Fréttablaðið - 22.10.2004, Síða 10
22. október 2004 FÖSTUDAGUR
Þyngsti dómur sem kveðinn hefur verið upp eftir Abu Ghraib-hneykslið:
Átta ára fangelsi fyrir fangamisþyrmingar
ÍRAK, AP Bandaríski hermaðurinn
Ivan Fredericks var í gær
dæmdur til átta ára fangelsis-
vistar fyrir að misþyrma föngum
í fangelsinu Abu Ghraib í Írak.
Fredericks, háttsettasti hermað-
urinn til að verða ákærður fyrir
fangamisþyrmingar, játaði sök í
fyrradag. Dómurinn yfir honum
í gær er sá þyngsti sem hefur
verið kveðinn upp í kjölfar upp-
ljóstranna um misþyrmingar í
Abu Ghraib.
Tveir meðlimir herlögreglu-
sveitar Fredericks hafa áður
verið dæmdir, annar þeirra fékk
átta mánaða dóm en hinn var
dæmdur til eins árs fangelsis-
vistar.
Þrátt fyrir að Fredericks hafi
viðurkennt sök sína neitaði hann
því að hann og félagar hans bæru
einir ábyrgð á misþyrmingunum.
Hann sagði að fangarnir hefðu
verið niðurlægðir svo að þeir
sem yfirheyrðu þá næðu meiri
upplýsingum upp úr þeim.
Fredericks sagði að þegar hann
hefði rætt við yfirmenn sína um
misþyrmingarnar hefðu þeir
sagt honum að hlýða skipunum
leyniþjónustumanna hersins. ■
Vitnin óttast
axarmanninn
Vitni óttast Börk og krafist er að nýjum ákvæðum um vitnaleynd verði beitt í
meðferð málsins. Börkur Birgisson er ákærður fyrir tilraun til manndráps en
hann sló mann nokkrum sinnum í höfuðið með öxi á A. Hansen.
DÓMSMÁL Börkur Birgisson, 25 ára
Hafnfirðingur, er ákærður af rík-
issaksóknara fyrir tilraun til
manndráps en til vara fyrir stór-
fellda líkamsárás. Börkur sló
mann nokkrum sinnum í höfuðið
með öxi á veitingastaðnum A.
Hansen í Hafnarfirði í lok ágúst.
Börkur neitar sök í þessari ákæru
eins og í sex öðrum líkamsárásum
sem hann er einnig ákærður fyrir.
Ríkissaksóknari ákærir Börk
einnig fyrir stórfellda líkamsárás
gegn manni sem stóð fyrir aftan
Börk þegar hann reiddi til höggs
með öxinni þannig að hún slóst í
manninn. Nokkur vitni í málinu
óttast Börk og vilja ekki að hann
viti hver þau eru vegna ótta um að
hann kunni síðar
að vinna þeim
mein. Krafa um
að vitni í málinu
sem gefið hafa
skýrslu undir
nafnleynd fái
áfram að halda
nafnleynd var
lögð fram fyrir
dómara ásamt
gögnum málsins.
Verði dómari við
beiðninni mun
nýju ákvæði í lög-
um um meðferð
opinberra mála
verða beitt. Í vor
bættist ný máls-
grein í lögin, sam-
kvæmt henni get-
ur dómari sam-
kvæmt kröfu ákveðið að vitni sem
kemur fyrir dóm geri það ekki í
heyranda hljóði. Þannig þurfi
vitni ekki að gera grein fyrir
nafni sínu né öðru sem varðar
persónu þess ef það er ekki talið
spilla fyrir vörn sakborningsins
svo máli skipti. Dómaranum yrði
þá greint frá nafni vitnisins bréf-
lega og upplýsingarnar geymdar
þannig að tryggt sé að aðrir hafi
ekki aðgang að þeim.
Eftir að Börkur sló manninn
með öxinni á A. Hansen flúði hann
staðinn en vinir fórnarlambsins
veittu honum eftirför að heimili
hans þar sem hann var handtek-
inn skömmu síðar. Börkur og
fórnarlambið þekktust og er talið
að deilur þeirra á milli hafi leitt til
árásarinnar.
Fyrir ári var Börkur dæmdur
í Héraðsdómi Reykjaness fyrir
að kasta grjóti í andlit manns og
fyrir vörslu fíkniefna. Fyrir það
hlaut hann þriggja mánaða fang-
elsisdóm en fullnustu refsingar-
innar var frestað í þrjú ár héldi
hann skilorð. Ljóst er að Börkur
er margbúinn að brjóta skilorð-
ið.
hrs@frettabladid.is
,,Dómar-
anum yrði
þá greint
frá nafni
vitnisins
bréflega og
upplýsing-
arnar
geymdar
þannig að
tryggt sé að
aðrir hafi
ekki að-
gang að
þeim.
TEIKNING AF FREDERICKS
Í RÉTTARSAL
Fredericks játaði sök sína í misþyrmingum
á föngum en sagðist hafa hlýtt skipunum
leyniþjónustumanna hersins.
BÖRKUR Á LEIÐ Í RÉTTARSAL
Börkur er í gæsluvarðhaldi og hefur verið frá því að hann var handtekinn eftir árásina á A.
Hansen.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
BORGARMÁL Tónlistarskólar í
Reykjavík horfa fram á mikinn
rekstrarvanda auki Reykjavíkur-
borg ekki fjárframlög sín til
þeirra að sögn Sigursveins Kr.
Magnússonar, formanns Samtaka
tónlistarskóla í Reykjavík.
Sigursveinn hefur í bréfi til
borgaryfirvalda óskað eftir við-
ræðum vegna þessa. Borgarráð
vísaði málinu í gær til meðferðar
fræðsluráðs.
„Borgin hefur skorið niður
fjárframlög til skólanna,“ segir
Sigursveinn. „Í fjárhagsáætlun
hefur borgin ekki gert ráð fyrir
stofnun nýrra skóla. En tilkoma
þeirra hefur orðið til þess að
framlög til þeirra sem fyrir eru
hafa lækkað. En enn mikilvægara
er að túlkun borgarinnar á kjara-
samningum hefur orðið til þess að
skólarnir hafa ekki fengið aukið
fé til að standa straum af kostnaði
vegna hækkunar launa tónlistar-
kennara. Skilaboðin sem við höf-
um fengið eru mjög óskýr en við
túlkum þau þannig að okkur sé
ætlað að hagræða.“
Sigursveinn segir að það verði
ekki gert nema fækka nemendum
og draga saman kennslu. Það sé
þvert á stefnu borgaryfirvalda
um að eyða biðlistum eftir tónlist-
arnámi í borginni. - th
SIGURSVEINN KR. MAGNÚSSON
Formaður Samtaka tónlistarkennara í Reykjavík segist hafa fengið mjög óskýr skilaboð frá
borgaryfirvöldum.
Tónlistarskólar í Reykjavík horfa fram á mikinn rekstrarvanda:
Borgin sker niður framlög til kennslu