Fréttablaðið - 05.10.2004, Síða 22
Nýtt lyf sem upprætir vissar teg-
undir húðkrabbameins hefur ver-
ið flutt hingað til lands og sam-
þykkt af yfirvöldum. Það heitir
Metvix og er þróað og framleitt í
Noregi. Lyfið hefur gagnast vel á
húðæxli af flöguþekjuuppruna og
fækkað skurðaðgerðum vegna
þeirra. Metvix er krem sem er
borið á æxlið í ákveðinn tíma og
síðan er bletturinn lýstur með sér-
stöku tæki. Það er síðan samverk-
un lyfsins og ljóssins sem vinnur á
meininu.
Gísli Ingvarsson, húðlæknir í
Lágmúlanum, er kunnugur þessari
meðferð og hefur yfir tæki að ráða
sem notað er með áburðinum. „Ég
kynntist þessu lyfi í Tromsö í Nor-
egi þar sem ég starfaði um tíma,“
segir hann og staðfestir að Metvix
sé orðið þekkt víða í Evrópu og
tæknibúnaðurinn og aðferðafræð-
in sem þurfi til að beita meðferð-
inni sé vel þekkt af öllum húðsjúk-
dómalæknum. Hann telur þessa
aðferð jafnvel gagnast á fleiri
krabbamein en húðkrabba en skil-
yrði fyrir lækningu sé að hægt sé
að koma ljósgjafanum að. Gísli
segir húðkrabbamein hafa aukist
jafnt og þétt í hlutfalli við notkun
ljósabekkja og flöguþekju- og
grunnfrumumeinin sem Metvix
vinnur á segir hann algeng hjá nor-
rænu fólki. Meðferðin dugar hins
vegar ekki gegn sortuæxlum. ■
Hvernig væri að breyta aðeins til í ræktinni og
lyfta aðeins? Auðvitað þarftu að hafa einhvern
kunnugan með til að kenna þér á lóðin og gott
er að byrja rólega. Lyftingar minnka líkur á
beinþynningu og auka brennsluna.
Lífshorfur
batna
Ár hvert greinast 160-170 íslenskar kon-
ur með brjóstakrabbamein. Góðu frétt-
irnar eru þær að lífshorfurnar hafa batn-
að mikið. Hér á landi eru konur boðað-
ar til brjóstamyndatöku annað hvert ár
frá og með 40 ára aldri. Rannsóknir
benda til þess að með því að taka
röntgenmyndir reglulega af brjóstum
kvenna megi lækka dánartíðni vegna
krabbameins í brjóstum verulega.
Í októbermánuði verður vakin athygli á
brjóstakrabbameini hér á landi, fimmta
árið í röð. Þetta er hluti af alþjóðlegu
árveknisátaki og er bleik slaufa tákn
átaksins. Fjölmörg mannvirki um allan
heim verða lýst bleiku ljósi til að vekja
athygli á átakinu, til dæmis Empire
State-byggingin í New York og Ráðhúsið
í Reykjavík. Bleiku slaufuna er hægt að
nálgast í verslunum sem selja vörur frá
Estée Lauder og á öllum afgreiðslustöð-
um KB banka. Ýmsar upplýsingar um
brjóstakrabbamein og árveknisátakið
má finna á vefnum bleikaslaufan.is
[ BRJÓSTAKRABBAMEIN ]
YGGDRASILL, KÁRASTÍG 1, 101 RVK., S: 5624082
- þar sem þú getur treyst á gæðin -
Lífrænt ræktaðar vörur
Umbo›s- og sölua›ili
sími: 551 9239
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
vinnur gegn fílapenslum og bólum.
Bindur bakteríur og húðflögur og dregur þær til sín.
Silicol Skin
Þannig getur þú haldið húð
þinni mjúkri og hreinni og
komið í veg fyrir bólur.
Fæst í apótekum.
TWEED DRAGTIR
Líkamsræktin mín:
Gufaðist um tækjasalinn
„Ég er nýbúin að fá mér árskort í
Laugum,“ segir Þrúður Vil-
hjálmsdóttir leikkona með stolti
þegar hún er spurð hvaða líkams-
rækt hún stundi. „Tækjasalurinn
er minn staður þessa stundina og
er ég nýbúin að læra á hann, en
fram að því gufaðist ég bara um
tækjasalinn,“ segir Þrúður, sem
fékk einkaþjálfara til að setja
saman fyrir sig prógramm.
„Prógrammið er ég með á blaði
og ég þarf alltaf að kíkja á það
sem er áreiðanlega mjög nörda-
legt en ég hef nú bara húmor
fyrir því,“ segir Þrúður.
Hún er þessa stundina að æfa
leikritið Faðir vorið sem er nýtt
íslenskt leikrit eftir Hlín Agnars-
dóttur og verður frumsýnt í lok
október. „Við erum að æfa alla
daga en ég fékk hópinn til að
byrja snemma á morgnana svo
við gætum hætt fyrr og ég mætt í
ræktina. Ég segi það ekki að ég
mætti alveg vera duglegri,“ segir
Þrúður hlæjandi.
„Annars erum við svo heppin
að hafa Jóhann Frey Björgvins-
son sem kóreógrafer sýningar-
innar og hann tekur okkur í
Pilates-upphitun fyrir æfingar
sem er mjög heppilegt,“ segir
Þrúður, sem þykir öll hreyfing
vera af hinu góða.
„Mér líður svo vel þegar ég
hreyfi mig,“ segir Þrúður.
kristineva@frettabladid.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Tækið vinnur á meininu ásamt nýja kreminu.
Gísli Ingvarsson við ljósatæki sem notað er við lækningarnar.
Nýtt norskt lyf:
Fækkar aðgerðum
vegna æxla í húð
Perlan var böðuð bleiku ljósi í
október 2002.
Þrúður Vilhjálmsdóttir heldur sér í
formi með að lyfta lóðum í World
Class eftir æfingar í Iðnó.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA