Fréttablaðið - 07.09.2004, Page 34
26 7. september 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Við dáumst að ...
.. dugnaði og hörku strákanna í ungmennalandsliðinu sem veiktust af
matareitrun um helgina. Þeir létu sig hafa það að ferðast sárþjáðir og
veikir til Ungverjalands og ætla allir að vera með í leiknum í dag. Það er
því ljóst að áhrifa Eyjólfs Sverrissonar er farið að gæta alls staðar í liðinu,
bæði innan vallar sem og utan hans.
„Við vildum sýna að við
værum með besta liðið.“
Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Íslandsmeistara
Vals í kvennafótbolta eftir 3–1 sigur á ÍBV í Eyjumsport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
4 5 6 7 8 9 10
Þriðjudagur
SEPTEMBER
Við hræðumst ...
... Haukahraðlestina í handbolta karla
fyrir hönd annarra liða í deildinni í
vetur. Það er margt sem bendir til þess
að Haukaliðið eigi eftir að safna
titlunum á Ásvöllum í allan vetur.
FÓTBOLTI Íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu skipað leikmönnum 21 árs
og yngri mætir í dag jafnöldrum
sínum frá Ungverjalandi í Búda-
pest í undankeppni Evrópumóts-
ins.
Leikurinn leggst þokkalega vel
í Eyjólf Sverrisson, þjálfara liðs-
ins, en tíu leikmenn hafa átt við
magaveiru að stríða síðustu daga.
„Það eru einhverjir slappir ennþá
en þeir eru að safna kröftum svo
þeir verði tilbúnir í leikinn,“ sagði
Eyjólfur í samtali við Fréttablaðið
í gær.
Svekkjandi
„Það er svekkjandi að lenda í
þessu og það verður ábyggilega á
brattann að sækja fyrir okkur.“
Eyjólfur segist lítið vita um ung-
verska liðið en átti þó von á mynd-
bandsupptöku af liðinu sem hann
hugðist kynna sér.
Íslensku strákarnir tóku aðeins
eina æfingu seinni partinn í gær
en frestuðu þeirri sem átti að vera
fyrir hádegi. U-21 árs liðið er
komið með þrjú stig í riðlinum
eftir glæstan sigur á Búlgörum í
síðustu viku. Eyjólfur segir sigur-
inn hafa verið góðan enda ár og
dagar síðan ungmennaliðið vann
leik.
Einfaldur bolti
„Strákarnir spiluðu einfaldan
bolta og gerðu það vel sem fyrir
þá var lagt,“ segir þjálfarinn sem
vonast til að sínir menn geti
haldið uppteknum hætti í Búda-
pest. Eyjólfur vildi ekki spá fyrir
um úrslit leiksins og segir liðið
heldur ekki vera búið að setja sér
markmið fyrir keppnina.
„Við erum ekki búnir að setja
okkur nein langtímamarkmið
heldur tökum bara einn leik fyrir
í einu. En við förum að sjálfsögðu
í alla leiki til að sigra,“ sagði
Eyjólfur.
„Þetta eru góðir strákar sem
spila allir með sínum aðalliðum.
Þeir eiga framtíðina svo sannar-
lega fyrir sér en eru enn að læra.
Á þessum tíma taka þeir stærstu
stökkin og sýna mestu framfar-
irnar.“ Leikurinn hefst klukkan
hálf þrjú í dag en á morgun
mætast A-lið þjóðanna.
kristjan@frettabladid.is
MARKI FAGNAÐ GEGN BÚLGÖRUM
Það er mikil stemning í íslenska lands-
liðshópnum skipað leikmönnum undir 21
árs aldri. Strákarnir unnu langþráðan sigur
á Búlgörum á dögunum og ætla ekki að
láta matareitrun hafa mikil áhrif á sig fyrir
leikinn gegn Búlgörum
Stefnum alltaf á sigur
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari 21 árs liðsins lætur ekki veikindi leikmanna sinna draga úr
markmiðum liðsins sem er að vinna sigur í Ungverjalandi í dag
■ ■ LEIKIR
19.15 Haukar og KA mætast á
Ásvöllum í Hafnarfirði í árlegum
úrslitaleik meistaranna og bikar-
meistaranna í meistarakeppni
karla í handbolta.
■ ■ SJÓNVARP
15.05 Trans World Sport á Stöð 2.
Umfjöllum um íþróttir út um allan
heim.
17.15 Olíssport á Sýn. Endurtekin
þáttur frá því í gær.
18.30 Trans World Sport á Sýn.
Umfjöllum um íþróttir út um allan
heim.
19.25 Meistaradeildin á Sýn.
Fréttir af leikmönnum og liðum í
Meistaradeild Evrópu.
19.5o Ryder-bikarinn á Sýn.
Kynning á komandi Ryder-bikar í
golfi þar sem lið Bandaríkjanna
og Evrópu mætast.
20.15 Toyota-mótaröðin á Sýn.
Umfjöllum um lokamótið á
Toyota-mótaröðinni í golfi sem
fram fór á Strandarvelli á Hellu
um síðustu helgi.
21.15 Beyond the glory á Sýn.
Skemmtilegur þáttur um mannin-
ng á bak við gulldrenginn Oscar
de la Hoya, margfaldan
heimsmeistara í boxi.
22.00 Olíssport á Sýn. Íþróttafréttir
dagsins bæði heima og erlendis.
HLUSTAÐ Á RÁÐ ÞJÁLFARANS Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen hlusta
á landsliðsþjálfarann Loga Ólafsson leggja línurnar fyrir Ungverjaleikinn.
HITAÐ UPP Í HITANUM Íslensku strákarnir sjást hér hita upp fyrir æfingu liðsins í gær sem var þó varla mikil þörf enda 30 stiga hiti og
heiðskýrt á meðan á æfingunni stóð í Búdapest í gær. Fréttablaðið/Kristján
A-landslið karla:
Heitt í
Búdapest
FÓTBOLTI Íslenska A-landsliðið í
knattspyrnu er búið að koma sér
vel fyrir í Búdapest þar sem liðið
mætir því ungverska í öðrum leik
sínum í undankeppni HM á
morgun.
Það er mjög heitt í
Ungverjalandi og var 30 stiga hiti
og glampandi sól meðan á æfingu
liðsins stóð í gær. Strákarnir létu
það þó ekkert á sig fá en notuðu
hvert tækifæri til þess að kæla sig
niður.
Íslenska liðið þarf nauðsynlega
á stigum á halda eftir tapið gegn
Búlgörum á heimavelli á
laugardaginn.
KÆLDUR NIÐUR Veigar Páll Gunnarsson
sturtar hér úr vatnsflösku yfir félaga sinn í
landsliðinu, Indriða Sigurðsson.