Fréttablaðið - 30.08.2004, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
ÓKEYPIS FARTÖLVUTRYGGING*
* Vátryggjandi er Sjóvá-Almennar.
Láttu ekki fjármálin flækjast fyrir flér í náminu. fiú getur skrá› flig í
Námsmannafljónustuna í öllum útibúum Íslandsbanka e›a á isb.is.
SKRÁ‹U fiIG STRAX!
Vi› bjó›um VERNDARANN velkominn í Námsmannafljónustuna
og bendum á gó›a kosti sem honum fylgja:
Ath. sértilbo› hjá Apple, Odda og Tölvulistanum. Gengi› frá láninu á sta›num í völdum verslunum.
HAGSTÆTT TÖLVUKAUPALÁN
... og margt, margt fleira.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
0
3
1
6
Frá framlei›endum Vekjarans, Flettarans og Skemmtarans kemur N†JUNG Í NÁMI:
Bílskúr
og brunnar í
Afríku
Hann sat í sólinni á pallinum viðinnflutta einbýlishúsið sitt og
sagði við mig: Eina vandamálið er allt
þetta dót. Við erum alltaf að kaupa
nýtt dót. Ég er ekkert betri en konan.
Verri ef eitthvað er. Ég er alveg veik-
ur fyrir nýju dóti. Við eigum peninga,
skilurðu. Höfum það fínt. Nema það
safnast upp gegnum lífið, allt þetta
dót. Og bílskúrinn var orðinn fullur af
dóti. Bílarnir komust ekki lengur inn.
HANN HLÓ. Samt lét hann þetta
hljóma eins og stærsta vandamál lífs
síns.
EN HANN hafði reyndar fundið
lausn á vandamálinu með dótið, og
ljómaði af ánægju þegar hann hélt
áfram: Ég sá auglýstan bílskúr til
sölu, að vísu í öðrum borgarhluta, en
ég keypti hann umsvifalaust. Svo flut-
ti ég allt dótið úr gamla bílskúrnum í
nýja bílskúrinn! Frábær lausn. En
veistu hvað! Nú er gamli bílskúrinn
aftur að fyllast af dóti svo ég kem bíl-
unum ekki lengur inn. Líklega verð
ég að fá mér þriðja bílskúrinn.
BANDARÍSKI rithöfundurinn John
Steinbeck sagði: Ef ég vildi eyði-
leggja þjóð, mundi ég gera það með
því að gefa henni of mikið af öllu og
innan skamms væri hún orðin sýkt,
gráðug, aumingi inn í merg.
ER EKKI RÉTT að meta stöðuna?
Bílskúrarnir eru fullir af dóti. Bank-
arnir auglýsa í kapp lán fyrir sólpöll-
um, sundlaugum, utanlandsferðum og
öllu sem hugurinn girnist. Börn á
grunnskólaaldri eru í sigti markaðs-
deilda stórfyrirtækjanna. Blóðbað
tölvuleikja og bandarískir ruslþættir
eru sá veruleiki sem mörg börn alast
upp í. Og nú er góðæri og allir safna
skuldum, nema hinir ofsaríku sem
verða alltaf ríkari og ríkari. Og allt
snýst um peninga, um dót. Með sama
áframhaldi verðum við dótafólk í
dótalandi. Inn í merg.
SÍÐUSTU ÁR hafa meira snúist um
umbúðir en innihald. Þetta hefur verið
ósköp innantómt og svæfandi. En nú er
eins og margt sé að vakna samtímis.
Ungan mann hitti ég á dögunum, sem
hefur sett sér að grafa hundrað brunna
í Afríku. Hann eignast líklega aldrei
bílskúr og þar með aldrei dót til að
fylla bílskúrinn með, en ég gæti trúað
að hundrað brunnar í Afríku færi meiri
gleði en margir bílskúrar af dóti.
HRAFNS JÖKULSSONAR
BAKÞANKAR