miðað við það frjálsa þjóð- félag, sem við lifum nú i, enda sé slikt ekki æskilegt. Hins vegar sé rétt að beina þessum straumi á skipu- lagsbundinn hátt i þann farveg, sem minnstri röskun veldur á umhverfinu, og hafa auk þess áhrif á aðstreymið. Þvi er ekki að neita, að miklum straumi er- lendra ferðamanna getur fylgt ýmsilegt miður æskilegt og jafn- vel varasamt, einkum fyrir fá- menna þjóð. En jafnframt verður að hafa i huga, að erlendir ferða- menn eru ekki nema brot af bvi fólki sem fer um sveitir og öræfi tslands á hverju ári. Nægir i þvi sambandi ,að benda á, að Flugfélag tslands hf. og leigu- flugfélög fluttu á árinu 1971 um 150 þúsund farþega, dagleg meðalumferð bifreiða, var sumarið 1971 hátt á annað þúsund bifreiðar um Hellisheiði, yfir 600 austan Selfoss, um 400 við Ingólfsfjall ofan við vegamótin móts við Selfoss, nær 1000 á Vesturlandsvegi i Hvalfirði, um 1150 á Moldhaugnahálsi við Eyja- fjörð og hátt á fjórða hundrað bifreiðar daglega i Ljósavatns- skarði. Að visu er hér að nokkru leyti um vöruflutningabifreiðar að ræða, bæði stórar hópferða- og sérleyfisbifreiðar og einkabif- reiðar. Sama ár 1971, var tala allra er- lendra ferðamanna, sem til landsins komu, aðeins liðlega 60 þúsund, og meðal dvalartimi var 4,9 dagar. Það virðist þvi augljóst að hvorki heilartala erlendra ferðamanna né dvalartimi nægja til að hluti þeirra i þessum mikla umferðarstraumi, sem um landið fer, geti verið nema óverulegur, og öll rök hniga að þvi, að lands- menn séu þar sjálfir I miklum meirihluta. Lokun landsins fyrir erlendum ferðamönnum er þvi ekki aðeins óraunhæf náttúru- vernd af þeim orsökum, sem ég gat um áður, heldur einnig vegna þess, að spjöll þau, sem hljótast af ferðafólki, eru fyrst og fremst unnin af Islendingum sjálfum. Fjöldi erlendra ferðamanna, sem nú kemur tii tslands árlega, er hins vegar enn langt undir þvi marki, sem hættulegt getur talizt fyrir land okkar og menningu. Við nánari athugun málsins hlýtur að vera ljóst, að miklu hættulegra er að opna allar gáttir fyrir óskipulegum ferðamanna- straumi eftirlitslaust heldur en að vinna skipulega að hæfilegri þró- un og uppbyggingu á hlutdeild Is- lands i hinum mikla alþjóðlega ferðaþjónustumarkaði. Skipulag ferðamálanna á þann- ig að beinast að þvi að tryggja, að til sé i landinu nauðsynleg að- staða til að uppfylla eðlilegar þarfir ferðafólks og efla þann þátt atvinnulifs okkar og auka á fjöl- breytni. Þarfir ferðamannsins eru margvislegar og ná áhrif þeirrar eftirspurnar, sem hér skapast, langt úr fyrir þrengri mörk hugtaksins „túrismi” eða ferðamál. Eftirspurn ferða- mannastraumsins hefur örvandi áhrif á beinan eða óbeinan hátt á framleiðendur alls þess,sem ferðamaðurinn þarfnast. Við það bætist einnig, að ferðamenn al- mennt gera tslendingum kleift að halda uppi betra og fullkomnara samgöngukerfi við umheiminn en nokkur kostur er á, ef einungis væri um islenzkan heimamarkað að ræða. 1223 milljónir kr. 1971 A árinu 1971 komu hingað tæp- Innlendir ferða menn í miklum meirihluta lega 61.000 feröamenn (farþegar skemmtiferðaskipa ekki taldir með), og var aukningin frá árinu 1970 14,8%. A árinu 1972 nam tala erlendra ferðamanna á sama hátt liðlega 68 þúsundum, sem var 12% aukning frá 1971. Meðal- aukning siðustu árin hefur verið 14—15% árlega. Beinar og óbein- ar gjaldeyristekjur af ferða- mannaþjónustu eru áætlaðar 1971 alls 1223 millj. kr„ sem er 9,3% af heildarútflutningsverðmæti Islendinga það ár. Ferðamálin eru þvi nú þegar orðin verulegur þáttur i efnahagslifi okkar, og ber að veita þeim viðurkenningu og stuðning sem einum af atvinnu- vegum tslendinga. Það er hlutverk rikisvaldsins að sjá um, að atvinnugreinum sé ekki mismunað innbyrðis og fjár- festingarsjóðir þeirra verði ekki undir i kapphlaupinu við einka- neyzlu, heldur sé hlúð hæfilega að þeim og atvinnugreinunum sköp- uð viðunandi vaxtarskilyrði. Mikið hefur skort á, að nægilega vel væri búið að fjárfestingarsjóði ferðamálanna, Ferðamálasjóði, og hefur opinber stuðningur við hann verið alls ófullnægjandi, þótt ekki sé stund né staður til að rekja þá sögu nánar hér. Nú stendur yfir könnun á is- lenzkum. ferðamálum á vegum Sameinuðu þjóðanna. Ég verð, vegna ýmissa villandi fullyrðinga um tilgang þessarar könnunar, að leggja áherzlu á, að megintil- gangur hennar er að safna upp- lýsingum um leiðir til lengingar ferðamannatimabilsins vor og haust og gera áætlanir um fram- tið þessara mála I heild og auð- velda þannig almenna stefnu- mörkun. Ekki „fjöldatúrismá" Bráðabirgða niðurstöður eru þær, að með áframhaldandi fjár- magnssvelti þessa atvinnuvegar stöðvist aukning ferðamanna- fjölda til tslands árið 1976. Með tilteknum ráðstöfunum sé unnt að gera ráð fyrir liðlega tvöföldun, eða um 150 þúsund erlendum ferðamönnum árið 1980, og tilsvarandi aukningu gjaldeyris- tekna. Eins og nú er hefur tsland mest aðdráttarafl á einstaklings- hyggjumenn, sem hið erlenda firma, er að ferðamálakönnun- inni stendur, kallar „rjómann á ferðamannamarkaðinum”. Einkenni meirihluta erlendra ferðamanna, sem vitja tslands, er, að þeir eru fremur ungir, hafa áhuga á útilifi og kippa sér ekki upp við ýmis konar ytri erfið- leika, jafnvel fagna þeim sem nýstárlegu ævintýri. Þetta fólk er yfirleitt vel siðað og menntað og yfir meðallagi að efnum. Flestir hafa áhuga á jarðfræði og jarð- sögu, fuglaskoðun jurta- eða grasasöfnun, sögu þjóðarinnar, ijósmyndun og siðast en ekki sizt hinni ósnortnu náttúru landsins. Island er i þeirra augum nýstár- legt og ólikt öðrum löndum.Þó fer þvi viðs fjarri, að áhugi á sér- kennum tslands og á íslenzku þjóðinni sé það almennur erlend- is, að fólk biði þar i biðröðum eftir farkosti hingað, hvað sem það kynni að kosta. Siður en svo — sérkenni tslands eru þess eðlis, að þau hafa aðeins aðdráttarafl fyrir takmarkaðan hóp fólks, og mikla kynningarstarfsemi þarf til að laða það hingað. Vegna norðlægr- ar hnattstöðu og óútreiknanlegs veðurs eru engar likur á fjölda- túrisma. Að stefna að sliku er ekki aðeins tilgangslaust heldur óæskilegt fyrir tsland, þar sem slikt stórstreymi ferðamanna myndi spilla þvi sem verðmætast er fyrir landið, það er fámennið og ómenguð og óspillt náttúra þess”. — TK.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.