Fréttablaðið - 19.09.2004, Side 1
STÓRBRUNI Í ÓLAFSVÍK Fiskverkun-
arhúsið Klumba í Ólafsvík brann til kaldra
kola í fyrrinótt. Talið er að tjónið nemi um
100 milljónum króna. Um 25 manns unnu
hjá vinnslunni. Rekstrarstjóri Klumbu segir
brunann mikið áfall. Sjá síðu 2
UMDEILT MAT ÞJÓÐLEIKHÚS-
RÁÐS Ekki eru allir umsækjendur um
starf þjóðleikhússtjóra sáttir við umsögn
Þjóðleikhúsráðs um hvaða umsækjendur
eru hæfastir. Sjá síðu 4
ASÍ UGGANDI VEGNA VERÐBÓLGU
Kjarasamningarnir verða ekki langlífir verði
verðbólga álíka há og undanfarna mánuði,
segir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri
Alþýðusambands Íslands. Sjá síðu 6
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Kvikmyndir 30
Tónlist 29
Leikhús 29
Myndlist 29
Íþróttir 24
Sjónvarp 32
SUNNUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
19. september 2004 – 256. tölublað – 4. árgangur
Í fyrsta skipti á DVD!
Í verslanir eftir 2 daga SÍÐUR 16 & 17
▲
BJART MEÐ KÖFLUM SUNNAN
TIL Skúrir norðan og austan. Hiti 6-12 stig
að deginum hlýjast syðst. Sjá síðu 6
Árni Johnsen er að ljúka við bók og sinnir
öðrum verkefnum. Segir mótlæti vera besta
skólann og tekur lífinu með gneistandi fjöri.
Hamingjan í allar áttir
Nýjustu rannsóknir á lífsviðhorfi Íslendinga sýna að hamingjan
býr á landsbyggðinni. Fréttablaðið tók hugarhús hjá einum
dreifbýlingi úr hverri höfuðátt landsins fagra.
SÍÐA 20 & 21
▲
VIRKT LÝÐRÆÐI Þátttaka á íbúaþingi á Akureyri um framtíðarskipulag miðbæjarins fór fram úr björtustu vonum. Um 1.600 manns
sátu í íþróttahöllinni frá 10 til 18 í gær og létu hugmyndir sínar í ljósi í fjölmörgum starfshópum. Lá fólk yfir kortum og sitt sýndist hverj-
um. Gera má ráð fyrir að allt að 20 þúsund tillögur hafi borist, en þó margar svipaðar hver annarri.
VERKFALL Samkvæmt nýrri skoðana-
könnun Fréttablaðsins eru 75,9 pró-
sent þjóðarinnar andvíg boðuðu
verkfalli grunnskólakennara, en
einungis 24,1 prósent er fylgjandi.
Enginn teljandi munur var á af-
stöðu kynjanna, en svo virðist sem
stuðningur við verkfallið sé ívið
meiri á landsbyggðinni en í þétt-
býli. Um 27 prósent landsbyggðar-
fólks sögðust vera fylgjandi að-
gerðunum, en 73 prósent á móti.
Jón Pétur Zimsen, grunnskóla-
kennari í stjórn Kennarafélags
Reykjavíkur, segir niðurstöðu
könnunarinnar sýna að fólk sé al-
mennt á móti verkföllum. „Verk-
föll eru neyðarúrræði og þau eru
aldrei vinsæl,“ segir Jón. Anna
María Proppé, framkvæmdastjóri
samtakanna Heimili og skóli,
bendir á að verkfallsaðgerðir
kunni að vera óvinsælar vegna
þess að margir telji að kennarar
hafi samið mjög vel við síðustu
kjarasamninga. Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, formaður stjórnar
Samtaka íslenskra sveitarfélaga,
sem er viðsemjandi grunnskóla-
kennara, segir niðurstöðuna end-
urspegla þann einlæga vilja fólks
að ekki komi til verkfalls.
Athygli vekur að hlutfall
óákveðinna í könnuninni er ekki
hátt, en 10,6 prósent kváðust
óákveðin í afstöðu sinni. Tæp 2
prósent neituðu að svara. Hringt
var í 800 manns.
gs@frettabladid.is
gag@frettabladid.is
Sjá síðu 4.
KOMA MEÐ SUÐRÆNA STEMNINGU
Hljómsveitin Beach Boys spilar í Laugar-
dalshöllinni 21. nóvember.
Íbúaþing á Akureyri:
10% íbúa
tóku þátt
SKIPULAG Um 1.600 manns tóku þátt
í íbúaþingi á Akureyri í gær um
skipulag miðbæjarins. Fyrir fram
var búist við um 800 manns. „Um
10% bæjarbúa tóku þátt,“ segir
Ragnar Sverrisson hjá Akureyri í
Öndvegi. „Ef hver skilar inn 10 til
20 tillögum má búast við að 20 þús-
und tillögur hafi borist.“
Ragnar segir stemninguna hafa
verið einstaklega góða. „Það var
gaman að sjá hvað allir voru já-
kvæðir og fólk lá hérna yfir kort-
unum,“ segir hann. „En stundum
urðu þó deilur milli manna. Sumum
fannst þetta og öðrum hitt.“
Unnið verður úr tillögunum á
næstu dögum og á miðvikudaginn
verða helstu niðurstöður kynntar á
fundi á Hótel KEA. ■
Um 76 prósent
andvíg verkfalli
Boðað verkfall grunnskólakennara nýtur ekki mikils stuðnings lands-
manna ef marka má skoðanakönnun Fréttablaðsins. Um 76 prósent
aðspurðra lýstu sig andvíg aðgerðunum.
Eftir 40 ár í bransanum:
Beach Boys
til Íslands
TÓNLEIKAR Eftir meira en fjörutíu ár
í bransanum ætlar hin goðsagna-
kennda hljómsveit Beach Boys
loks að koma til Íslands og halda
tónleika í Laugardalshöll 21. nóv-
ember. Í Höllinni munu strandljón-
in flytja öll sín þekktustu lög eins
og Good Vibrations og Surfin’ USA.
Guðbjartur Finnbjörnsson tón-
leikahaldari segir að þegar Mike
Love, forsprakki Beach Boys, hafi
frétt að umboðsskrifstofa sveitar-
innar væri komin með tengsl við
Ísland hafi hann ólmur viljað koma
hingað. ■
GUÐBERGUR TALAR UM GOYA
Guðbergur Bergsson rithöfundur flytur
í dag fyrirlestur í Listasafni Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu um Kenjarnar, hina frægu
myndröð Goyas sem nú er til sýnis þar.
Fyrirlesturinn hefst klukkan þrjú.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
U
N
N
AR
E
R
N
IR
B
IR
G
IS
SO
N
Þekkir ekkert annað
en bjartsýni
AFSTAÐAN TIL VERKFALLS
Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) boðuðu
verkfalli grunnskólakennara?
Fylgjandi: 24,1%
Andvíg: 75,9%