Fréttablaðið - 19.10.2004, Page 39

Fréttablaðið - 19.10.2004, Page 39
ÞRIÐJUDAGUR 19. október 2004 ■ FÓLK H Á G Æ Ð A V Ö R U R Á G Ó Ð U V E R Ð I F E R Ð I N H E F S T Í S A G A B O U T I Q U E Íslandsvinurinn Marc Almond, söngvari hljómsveitarinnar Soft Cell, er í lífshættu eftir að hann lenti í mótorhjólaslysi í miðborg Lundúna á sunnudag. Almond var fluttur í snatri á sjúkrahús mikið slasaður en að sögn lækna er líðan hans stöðug. Slysið varð þegar bíll keyrði á mótorhjól sem Almond var farþegi á. Almond flaug af hjólinu og hlaut alvarlega áverka á höfði. Hann og ökumaður hjólsins voru fluttir á Royal London sjúkrahúsið í Whitechapel. Soft Cell, sem skipuð var Almond og tónlistarmanninum David Ball, átti einn vinsælasta smell níunda áratugarins, Tainted Love. Sveitin lagði upp laupana árið 1984, þremur árum eftir að hún sló í gegn með laginu, sem seldist í bíl- förmum beggja vegna Atlantshafs- ins. Almond sendi síðan frá sér ann- an smell í samfloti með Gene Pitn- ey, lagið Something’s Gotten Hold of My Heart. Almond hefur einnig komið hingað til lands og spilað. Hann fékk Jóhann Jóhannsson, einn liðsmanna Apparat Organ Quartet, til að semja lög á nýjustu plötu sína en þeir kynntust í gegnum sam- eiginlegan umboðsmann þeirra. ■ Marc Almond í lífshættu MARC ALMOND Lögreglan í London rannsakar nú tildrög slyssins sem Almond lenti í á sunnudag. Söngkonan Britney Spears ætlar að taka sér smá frí til „að njóta lífsins“ eins og hún orðar það og ætlar að leyfa „öðrum ofuraug- lýstum blondínum“ að fylla skarð hennar á forsíðum tímarita. Britney skrifar á heimasíðu sinni að hún þarfnist hvíldarinnar og hún sjái eftir því að hafa verið „barnaleg, ung og ljóshærð“. Hún kennir jafnframt auglýsinga- mönnum um hvernig ímynd henn- ar sé orðin. Britney sagði upp samningi sínum við Larry Rudolph, um- boðsmann hennar til níu ára, þeg- ar hún giftist dansaranum Kevin Federline fyrir skömmu. Hún seg- ist loksins vera búin að læra hvernig á að segja „Nei!“ og það hafi gert mikið fyrir hana. Britney segist jafnframt vera afar ánægð með eiginmann sinn og getur vart beðið eftir að stofna fjölskyldu með honum. ■ Britney fer í frí ■ FÓLK BRITNEY Poppdívan er orðin leið á ljóskuímyndinni og ætlar að taka sér smá frí. Söngleikur byggður á teiknimynd- inni Shrek mun brátt líta dagsins ljós á Broadway. Það verður sjálfur Sam Mendes sem framleiðir söng- leikinn en hann framleiddi einnig Óskarsverðlaunamyndina. Mendez mun ekki leikstýra sýningunni en það kemur í hlut Jason Moore, sem var meðal annars tilnefndur til Tony-verðlaunanna fyrir brúðu- söngleikinn Avenue Q. Áætlað er að frumsýna verkið eftir tvö ár. Kvikmyndafyrirtækið Dream- works mun einnig koma að gerð söngleiksins en fyrirtækið fram- leiddi teiknimyndina. Shrek er ein vinsælasta teikni- mynd sem gerð hefur verið. Hún fjallar um grænt tröll sem verður ástfangið af prinsessu. Framhalds- myndin Shrek 2 var frumsýnd fyrr á árinu. ■ Söngleikur um Shrek ■ KVIKMYNDIR SHREK Græna skrímslið mun brátt syngja og dansa á fjölum Broadway.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.