Tíminn - 29.07.1973, Side 26
26
TÍMINN
Sunnudagur 29. júli 1973.
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Kjölfestan í Keflavíkurlið-
inu og fyrirliði landsliðsins
GENGIÐ AF LEIKVELLI ... GUDNI KJARTANSSON, GRÉTAR MAGNGSSON og MAGNÚS
TORFASON, ganga af leikvelli, eftir erfiöan leik gegn Everton á Laugardalsvellinum.
Sá varnarleikmaður, sem borið hefur höfuð og
herðar yfir aðra leikmenn, er leika i öftustu vörn i
islenzkri knattspyrnu, siðan Ellert Schram lagði
skóna á hilluna, er Guðni Kjartansson frá Keflavik.
Guðni þessi 26 ára gamli leikmaður, hefur háð
marga hildi á knattspyrnuvöllum bæði heima og
erlendis. Sökum prúðmennsku sinnar er hann ekki
einn þeirra leikmanna, sem eru mest áberandi, en
jafnan er það svo, þegar dæmið er gert upp eftir
leiki, hvort sem það eru leikir Keflavikur-liðsins
eða landsliðsins, að nafn hans er ofarlega á lista yfir
beztu leikmennina.
Prúðmennska Guöna er ekki
einvörðungu bundin við knatt-
spyrnuvöllinn. Yfirlætislaus
framkoma hans utan vallar sem
innan, gerir það að verkum, að
litið er á hann, sem sérstaka
fyrirmynd annarra iþrótta-
manna. Það er ekki þar með sagt,
að Guðni sé skaplaus. Islenzkir
knattspyrnuáhorfendur hafa
fengið að kynnast þvi, að hann er
þéttur fyrir og sleppir and-
stæðingunum ógjarnan inn fyrir
sig. En samt er það svo, að hann
verkar ekki á áhorfendur sem
grófur leikmaður. Einmitt i þvi er
snilld góðs varnarmanns fólgin.
Meistaraf lokksleikmaöur
í tæpan áratug
Þótt ótrúlegt megi virðast, þá
hefur Guðni verið meistara-
flokksleikmaður i tæpan áratug,
og fastur landsliðsmaður siðan
1967. Og það væru öfugmæli að
halda þvi fram, að þessi ár hafi
verið viðburðasnauð. Kefl-
vikingar hafa verið stórveldi i
islenzkri knattspyrnu allan
þennan tima, ýmist íslandsmeist-
arar eða i efstu sætunum i 1.
deild, en það hefur veitt þeim rétt
til þátttöku i Evrópubikar-
keppninni. 1 þeirri keppni hafa
Keflvikinar ekki dregizt á móti
andstæðingum af verri endanum,
og nægir i þvi sambandi að nefna
Real Madrid, Everton og
Tottenham. Það hafa þvi ekki
alltaf veriö auðveld verkefni, sem
Guðni og félagar hans i Kefla-
vikur-vörninni hafa fengið að
glima við. En Keflavikur--
vörninni hefur blessunarlega
tekizt að halda aftur af frægustu
sóknarleikmönnum Evrópu, og
það er ekki sizt verk Guðna
Kjartanssonar.
Hótuöu að skora 50
mörk — skoruðu 6.
Eins og öðrum leikmönnum
Keflavikur sem þátt tóku i
Evrópubikarleiknum 1971 gegn
Everton á Goodison Park vellin-
um i Liverpool, er sá leikur
Guðna mjög minnisstæöur.
Catterick, framkvæmdastjóri
Everton, viðhafði þau ummæli
við blaðamenn fyrir leikinn, að
Everton væri ekki aðeins stað-
ráðið i að vinna leikinn, heldur
myndu leikmenn liðsins leggja
sig alla fram um að skora eins
mörg mörk og mögulegt væri,
helzt 50.
Eins og kunnugt er, stóðu leik-
menn Catteri’cks ekki við þetta
fyrirheit. Keflavikur-liðið stóð sig
ljómandi vel og náði forustu i
leiknum, og það var ekki fyrr en
undir lok fyrri hálfleiksins, að
Everton tókst að jafna og ná for-
ustu, en lokatölur leiksins urðu
6:2. 'Þótti frammistaða Kefla-
vikur-liðsins mjög góð, og þá ekki
sizt varnarleikmannanna og
markvarðarins, Þorsteins Ölafs-
sonar. Guðni stjórnaði vörninni i
þessum leik, en sókn Everton
stjórnaði sá frægi Alan Ball.
Leik-
menn
1.
deildar
kynntir
A VHATE HART LANE.... heimavelli Tottenham. Raiph Coates spyrnir aö marki Keflvfkinga — Guöni (5) til varnar.