Tíminn - 29.07.1973, Síða 30

Tíminn - 29.07.1973, Síða 30
30 TÍMINN Sunnudagur 29. júlí 1973. Sterka kynið? Karlmönnuin ber aö vcra at- hafnasamir, metnaðargjarnir, aikastam iklir og sjálfstæftir. I>eir eiga að vera stórir og sterkir og kunna ráð við hverjuin vanda. Þeir eiga að vernda konuna og bera meginábyrgð á fjárhag fjöl- skyldunnar. Þeir eiga að komast áfram i lífinu. Nú þegar konan krefst frclsis til að velja og hafna hvort hún tekur að sér hið gamla, kynbundna hlutverk sitt, gleyma margir að maðurinn er eins rigbundinn af sinu rótgróna hlutverki og hún af sinu. Hann er jafnf jötraður af þvi sem vænzt er af „sterka kyninu” og konan af sinu venjubundna hlutverki. Karlmenn eiga að sýna sjálfs stjórn. Þeir eiga að standa sig hvað sem i skerst. Þvi fá þeir sjaldan tækifæri til að sýna hvernig þeim raunverulega er innanbrjósts. Þeir verða kannski ekki eins eðlilegir og konur og gera minna af þvi að tala um til- finningar sinar. Hins vegar venj- ast þeir á að vera valdsmannsleg- ir i fasi. Konur notfæra sér oft þetta venjubundna hlutverk karl- mannsins. Þær hafa e.t.v. til- hneigingu til að hlaupa til hans i hvert sinn, sem eitthvað fer af- laga — hvort sem um er að ræða hagnýt vandamál eða önnur, og ætlast til að maðurinn taki á sig ábyrgðina. Erfitt er að brjóta þessar venjur á bak aftur. Það er miklu erfiðara fyrir karlmann að vera heima og gæta bús og barna, en fyrir konu að fara út i atvinnulifið. Hann getur ekki tekið að sér hálfsdagsvinnu án þess að til árekstra komi — Þú ert karlmaður, þú átt að komast áfram i lifinu. Til að verða við þeim kröfum, sem gerðar eru til þeirra, velja margir karlmenn að helga sig al- gjörlega starfi sinu. Margir verða haldnir streitu, vanrækja konu og börn — og sjálfa sig lika. Þeir menn eru þó til, sem leiðist að vera stórir og sterkir alla tið. Mörgum finnst erfitt að bera einir ábyrgð á fjárhagsafkomu fjöl- skyldunnar og þeim er iþyngt af að þurfa að taka allar mikilvægar ákvarðanir á heimilinu. Margir karlmenn fagna uppreisn kon- unnar, þvi hún kann að losa þá við helminginn af ábyrgðinni. Margar konur telja karlmenn ekki skilja tilfinningar þeirra. En grundvöllur tilfinningalifs karla og kvenna er lagður með ólíkum hætti allt frá bernsku. Piltar og stúlkur hljóta ólikt uppeldi. Stúlk- ur keppastum hver þeirra er bezt að leika konu: hver sé sætust, hver eigi fallegustu föt o.s.frv. Þær fá brúður til að leika sér með, svo þær eru ekki andartak i vafa um hvað biði þeirra þegar Karlmenn eiga að sýna s.iálfsstjórn.I>eir eiga aö „herða sig upp.” Þeir eiga alltaf að vera stórir og sterkir. Þeir eiga að ná frama, og á þeim hvilir mest ábyrgð. Þeir geta ekki ráðið sig i hálfsdagsvinnu, — eða verið heima og gætt bús og barna, ef þá langar til. Karlmaður á ekkert val. Hiutverkaskipti kynjanna er ekk- ert grin, — ekki heldur hvað karlmanninn snertir. Paul Moxnes sjálfræðingur þær stækka: að giftast, hugsa um börn og heimili. Piltar keppa á öðrum vettvangi. Þeir fá mekkanó í afmælisgjöf og Iþróttaútbúnað í jólagjöf. Með öðrum orðum, þeirra staður er íþróttavöllurinn, þeir eiga að hafa áhuga á tækni. Ef eitthvað veitist erfitt læra drengirnir að „bita á jaxlinn” og fara ekki að gráta, meðan stúlkum leyfist að vera svolitið aumar. Arangurinn kann að verða sá, að piltar bæli niður tilfinningar sinar siðar i lif- inu. En hér skulum við spyrja sér- fræðing álits. — Það er rétt að karlmenn sýna siður tilfinningar sinar en konur, segir Paul Moxnes sál- fræðingur. T.d. er munur á hvernig konur og karlar láta i ljósi hræðslu. Svo virðist sem konur þori oftar að sýna að þær séu hræddar, en karlmenn hafi meiri tilhneigingu til að fela ótt- ann að baki yfirborðsmannaláta. Máltækið að taka þessu eða hinu karlmannlega endurspeglar þessa hreystimennskuafstöðu. En að taka hlutunum eins og maður, merkir oft aðeins að bæla niður óttann. Það má m.a. gera með þvi að spenna vöðvana. Fleiri karlar en konur bregðast þannig við ef þeir verða hræddir eða óöruggir — þeir spenna vöðvana svo þeir mynda e.k. likamlega brynju. Þannig verður til hermannlegt, ■hreystilegt fas þeirra — þeir herða sig upp, gera sig sterka og tilfinningalausa. — Getur slik karlmennska breytzt i tilfinningakulda þegar timar liða? — Ekki endilega Karlmenn eiga sér auðvitað tilfinningar, en svo virðist sem þeir gefi þeim sjaldnar lausan tauminn en konur, og sýni sjaldnar að þeir láti mótlæti á sig fá. Þetta kemur m.a. fram i sálfræðilegum próf- um, svo sem Rorschackprófinu, sem er þannig að manninum eða konunni er sýnd afstrakt mynd og hann eða hún beðin að segja af hverju hún sé. Konur tengja til- finningar i rikari mæli myndefn- inu og láta það i ljós. En karl- menn blanda tilfinningum ekki svo mjög i prófið. Þeir sjá hvers- dagslegri atriði út-úr myndinni. En hins vegar eru þeir oft spennt- ari en konurnar meðan á prófinu stendur. Þeir láta bara ekki til- finningarnar koma upp á yfir- borðiö. — Hvetja konur karla til að vera stórir og sterkir? — Já, oft gera þær það. Og segja má að konan hagnist að vissu leyti á þvi að leika sitt arf- bundna hlutverk. Ef hún læzt vera veik og skirskotar til þess

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.