Fréttablaðið - 22.10.2004, Blaðsíða 8
SKATTRANNSÓKN Jón Ólafsson,
fyrrum aðaleigandi Norðurljósa,
þarf að greiða rúmar þrjú hund-
ruð milljónir króna vegna endurá-
lagningu skatta til viðbótar tæp-
um 97 milljónum sem hann hefur
þegar greitt samkvæmt ákvörðun
ríkisskattstjóra. Endurálagningin
er vegna vanframtaldra tekna,
eigna, hlunninda og söluhagnaðar
Jóns og fyrirtækis hans Jóns
Ólafssonar & Co. sf.
Jón greiddi tæpar 97 milljónir
til ríkissjóðs í febrúar síðastliðn-
um í samræmi við úrskurð Ríkis-
skattstjóra vegna áranna 1998 og
1999. Úrskurður skattstjóra var á
þann veg að Jón og eiginkona hans
hafi haft skattalega heimilisfestu
og fulla og ótakmarkaða skatt-
skyldu á Íslandi allt árið 1998.
Gjöld Jóns voru að langstærstum
hluta komin til vegna túlkunar
skattayfirvalda á viðskiptum Jóns
og sonar hans með tíu prósenta
eignarhlut í Skífunni. Jón höfðaði í
kjölfarið mál á hendur skattayfir-
völdum á Íslandi til að fá úrskurði
Ríkisskattstjóra hnekkt. Greiðsla
Jóns var því innt af hendi með
fyrirvara um endanlega niður-
stöðu dómstóla.
Úrskurður ríkisskattstjóra á
skattamálum Jóns var hafður í
tvennu lagi vegna hættu á því að
sökin fyrir árin 1998 og 1999
myndi fyrnast ef úrskurður
drægist um of. Úrskurðurinn nú er
vegna áranna 2000 til 2003, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Formleg rannsókn á skattamál-
um Jóns hófst í febrúar 2002.
Skattrannsóknarstjóri sendi Jóni
skýrslu ári síðar um rannsókn
embættisins vegna skattskila hans
á árunum 1996 til 2001. Skýrslan
var birt í fjölmiðlum. Þar kom
fram að vanframtalin gjöld næmu
allt að rúmum þremur milljörðum
króna. Lögmenn Jóns mótmæltu
niðurstöðum rannsóknarinnar og
sögðu þær ekki á rökum reistar.
Skattrannsóknarstjóri hefur
samhliða rannsakað skattamál
fyrirtækja tengdum Jóni, Íslenska
útvarpsfélagsins, Sýnar, Skífunnar
og Norðurljósa. Rannsókn málsins
er lokið en ákvörðun ríkisskatt-
stjóra hefur ekki verið birt.
Efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra hefur rannsakað
meint skattalagabrot Jóns frá því
um áramót. Jón H. Snorrason, yf-
irmaður efnahagsbrotadeildar,
hefur sagt að málið sé líklega um-
fangsmesta skattalagabrotið sem
komið hefur til meðferðar ríkis-
lögreglustjóra.
Ekki náðist í Jón Ólafsson í
gær og Ragnar Aðalsteinsson, lög-
maður Jóns, vildi ekki tjá sig um
málið.
sda@frettabladid.is
8 22. október 2004 FÖSTUDAGUR
Jón Ólafsson greiði
300 milljónir í skatt
Ríkisskattstjóri hefur úrskurðað að Jón Ólafsson þurfi að greiða rúmar 300 milljónir í viðbótar-
skatt vegna skattrannsóknar auk þeirra 97 milljóna sem hann hefur þegar greitt.
FORSETAKOSNINGAR Áhugi banda-
rískra ríkisborgara hér á landi er
töluverður samkvæmt upplýsing-
um úr Sendiráði Bandaríkja-
manna.
Tugir Bandaríkjamanna hafi
komið á síðustu dögum í sendi-
ráðið til að greiða atkvæði utan-
kjörfundar en að minnsta kosti
400 Bandaríkjamenn búsettir hér
á landi hafa fengið send skráning-
areyðublöð en skráning er skil-
yrði fyrir kosningaþátttöku. Þær
upplýsingar fengust í sendiráðinu
að um eittþúsund bandarískir rík-
isborgarar væru búsettir hér á
landi.
Flóknar reglur gilda um fresti
og skráningu og eru þær reglur
mismunandi eftir því hvaða ríki
Bandaríkjanna kjósendur til-
heyra. Á síðustu misserum hefur
þetta ferli verið einfaldað mjög og
er stór hluti gagna og eyðublaða
nú aðgengilegur á netinu.
Varnarliðsmenn og fjölskyldur
þeirra greiða atkvæði í herstöð-
inni á Keflavíkurflugvelli en
bandaríski herinn annast alfarið
kosningaþátttöku þeirra her-
manna sem staðsettir eru utan
Bandaríkjanna. - bþe
REYKT VIÐ BARBORÐIÐ
Reykingar eru bannaðar á írskum krám.
Reykingabann:
Hvetja fólk
til að klaga
ÍRLAND, AP Írar eiga að hafa sam-
band við yfirvöld ef þeir verða
vitni að því að fólk brýtur lög sem
banna reykingar á krám og veit-
ingastöðum. Þetta er upplagið í
fimm vikna auglýsingaherferð
sem írska tóbaksvarnaeftirlitið
hratt í framkvæmd í gær.
Reykingabannið tók gildi fyrir
sjö mánuðum. Síðan þá hafa óein-
kennisklæddir eftirlitsmenn farið
á milli kráa og athugað hvort krá-
areigendur framfylgi lögunum.
Bannið hefur verið hunsað á
nokkrum krám og hefur það leitt
til málsókna og sektargreiðslna. ■
SVONA ERUM VIÐ
FJÖLDI ÁRSVERKA Í
LANDBÚNAÐI
1965 9.566
1975 9.326
1985 7.419
1995 5.596
Heimild: Hagstofan
– hefur þú séð DV í dag?
Fjölskylda
Birgittu segir
dópsala hafa
drepið
hana
Ákæra gefin út á hendur manni
sem horfði upp á hana deyja
Menningarkvöld:
Strippað í
fangelsi
NOREGUR, AP Fangavörðum í Hof
fangelsinu í suðurhluta Noregs
brá í brún þegar þeir litu inn í
samkomusal fanganna og sáu
nektardansmey stíga dans fyrir
fangana. Atvikið átti sér stað á
menningarkvöldi sem fangelsis-
yfirvöld höfðu samþykkt að fang-
arnir fengju að halda en voru með
öllu grunlaus um að þeir réðu sér
nektardansmey til að skemmta
föngunum.
Menningarkvöldið fór rólega
af stað þegar einn fanginn sagði
brandara, hins vegar færðist fjör
í leikinn þegar nektardansarinn
steig á svið við mikinn fögnuð. ■
Góð þátttaka í utankjörstaðaatkvæðagreiðslu í bandaríska sendiráðinu:
Aukinn áhugi bandarískra
ríkisborgara hér á landi
MIKIL GÆSLA
Afar ströng gæsla er við bandaríska sendiráðið í Reykjavík, þangað sem bandarískir ríkis-
borgarar leggja nú leið sína til að taka þátt í forsetakosningum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
SPELLVIRKI Skemmdir voru unnar í
kirkjugarðinum við Aðalgötu í
Keflavík í gær. Fimm krossar
voru losaðir upp og 21 legsteini
var velt við. Einn legsteinn var
brotinn sem og nokkur luktarhús,
blómaker og styttur.
Elías Guðmundsson umsjónar-
maður Kirkjugarða Keflavíkur
segir skemmdirnar hafa komið í
ljós um morguninn þegar aðstand-
endur komu til að vitja leiðis
látins ættingja. Eignartjónið sé
mikið:
„Dýr minningarmörk voru
skemmd. Sum gjörsamlega
eyðilögð.“ Elías segir skemmdar-
verk hafa áður verið unnin í garð-
inum, enda sé hann öllum opinn og
í miðjum bænum, en aldrei sem
nú: „Jafnt var skemmt í elsta
hluta garðsins og þeim nýjasta.“
Elías segir ekki hægt að bæta
fyrir skemmdirnar þar sem per-
sónulegir munir hafi verið
skemmdir.
Lögreglunni í Keflavík var til-
kynnt um skemmdarverkin rétt
fyrir ellefu í gærmorgun. Ekki er
vitað hverjir voru að verki og
hefur rannsóknarlögreglan í
Keflavík málið til rannsóknar. Til-
tektir í garðinum stóðu í allan
gærdag og halda áfram í dag.
- gag
Rannsóknarlögreglan leitar að skemmdarvörgum:
Skemmdir unnar á
kirkjugarði í Keflavík
DÝR MINNINGARMÖRK SKEMMD
Fimm krossar voru losaðir upp og 21 leg-
steini var velt við í kirkjugarðinum við Að-
algötu í Keflavík. Málið er í rannsókn lög-
reglunnar.
M
YN
D
/V
ÍK
U
R
FR
ÉT
TI
R/
H
IL
M
AR
B
R
AG
I
JÓN ÓLAFSSON
Formleg rannsókn á skattamálum Jóns hófst í febrúar 2002. Skattrannsóknarstjóri sendi Jóni
skýrslu ári síðar um rannsókn embættisins vegna skattskila hans á árunum 1996 til 2001
þar sem fram kom að vanframtalin gjöld næmu allt að rúmum þremur milljörðum króna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M