Fréttablaðið - 07.09.2004, Síða 42
Allir í dans..
Samkvæmisdansar
Para- og einstaklingshópar
Kántrý
Einkatímar
Saumaklúbbar
Fyrirtæki og lokaðir hópar
Salsa - Mambó og Tjútt
Skeifan 11.b
Húnabúð.
Innritun 1. - 10.sept.
Kennsla hefst sunnudaginn
12. september
Pör & Einstaklingar
14 vikur og ball.
Innritun daglega frá
kl. 13 - 19.
í síma:
565 4027
861 6522
www.dih.is | audurdans@simnet.is | DÍ. faglærðir kennarar.
Faglærðir
Danskennarar.
Auður Haralds Lizý Steinsd.
ReykjavíkKennt á sunnudögum.
34 7. september 2004 ÞRIÐJUDAGUR
FRÁBÆR SKEMMTUN
SPELLBOUND kl. 8 BOLLYWOOD/HOLLYWOOD kl. 8
SÝND kl. 5.20, 8 og 10.40SÝND kl. 4, 6, 8 og 10
SÝND Í LÚXUS kl. 4, 6, 8 og 10
SUPERSIZE ME kl. 6 CAPTURING THE FRIEDMANS KL. 10
COFFEE&CIGARETTES kl. 10
ÞEIR HEFÐU ÁTT AÐ LÁTA HANN Í FRIÐI
KING ARTHUR kl. 10.20 B.I. 14
THE VILLAGE kl. 8 B.I. 14
SHREK 2 kl. 4 M/ÍSL. TALINEW YORK MINUTE kl. 4 og 6
THE VILLAGE kl. 10 B.I. 14 GOODBYE LENIN kl. 5.40
SAVED! KL. 6
SÝND kl. 4 og 6 M/ÍSLENSKU TALI
SÝND kl. 4, 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI
YFIR 25000 GESTIR
Ein besta ástarsaga allra tíma
Myrkraöflin eru með okkur!
Mögnuð ævintýraspennumynd!
SÝND kl. 4, 6, 8 og 10.10 B.I. 14
GAURAGANGUR Í SVEITINNI kl. 3.50 & 6 M/ÍSL.
CATWOMAN kl. 8 og 10.20
SÝND kl. 8 & 10 SÝND kl. 6 & 8
HHH -
Ó.H.T. Rás 2
HHH Ó.H.T. Rás 2
HHHH S.V. Mbl.
HHH DV HHH Kvikmyndir.com
SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 14
SÝND Í LÚXUS VIP kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20
HHH Ó.H.T. Rás 2
HHHH S.V. Mbl.
HHH DV
HHH Kvikmyndir.com
Frá leikstjóra Dude Where Is My Car
kemur steiktasta grínmynd ársins.
THUNDERBIRDS SÝND kl. 4, 6, 8 og 10.10
ððð
Girl Next Door Forsýning kl. 8
SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 14
SÝND kl. 10.40 B.i. 14
Dís er ferlega hress og skemmti-
leg stelpa sem fór létt með að
selja rúmlega tíu þúsund eintök af
bókinni sem þær Birna Anna
Björnsdóttir, Oddný Sturludóttir
og Silja Hauksdóttir sendu frá sér
árið 2000. Silja hefur nú lagað
Reykjavíkurævintýri Dísar að
hvíta tjaldinu og útkoman er það
vel heppnuð að Dís ætti að gera
góða hluti í miðasölunni rétt eins
og í bókabúðunum.
Dís er 23 ára Reykjavíkurmær
sem þarf rétt eins og allir aðrir á
hennar aldri að glíma við rótleysi
áranna milli tvítugs og þrítugs,
ástina og allt hitt bullið sem er
ómissandi í þroskaferli hverrar
manneskju.
Það leynir sér ekkert að hand-
rit myndarinnar er unnið upp úr
skáldsögu og að það hefur líklega
oft vafist fyrir höfundunum
hverju þeir ættu að sleppa úr
skáldverki sínu og hverju þeir
ættu að leyfa að halda sér á hvíta
tjaldinu. Þetta gerir það óhjá-
kvæmilega að verkum að nokkur
losarabragur er á myndinni sem
er í raun runa af misfyndnum og
skemmtilegum atriðum sem
mynda frekar veika heild.
Dís skilur því ekki mikið eftir
sig en er hins vegar fyrirtaks
skemmtun og þar sem Íslending-
um er ekkert sérstaklega lagið að
gera skemmtilgt bíó er ekki hægt
að segja annað en að Dís sé
himnasending.
Skemmtilegar persónur og
skondnar uppákomur eru aðall
myndarinnar sem fær fólk oft til
þess að skella upp úr. Álfrún
Helga er ákaflega sjarmerandi í
titilhlutverkinu og er dyggilega
studd af öðrum leikurum. Árni
Tryggvason er traustur að vanda,
Þórunn Erna Clausen gerir
Möggu að skemmtilega óþolandi
týpu og Gunnar Hansson leikur
sér að því að túlka hinn óþolandi
væmna kærasta Dísar, kokkinn
Jón Ágúst. Stjarna myndarinnar
er þó, að öðrum ólöstuðum, Ilmur
Kristjánsdóttir sem brillerar sem
Blær, besta vinkona Dísar. Ilmur
nýtur þess vissulega að hlutverk-
ið er skrifað með hana í huga og
nýtir sér það í ystu æsar að vinna
með þessa skemmtilegu persónu.
Dís er engin snilld en alveg
þrælskemmtileg ræma og þó
ungar stúlkur séu miðpunktur
myndarinnar er þetta ekkert
frekar stelpumynd en til dæmis
Bridget Jones. Hér er einfaldlega
á ferðinni þægileg gamanmynd
fyrir alla.
Þórarinn Þórarinsson
Ekki bara fyrir stelpur
DÍS
LEIKSTJÓRI: SILJA HAUKSDÓTTIR
AÐAHLUTVERK: ÁLFRÚN HELGA ÖRNÓLFS-
DÓTTIR, ILMUR KRISTJÁNSDÓTTIR, ÁRNI
TRYGGVASON
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
Leikkonan CharlizeTheron jafnar sig
nú af hálsmeiðslum á
heimili sínu í Los
Angeles eftir að hafa
slasað sig á tökustað
kv ikmyndar innar
Aeon Flux. Myndin er
gerð eftir teikni-
myndaseríu sem var
vinsæl á MTV-sjónvarpsstöðinni á
síðasta áratug. Theron meiddist á hálsi
en meiðslin voru ekki það alvarleg að
hún þyrfti á spítalavist að halda. Ther-
on hefur sjálf séð um áhættuatriðin í
myndinni, en hefði greinilega betur
sleppt því.
Mótmælendur alþjóðavæðingarreyna nú hvað þeir geta til þess
að trufla kvikmyndahátíðina í Fen-
eyjum. Þegar Steven Spielberg og
Tom Hanks mættu á
svæðið til þess að
kynna nýjustu mynd
sína, The Terminal,
á miðvikudaginn
síðasta mættu mót-
mælendur á bíl sem
búið var að skreyta
sem sjóræningjaskip
og flautuðu í sífellu.
Lögreglan mætti ásvæðið þegar
söngkonan Beyoncé
Knowles hélt á dög-
unum upp á 23 ára
afmæli sitt upp á
þaki Soho House-
hótelsins í New York
um helgina. Þar
hafði hún boðið um
100 vinum sínum en fagnaðarlætin
urðu víst aðeins of mikil. Á meðal
þeirra sem var boðið voru Naomi
Campbell, Kelly Rowland og
Michelle Williams. Þau kunna
greinilega að skemmta sér því ná-
grannarnir þoldu ekki hávaðann í
þetta skiptið, þó svo að þarna séu
haldnar veislur um hverja helgi.
Dagur í Svíþjóð er heiti á ljós-
myndasýningu sem stendur yfir í
Perlunni. Sýningin er afrakstur
stærsta ljósmyndaverkefnis Svía
fyrr og síðar. Verkefnið er þríþætt
og skiptist í ljósmyndasýningu,
ljósmyndabók og gjöf ljósmynda
til sænska þjóðskjalasafnsins.
Þann 3. júní árið 2003 tóku ljós-
myndarar rúmar milljón myndir
fyrir verkefnið. Ljósmyndararnir
gátu sent allt að tíu myndir.
Ástæðan fyrir því að 3. júní var
valinn til verksins var sú að veð-
urfræðingur hafði bent á að 3.
júní væri einn sólríkasti dagur
ársins. Þó er mikil breidd í veður-
fari þennan dag, þar sem snjór er
enn í fjöllum norðanlands á
meðan sumarið er í fullum blóma
sunnanlands.
Sýningin, og bókin, er mynd af
Svíþjóð og Svíum tekin af bestu
ljósmyndurum landsins í dag. Í
tengslum við útgáfu bókarinnar
og sýninguna voru nærri 24.000
myndir gefnar Sænska þjóð-
skjalasafninu. Þær voru gjöf frá
sænskum ljósmyndurum til
komandi kynslóða. ■
Írski Íslandsvinurinn Damien Rice
heldur tónleika á NASA þann 23.
september næstkomandi. Síðast
þegar hann lék þar, í mars síðast-
liðnum, var troðfullt út að dyrum
og óhætt að segja að tónleikarnir
hafi verið stórkostlegir.
Í þetta skiptið mætir hann með
söngkonunni Lisu Hannigan sem
syngur í nokkrum lögum á frum-
raun hans, O, frá því í fyrra.
Tónleikarnir komu skyndilega
upp á, að sögn Kára Sturlusonar tón-
leikahaldara, en Damien sendi hon-
um SMS-skeyti á föstudaginn síð-
asta þar sem hann spurði hvort
hægt væri að setja upp tónleika með
stuttum fyrirvara. Ástæðan fyrir
komu hans hingað mun einungis
vera sú að hann langar til þess að
eyða smá tíma á eyjunni okkar.
Síðast seldist upp á augabragði og
margir svekktir að ekki hafi verið
haldnir aukatónleikar þá. Nú gefst
þeim annað tækifæri sem létu kapp-
ann renna fram hjá sér síðast. ■
Gjöf til komandi kynslóða
DAMIEN RICE Ætlar að koma hingað til
þess að njóta lands og þjóðar. Vildi endi-
lega setja upp eina tónleika í leiðinni.
Damien Rice snýr aftur
FRÉTTIR AF FÓLKI ■ LJÓSMYNDIR
■ TÓNLIST
» BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ Á ÞRIÐJUDÖGUM