Fréttablaðið - 25.10.2004, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 25.10.2004, Blaðsíða 53
FIMLEIKAR Íslensku keppendurnir stóðu sig frábærlega á árlegu al- þjóðlegu fimleikamóti sem fór fram um helgina í Svíþjóð og nefn- ist Malarcup. Þetta er alþjóðlegt fimleikamót sem sænska fim- leikasambandið stendur fyrir en mótið hefur farið fram undanfarin tuttugu ár og þangað kemur alltaf sterkt fimleikafólk til að reyna sig. Íslenski hópurinn kemur heim með átta verðlaun að þessu sinni þar af sex þeirra úr gulli. Fremst fór Íslandsmeistari í fjölþraut kvenna, Kristjana Sæunn Ólafs- dóttir úr Gerplu. Kristjana vann þrjú af sex gullverðlaunum ís- lenska hópsins en hún sigraði í fjölþraut í sínum flokki og hlaut 30,075 stig en Kristjana sigraði einnig í úrslitum á stökki (8,75) og jafnvægisslá (7,65). Þetta er annað árið í röð sem hún sigrar í fjölþraut á þessu móti í sínum flokki en haldi hún áfram á sömu braut gæti hún hæglega komist í flokk fremstu fimleika- kvenna á Norðurlöndunum á næstu árum. Fríða Rún Einarsdóttur úr Gerplu sigraði einnig í sínum ald- ursflokki með 29,55 stig auk þess sem hún sigraði í úrslitum á gólf- æfingum. Fríða Rún varð síðan þriðja á jafnvægisslá með 7,4. Þriðji gullverðlaunahafinn hjá íslenska fimleikafólkinu var Ís- landsmeistarinn í fjölþraut karla, Viktor Kristmannsson úr Gerplu en hann sigraði í úrslitum á æfing- um á tvíslá (8,4). Stúlkurnar úr Gerplu höfnuðu síðan í 3. sæti í liðakeppninni og urðu þar næstar á eftir Ástralíu en Svíþjóð sigraði. Frá Íslandi komu keppendur frá Ármanni og Gerplu. Gunnar Sig- urðsson stóð sig best af keppend- um frá Ármanni og hafnaði hann í 10. sæti í miðflokki (junior) næst- ur á undan Jónasi Valgeirssyni, einnig úr Ármanni. Í liðakeppni og úrslitum á einstökum áhöldum var keppt í opnum flokki en í fjölþraut var keppt í þremur flokkum (yngri, mið og eldri). Það er gaman að sjá íslenskt fimleikafólk standa sig vel á er- lendri grundu og það er augljóst að það á að fylgja vel eftir frábær- um árangri Rúnari Alexanders- sonar á Ólympíuleikunum í Aþenu á dögunum. MÁNUDAGUR 25. október 2004 21 Fáðu vasabox fyrir nicorette lyfjatyggigúmmí ® Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reyk- ingum er hætt eða þegar dregið er úr reykingum. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: Verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsing- ar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar auka- verkanir og aðrar upplýsingar. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeining- um í fylgiseðli. [ LEIKIR GÆRDAGSINS ] INTERSPORTDEILD KARLA 4. UMFERÐ ÍR–Tindastóll 86-99 ÍR: Grant Davis 21 (10 frk.), Eiríkur Önun- darson 21, Ólafur Þórisson 11, Ólafur Sigurðsson 10 (10 stoðs.), Danny McCall 10, Ómar Sævarsson 7 (13 frk.) Tindastóll: Svavar Birgisson 32 (11 frk.), Bethuel Fletcher 24 (9 stoðs.), Axel Kárason 16, Ron Robinson 16 (10 frk.). *Fannar Helgason og Ron Robinson voru reknir í sturtu eftir slagsmál á vellinum. KR–Fjölnir 89-100 KR: Cameron Echols 37 (13 frk.) Damon Garris 20, Lárus Jónsson 14. Fjölnir: Darrel Flake 36 (14 frk.) Jeb Ivey 27 (7 stoðs.), Nemanja Sovic 17, Helgi Þorláksson 8. Hamar/Selfoss–Skallagrímur 82-89 Hamar/Selfoss: Chris Woods 25, Damon Bailey 24 (13 frák.), Svavar Pálsson 9, Pétur Ingvarsson 9. Skallagrímur: Clifton Cook 29, Jovan Zdraveski 20, Nick Andersson 14. Framlengdur leikur, staðan var 76–76 eftir venjubundinn leiktíma. Chris Woods tryggði heimamönnum framlengingu en hana unnu gestirnir 13–6. KFÍ–Keflavík 79-89 KFÍ: Joshua Helm 37 (13 frk., 5 stoðs., 6 stoln.), Pétur Sigurðsson 14, Baldur Jónasson 14 Keflavík: Magnús Gunnarsson 22, Anthony Glover 16, Michael Matthews 16 (11 frk.), Jón N. Hafsteinsson 10 Snæfell–Haukar 78-67 STAÐAN: Snæfell 4 3 1 334-322 6 Njarðvík 3 3 0 301-227 6 Fjölnir 4 3 1 376-365 6 Skallagrímur 4 3 1 350-339 6 Keflavík 4 3 1 370-325 6 Grindavík 3 2 1 304-272 4 KR 4 2 2 325-343 4 Tindastóll 4 2 2 331-378 4 Haukar 4 1 3 331-312 2 ÍR 4 1 3 366-390 2 Hamar/Self. 4 0 4 353-405 0 KFÍ 4 0 4 334-397 0 Sex gullverðlaun á Malarcup Íslenskt fimleikafólk náði frábærum árangri á alþjóðlegu fimleikamóti í Svíþjóð þar sem 190 keppendur frá 10 þjóðum og 33 fimleikafélögum tóku þátt. Kristjana Sæunn Ólafsdóttir úr Gerplu varði titil sinn í fjölþraut í sínum aldursflokki og vann þrjú gull. ÞRJÚ GULL Í SVÍÞJÓÐ Kristjana Sæunn Ólafsdóttir varði titil sinn í fjölþraut á Malarcup og vann alls til þriggja gullverðlauna um helgina. Fréttablaðið/Vilhelm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.