Fréttablaðið - 12.09.2004, Qupperneq 25
„Aðalatriðið er að verkin birti þau
tengsl sem eru á milli skapandi
listamanns og samfélagsins,“ segir
grænlenska listakonan Isle
Hessner. Sýning á verkum Isle
stendur nú yfir í Listasafni
Sigurjóns á Laugarnestanga.
Þegar hún er beðin um að út-
skýra þessa afstöðu segir hún: „Ég
er hálfgrænlensk og hálfdönsk, svo
ég vinn út frá tveimur grunnum. Ég
reyni að sætta grænlenskar og
danskar rætur í verkum mínum. Val
mitt á efni á sér forsendur í evr-
ópskum rótum en hefðir og tækni
og innihald eru tengdari Grænlandi.
„Fígúran,“ hvort heldur er maður
og dýr, sem og mannsandlitið eiga
sér langa hefð í grænlenskri mynd-
list. Ég hef mikið unnið með þessar
„fígúrur“ og í nýjustu verkunum er
viðfangsefnið meðal annars manns-
myndin. En um leið og ég er meðvit-
uð um fortíðina, hvort sem hún var
fyrir tíu mínútum eða löngu síðan,
geri ég mér þó grein fyrir því að ég
er hluti af nútímanum.
Áður en ég fór í skóla í Banda-
ríkjunum var ég mjög upptekin af
fortíðinni. Meðan á námi mínu þar
stóð sá ég hins vegar hversu mikil-
vægt það er að vera meðvitaður um
nútímann og verk mín eru núna
farin að endurspegla hann meira.
Meðal annars velti ég fyrir mér
hvaða áhrif myndirnar hafa á mig,
þig, Grænlendinga og Bandaríkja-
menn og listsköpun mín hefur verið
að þróast í naumhyggjuátt.“
Sundraðar tilfinningar
Isle er talin einn helsti brautryðj-
andi grænlenskrar nýlistar og hafa
verk hennar ávallt vakið mikla
athygli þar sem þau hafa verið
sýnd. Sýning hennar í Listasafni
Sigurjóns ber heitið Mánasigð og
eru öll verkin gerð á þessu ári.
„Meginhugmyndin í verkum
mínum á sýningunni hér er sprottin
af sundrungu. Sundraðar tilfinning-
ar, fyrirætlanir, athafnir og ekki síst
tungutak eru einkennandi fyrir það
nútímasamfélag sem við lifum í. Við
lifum svo margskiptu lífi, til dæmis
fjölskyldulífi, vinnulífi og frítíma-
lífi. Við lifum ekki bara sundruðu
ytra lífi, heldur einnig því innra.
Þar sem verk mín endurspegla á
hverjum tíma þann veraldlega og
andlega raunveruleika sem ég lifi í
eru þau ótvírætt mótuð af þessum
straumum.“
Isle er fædd í Nanortalik á
Grænlandi og ólst þar upp til tíu ára
aldurs. Þá flutti hún til Danmerkur
þar sem hún bjó til 24 ára aldurs er
hún flutti aftur til Grænlands. Þar
hefur hún búið síðan að undanskild-
um árum sem hún hefur verið er-
lendis við nám, meðal annars
í Reykjavík, Kaupmannahöfn,
Helsinki, Nova Scotia í Kanada og
Colorado í Bandaríkjunum. Hún
segir hinn ríkulega grænlenska
sagnaheim hafa haft mótandi áhrif
á sig og það hafi best komið í ljós
þegar hún var við nám í Kanada.
Sagnahefðin
„Þar fengum við oft það verkefni að
vinna út frá menningarhefðum
okkar,“ segir Isle, „og ég man sér-
staklega eftir einu slíku þar sem ég
vann út frá sögu um tvær gamlar
konur sem voru alltaf að rífast. Þær
voru elstu meðlimir tveggja fjöl-
skyldna sem bjuggu á sama stað og
þurftu hvor á annarri að halda til
þess að komast af við óblíðar að-
stæður. Eitt sinn gerði svo mikla
óáran að fjölskyldurnar þurftu að
yfirgefa staðinn þar sem þær höfðu
búsetu. Höfuð fjölskyldnanna sögðu
gömlu konunum að þær yrðu
skildar eftir. „Þið rænið okkur allri
orku með þessu stöðuga ósætti
ykkar og rifrildi,“ sögðu þeir. Þær
áttu engra kosta völ. Þær urðu að
vinna saman til þess að komast af.
Smám saman lærðu þær að meta
hæfileika og eiginleika hvor hjá
annarri og sáu að þær bættu hvor
aðra upp.
Það er grundvallarboðskapur í
þessum sögum eins og í flestum
grænlenskum sögum. Ástæðan er sú
að í gegnum aldirnar hefur verið
erfitt að komast þar af og fólk þurft
að vinna saman, finna leiðir til þess
að lifa saman í sátt og samlyndi. Það
gætir einnig nokkurrar naumhyggju
í sagnahefð okkar. Þar er aðeins sagt
það sem þarf að segja til þess að
boðskapurinn komist til skila – og
það er komið beint að kjarnanum.“
Ólíkir menningarheimar
Isle játar að það sama einkenni
hennar verk. „Ég tala aldrei í kring-
um hlutina, heldur kem beint að
efninu. Þau hafa því átt það til að
vera talin agressíf. Eitt af mínum
verkum ber heitið Faðir og dóttir.
Þetta eru tveir misstórir skúlptúrar
þar sem formið er hnífsblað. Ég
hafði aðeins lokið við stærri skúlpt-
úrinn þegar ég sýndi það fyrst á
sýningu og það brugðust margir
ókvæða við og fannst ég fara yfir
strikið. Þegar ég hafði bætt minni
skúlptúrnum við verkið urðu við-
brögðin mildari. Þarna kom kannski
best í ljós mismunurinn á græn-
lenskri og evrópskri menningar-
hefð. Í Evrópu er hnífurinn tákn um
árás. Í Grænlandi er hann lífsnauð-
synlegur til þess að komast af.
Á sýningunni hér á landi er Isle
aðeins með verk unnin á þessu ári,
engin eldri verk. Hvers vegna?
„Þegar ég er að vinna fæ ég ótal
hugmyndir. Þegar ég hef síðan lokið
við verkið sem er í vinnslu vil ég
losna við það sem fyrst til þess að
byrja á því næsta. Þess vegna á ég
svo auðvelt með að selja verkin mín
og gefa. Ef ég er hins vegar að
vinna verk sem eiga að fara á sýn-
ingu kem ég þeim til foreldra minna
til þess að losna við að hafa þau
fyrir augunum.“
Kjarninn
Mótífin í verkum Isle hafa löngum
verið vinir, kunningjar og fjöl-
skyldumeðlimir. Þekktasta grímu-
verkið hennar er mynd af föður
hennar, tveir skúlptúrar á sýning-
unni eru hún og móðir hennar og
þannig mætti lengi telja. „Tengsl í
fjölskyldum eru merkileg,“ segir
Isle. „Fyrir utan mig og bróður
minn, sem búum á Grænlandi, býr
öll fjölskyldan í Danmörku. Engu að
síður verða tengsl mín við hana
sterkari eftir því sem árin líða. Ég
kann betur að meta jákvæða þætti í
fari foreldra og systkina en áður og
á auðveldara með að líta framhjá
þeim þáttum sem mér líkaði ekki,
sjá þá í öðru ljósi, jafnvel þannig
ljósi að ég tjái það í verkum mínum.
Þau eru kjarninn í lífi mínu og
verkum.“ sussa@frettabladid.is
SUNNUDAGUR 12. september 2004 17
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
VERÐ FRÁ 12.240 KR. FYRIR 5 TÓNLEIKA,
eða 2.040 kr. á mánuði í sex mánuði í sætaröð 21–28
og 14.280 kr. í sætaröð 1–20 eða 2.380 kr. á mánuði
í 6 mánuði sé greitt með Visa kreditkorti.
23. & 24. SEPTEMBER Það besta af hvíta tjaldinu
28. & 29. OKÓTBER Töfrar óperunnar og tónaljóðsins
5.-8. JANÚAR Vínartónleikar
17. & 18. MARS Galdrar og goðsagnir
6. & 7. MAÍ Philharmonic Rock Night
Græna áskriftarröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands er ferðalag vítt og breitt um heim tónlistarinnar, frá háklassík
til poppsins og allt þar á milli. Fáðu þér áskrift að öruggu sæti og betra verði hjá Sinfóníuhljómsveitinni í vetur.
Gallabuxur,
kjól og hvítt
TÖFRAHEIMURTÓNLISTARINNAR
aðeins
2.040 kr.
á mánuði
Græn
tónleikaröð
Einsöngvari: Gary Williams. „Einn besti sveiflusöngvari Breta fyrr og síðar“ – Times
Einsöngvari: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir. „Er á leið á vit mikilla afreka“ – Independent
Það sem Íslendingum finnst skemmtilegast að hlusta á.
Einleikari: Liene Circene. „Einhver besti píanóleikari sem hér hefur komið fram“ – Jónas Sen
Modest Mússorgskíj, Deep Purple, Gustav Mahler, Pink Floyd, Led Zeppelin og Queen.
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á WWW.SINFONIA.IS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Einn helsti brautryðjandi grænslenskrar nýlistar sýnir nú verk sín í Listasafni Sigurjóns
Rætur tveggja menningarheima
ISLE HESSNER Brautryðjandi í grænlenskri nútímalist
FAÐIR OG DÓTTIR
Form sem sumir sjá sem agressíft, aðrir
sem lífsnauðsynlegt til að komast af.