Fréttablaðið - 30.08.2004, Blaðsíða 48
30 30. ágúst 2004 MÁNUDAGUR
Ný byggð rís innan
um sumarbústaðina
Til skamms tíma leituðu Reykvík-
ingar kyrrðar og næðis uppi við
Elliðavatn þegar þeir kusu að
komast út úr ys og þys borgarinn-
ar. Sumir áttu þar sumarbústaði
sem þeir vitjuðu í fríum, einfalda
eða íburðarmikla er kúrðu í frið-
sælum skógarrjóðrum eða spegl-
uðu sig í vatnsfletinum. Aðrir
bjuggu þar allt árið og stunduðu
jafnvel smábúskap. Hestamenn
höfðu helgað sér reiðleiðir um
svæðið og útivistarfólk átti þar
margt sporið.
Þetta er liðin tíð. Á nokkrum
mánuðum hefur umhverfi vatns-
ins tekið ótrúlegum stakkaskipt-
um og byggingar risið, bæði stór-
ar og smáar. Kranana ber hvar-
vetna við loft og allsstaðar eru
verkamenn, iðnaðarmenn og eig-
endur að störfum. Margir hús-
byggjendur ætla sér örugglega að
flytja inn fyrir veturinn, að
minnsta kosti fyrir jól. Innan
skamms verða öll húsin orðin full
af fólki og þar sem göngufólk og
gæðingar þræddu áður moldar-
götur verður tiplað um stein-
steyptar stéttar á háum hælum.
Það eina sem er eins og það var er
vatnið. ■
Hér er verið að byggja tvö tveggja hæða hús við Fannahvarf sem snúa upp og niður
brekkurnar. Sex íbúðir verða í hvoru.
Nýju húsin standa þétt og eru afar fjölbreytileg að gerð og lögun. Bjálkahús, steinsteypa, einnar hæðar hús og tveggja hæða.
Allt í bland.
Stórt og smátt.
Malbikun í gangi.
Hverfið nýtur áhuga sumarbústaðaeigenda á skógrækt. Fjær er annað hverfi í upp-
byggingu.
Hér er búið að malbika og það er nú gott fyrir hjól barnavagnsins.
Við Fellahvarf eru þriggja hæða hús á lokastigi. Íbúar á tveimur efri hæðunum eiga
að geta horft út á vatnið yfir þök tveggja hæða raðhúsa. Gler í svalaveggjum auð-
veldar það. Á bak við eiga grunnskóli og leikskóli að rísa.
Fjölbreyttir stílar í byggingarlistinni.
Þar sem áður var lyngmói er nú lagður
grunnur að fjölbýli.