Fréttablaðið - 07.09.2004, Page 31

Fréttablaðið - 07.09.2004, Page 31
Þegar ég las grein Valgerðar Bjarnadóttur um jafnréttismál spurði ég mig þeirrar spurningar hvort einhver karlmaður myndi taka umræðu alvarlega þegar setn- ingar eins og „gjammandi stráka- hvolpar“ og fleira í þeim dúr dynur á karlpeningnum. Nei, þá umræðu get ég ekki tekið alvarlega og bendi bæði sárum framsóknarkonum og Valgerði á að varla nái þær mark- miði sínu með slíkum málflutningi. Vil taka það fram að reiði ykkar skil ég vel og þykir mér sárt til þess að hugsa að konur og karlar skuli ekki fá sömu laun fyrir sömu vinnu og tveir einstaklingar skuli ekki vera metnir á sama grundvelli. En, þetta vandamál snýr ekki bara að konum því við karlmennirnir þekkjum þetta líka, eins og þið munduð átta ykkur á ef þið mynduð aðeins staldra við og íhuga það sem við karlmennirnir þurfum að kljást við. Skilnaðir eru eins og allir vita allt of algengir hér á landi. Þegar sá sorgaratburður ber að dyrum er ekki horft til jafnréttis heldur hefða. Við karlmenn (flestir held ég) göngum með þá grillu í höfðinu að við séum jafn hæfir til barna- uppeldis og konur. Í flestum tilfell- um (96%) fá konur forræði barna okkar og þurfum við í flestum til- vikum að finna nýtt húsnæði og koma fótum undir okkur upp á nýtt. Sá sársauki sem skapast við skilnað frá makanum bliknar við hliðina á þeim sársauka sem skapast við skilnað við barnið/börnin. Þegar feður fá ekki að umgangast börn sín eins og mannlegar verur heldur eins og fanga aðra hverja helgi þá stoppar maður og hugsar, hver gerir svona? Þessum tímum milli feðra og barna þeirra er úthlutað af konum hjá sýslumannsembættinu nái foreldrar ekki samkomulagi og búa þessir úrskurðir til ákveðnar hefðir sem ættu að vera löngu út- dauðar. Séu feður ósáttir við úr- skurðinn geta þeir kært hann til þriggja kvenna sem starfa í dóms- málaráðuneyti. Jafnrétti? Varla. Lítum aðeins á hvernig þetta er með barnalífeyri. Reglugerð er samin í dómsmálaráðuneyti og hún þjónar þeim eina tilgangi að úr- skurða meðlagsgreiðendum að greiða meira en segir í landslögum um þann barnalífeyri sem reikn- aður er út til framfærslu barns. Reglugerðin er samin af konum (að ég held) í ráðuneytinu og því miður samþykkt af Alþingi. Úrskurðarað- ilar um þennan umframlífeyri eru þessar sömu konur og úthluta feðrum fjórum dögum í mánuði með börnum sínum. Að vísu geta meðlagsgreiðendur kært til áður- nefndra kvenna sem starfa í dóms- málaráðuneytinu og eru sennilega höfundar reglugerðarinnar. Á síðari tímum virðist þessi umfram- lífeyrir ekki snúast um þarfir barnsins heldur snýst hann um hvað meðlagsgreiðandi er með í brúttólaun. Ef horft er á tölur síðustu ára sér maður barnalíf- eyrisgreiðslur sem eru svo út úr korti að karlmenn þurfa hreinlega að vinna eins og skepnur til þess að standa undir þeim. En miðað við að faðirinn fái einungis að vera með börnum sínum 4 daga í mánuði getur hann jú unnið. Ekki veit ég stefnu þessara (ör- ugglega) ágætu kvenna en eitt er víst að hér er ekki jafnrétti á ferð og virðast konur flokka sig sem „betra kynið“ í þessum málaflokki. Viðurkenni fáfræði mína, veit ekki konur góðar hvort báráttan snúist um jafnrétti með forréttindum. Hvet ykkur til þess að skoða þessi mál og setja ykkur í þau spor að fá að rugga barni ykkar til svefns fjóra daga í mánuði og á sama tíma greiða barnalífeyri (meðlag) sem hljómar upp á 24-40 þús. á mánuði því konur hjá sýslumanni og dóms- málaráðuneyti tóku sér það leyfi að ákveða hvernig launum ykkar skyldi ráðstafað.Er það skoðun mín að á meðan barnauppeldi og með- lagsgreiðslur eigi að stjórnast af öðru kyninu verði róðurinn erfiðari á öðrum sviðum þjóðfélagsins fyrir það kynið. Tel að jafnréttið byrji inni á heimilinu og þar sé mótun framtíðarhugsana barna okkar. ■ Í síðustu viku var kynnt skýrsla nefndar á vegum viðskiptaráð- herra um íslenskt viðskiptaum- hverfi. Nefndinni voru ætluð tvö meginhlutverk; annars vegar að fjalla um hvernig bregðast mætti við aukinni samþjöppun í íslensku viðskiptalífi og hins vegar að ræða með hvaða hætti þróa ætti reglur þannig að viðskiptalífið væri skilvirkt og nyti trausts. Í hugmyndum nefndarinnar um uppskiptingu Samkeppnisstofn- unar eygi ég tækifæri til að gera langþráðan draum um umboðs- mann neytenda loks að veruleika. Enginn vafi leikur á að það gæti orðið til þess að efla starf að neyt- endavernd hérlendis verulega. Tillögur sem fram koma í skýrslunni sýnist mér eðlilegar og til bóta enda virðist breið samstaða um þær þótt sumir hagsmuna- aðilar gagnrýni einstök atriði. Ekki verður sagt að tillögurnar séu rót- tækar, nema helst þær sem lúta að starfsemi Samkeppnisstofnunar. Sem stendur er samkeppnis- eftirlit veigamesti þátturinn í starfi Samkeppnisstofnunar. En Samkeppnisstofnun gegnir líka mikilvægu hlutverki á neytenda- sviði við að framfylgja ákvæðum samkeppnislaga um óréttmæta viðskiptahætti og neytendavernd auk nokkurra sérlaga um neyt- endavernd. Því hefur Samkeppn- isstofnun verið skipt upp í tvö svið, samkeppnissvið og neyt- endasvið. Auk þess sinnir stofn- unin eftirliti með verðmerkingum og upplýsingamiðlun með verð- könnunum. Tillögur nefndarinnar gera ráð fyrir að neytendasviðið og síðastnefndu verkefnin verði færð frá Samkeppnisstofnun og að stofnunin sinni upp frá því ein- göngu samkeppniseftirliti. Um leið verði samkeppniseftirlitið eflt og það yrði fagnaðarefni. En nefndin gerir engar tillögur um hvernig skuli farið með þá mála- flokka sem lúta að neytendavernd í framtíðinni. Og þessi þáttur hefur orðið að afgangsstærð í allri umfjöllun um skýrsluna. Það er ómaklegt að mínu mati. Neytenda- vernd er ekki bara mikilvæg fyrir okkur neytendur heldur gegnir hún einnig mikilvægu hlutverki við að stuðla að heilbrigðu at- vinnulífi. Rétt er að taka fram að ég er síður en svo andvígur því að þessi verkefni verði færð frá Samkeppn- isstofnun. Neytendasamtökin hafa ítrekað ályktað að skipta eigi Sam- keppnisstofnun upp, meðal annars vegna þess að starf við samkeppn- iseftirlit annars vegar og neyt- endavernd hins vegar fer að mörgu leyti illa saman. Mér er þó ekki sama um hvar neytendavernd lendir í kerfinu. Unnt er að skipa málum á þann veg að neytenda- verndin fái lægri sess en áður, en að sama skapi má gera þetta með þeim hætti að neytendavernd öðlist hærri sess eins og henni raunar ber. Þar á almenningur mikil- vægra hagsmuna að gæta. Neytendasamtökin hafa ítrek- að hvatt til að stofnað verði hér á landi embætti umboðsmanns neytenda eins og frændþjóðir okkar á öðrum Norðurlöndum gerðu fyrir löngu við góðan orðstír. Það hefur verið sann- færing okkar að þannig yrði hag neytenda betur borgið og neyt- endavernd gert hærra undir höfði í stjórnkerfinu. Það er engin til- viljun að þegar þjóðir Evrópu og raunar fleiri líta til þess hvernig neytendavernd sé best hagað horfa langflestir til frændþjóða okkar á Norðurlöndum þar sem umboðsmaður neytenda gegnir mikilvægu hlutverki á markaðn- um. Reyndar hafa frændur okkar á Norðurlöndum einnig öflugar neytendastofnanir sem renna enn styrkari stoðum undir starf að neytendavernd. Skipulag þessara stofnana er mismunandi. Í Danmörku og Noregi eru embætti umboðs- manns sjálfstæð en starfa í sama húsnæði og neytendastofnanir og njóta hagræðis af sameiginlegum skrifstofurekstri. Í Svíþjóð og Finnlandi stýrir umboðsmaðurinn öflugum neytendastofnunum. Að sjálfsögðu þurfum við að sníða okkur stakk eftir vexti. Það væri draumórakennt að halda að við getum byggt upp jafn öflugt neytendastarf og norrænir frænd- ur okkar gera, þótt vissulega væri þörf á því. Því væri heppilegasta leiðin að okkar mati sú að nota tækifærið, setja á laggirnar em- bætti umboðsmanns neytenda og fela því þau verkefni sem neyt- endasvið Samkeppnisstofnunar sinnir nú. Jafnframt kemur mjög vel til greina að fara sömu leið og Svíar og Finnar, það er að byggja upp neytendastofnun undir stjórn umboðsmanns. Undir þessa stofnun myndu falla önnur verk- efni sem Samkeppnisstofnun sinnir í dag og á að flytja þaðan, svo sem eftirlit með verðmerkingum og gerð verðkannana. Auk þess væri æskilegt að flytja lítinn hluta af starfsemi Löggildingarstofu til þessarar nýju stofnunar en það er eftirlit með öryggi neysluvara. Það hefur lengi verið sjónar- mið Neytendasamtakanna að við eigum að leita fyrirmynda á öðrum Norðurlöndum þegar kem- ur að neytendamálum og neyt- endavernd. Eins og nefnt var hér að framan er neytendavernd í þessum löndum almennt talin í fremstu röð og því ekki leiðum að líkjast. Að mínu mati yrði það mikið heillaspor ef við notuðum væntanlega uppstokkun Sam- keppnisstofnunar til að styrkja starf að neytendavernd hér á landi. Framangreindar hug- myndir ganga einmitt út á það. ■ 23ÞRIÐJUDAGUR 7. september 2004 Neytendasamtökin hafa ítrekað hvatt til að stofnað verði hér á landi embætti umboðsmanns neytenda eins og frænd- þjóðir okkar á öðrum Norðurlöndum gerðu fyrir löngu við góðan orðstír. Umboðsmaður neytenda - nú er lag JÓHANNES GUNNARSSON FORMAÐUR NEYTENDASAMTAKANNA UMRÆÐAN UMBOÐSMAÐUR NEYTENDA OG NEYTENDAVERND ,, UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS Hlíðasmára 9 - Kópavogi AUGLÝSINGATÆKNI Helstu námsgreinar: Næstu námsskeið: - frá hugmynd að fullunnu verki Þetta námskeið, að öðrum ólöstuðum, hefur hlotið einróma lof nemenda í þau átta ár sem það hefur verið kennt hjá NTV. Hér er um að ræða hagnýtt nám fyrir þá sem hafa þörf fyrir tölvutæknina við hönnun mismunandi kynningarefnis fyrir flesta miðla. Námið er bæði fjölbreytt, skemmtilegt og krefjandi. Öll fög eru kennd frá grunni. Eftir námskeiðið ættu nemendur að geta komið frá sér hugmyndum sínum á tölvutæku formi þannig að frágangur allra verka sé réttur hvort sem það er fyrir offsetprentun, dagblöð, Internetið eða aðra miðla. Þröstur Skúli Valgeirsson - Kynningarfulltrúi Vesturfarasetursins Síðdegisnámskeið Þriðjudaga & fimmtudaga 13-17. Byrjar 14. sept. og lýkur 16. des. Kvöldnámskeið Mánudaga og miðvikudaga frá 18-22. Byrjar 13. sept og lýkur 15. des. Mismunandi gerðir kynningarefnis Teikning með Illustrator CS Myndvinnsla með Photoshop CS Vefauglýsingar með ImageReady CS Meðhöndlun lita Meðferð leturgerða - Týpógrafía Frágangur prentverka Vettvangsheimsóknir „Ég hlakkaði alltaf til að fara í skólann því það var alltaf eitthvað nýtt og spennandi í hverjum tíma. Auk þess er ég mun öruggari í samskiptum við alla sem taka við auglýsingum frá mér sama hvort það er fyrir dagblöð, tímarit eða netið...“ Er það skoðun mín að á meðan barna- uppeldi og meðlagsgreiðslur eigi að stjórnast af öðru kyninu verði róðurinn erfið- ari á öðrum sviðum þjóð- félagsins fyrir það kynið. OTTÓ SVERRISSON BARÁTTUMAÐUR FYRIR JAFNRÉTTI UMRÆÐAN JAFNRÉTTIS- BARÁTTAN ,, Reiðar konur og framsóknarkonur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.