Fréttablaðið - 02.11.2004, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 02.11.2004, Blaðsíða 18
A-vítamín er mikilvægt fyrir góða heilsu. Það styrkir beinin, húðina, augun og ónæmis- kerfið. Til að fá ráðlagðan dagskammt af A-vítamíni geturðu borðað dökkgrænt og gult grænmeti, mjólkurvörur og egg. YGGDRASILL, KÁRASTÍG 1, 101 RVK., S: 5624082 - þar sem þú getur treyst á gæðin - Lífrænt ræktaðar vörur Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 Birkiaska Umbo›s- og sölua›ili sími: 551 9239 Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur „Mér líður rosalega vel enda gengur mjög vel. Nú er þetta að verða skemmtilegt því það er svo stutt eftir og ég er mjög spennt. Ég hlakka rosalega til forkeppninnar sem verður á sunnudaginn,“ segir Sólveig Einarsdóttir, annar keppand- anna í Galaxy Fitness sem Fréttablaðið fylgist með. „Nú er ég mest í sprettum og armbeygjum – og svo meiri armbeygjum. Ég reyni að gera mjög margar armbeygjur því ég þarf að bæta mig í þeim. Ég er líka að lyfta mikið en ég er meira að æfa upp þolið og arm- beygjurnar. Ég æfi alla daga vikunnar en hvíli alltaf á laugar- dögum til að safna orku. Ég mæli tvímælalaust með því að taka hvíldardag því eftir hann er ég rosalega öflug í þrjá til fjóra daga. Suma daga æfi ég tvisvar sinnum á dag en stund- um einu sinni því ég er að vinna svo mikið með æfingunum,“ segir Sólveig. Mataræðið hjá Sólveigu er nokkurn veginn svipað en litlir hlutir eru þó alltaf að týnast út smátt og smátt. „Núna borða ég eiginlega bara kjúklingabringur, fisk og hafragraut. Mjólkurvör- urnar eru alveg farnar út. Þegar ég fer að lyfta borða ég klukku- tíma fyrir æfingu en ef ég fer að brenna þá borða ég ekki neitt fyrr en hálftíma eða klukkutíma eftir æfinguna. Ef maður borðar á undan æfingu þá er maður í raun bara að brenna því sem maður var að borða.“ ■ „Mér líður rosalega vel. Nú er spennan að koma og fiðringurinn í magann. Ég er farinn að sjá fyrir endann á þessu ferli og það er mjög jákvæður punktur,“ seg- ir Ívar Guðmundsson, hinn kepp- andinn sem Fréttablaðið fylgist með, og æfir nú af krafti fyrir Galaxy Fitness-mótið. „Nú er ég að sjá hvernig ég mótast og get næstum því séð mun á hverjum einasta degi. Ég lít lítið í tölurnar eins og fitupró- sentu og þyngd heldur fer meira eftir tilfinningu og hvernig ég virka í speglinum,“ segir Ívar sem er farinn að slaka aðeins á í ræktinni til að halda orkunni í lagi. „Nú er ég farinn að hægja aðeins á svo ég verði ekki of þreyttur. Ég hef náttúrlega minni orku því ég innbyrði minna af kaloríum. Ég passa vel uppá að fá nægan svefn og hvíld til að halda orkunni. Ég lyfti um þrisvar í viku og brenni þrisvar til fjórum sinnum í viku. Ég lyfti um það bil áttatíu prósentum af því sem ég er vanur og nota frekar mótunarlyftingar sem eru mun hægari en ég hef gert venjulega. Ég tek líka spretti og fer á skíðavélina til að brenna og geng líka rösklega á hlaupabretti með halla,“ segir Ívar. Mataræðið er orðið nokkuð einhæft hjá Ívari. „Á venjuleg- um degi fæ ég mér hreint prótín og haframjöl blandað í vatn á morgnana. Þrem tímum seinna fæ ég mér kjúklingabringu, hrís- grjón og kartöflur og síðan aftur þrem tímum eftir það. Síðdegis fæ ég mér meira prótín og hafra- mjöl og í kvöldmat túnfisk, haframjöl og kartöflur. Ég drekk um það bil fjóra lítra af vatni á dag. Fimmtíu til sextíu prósent af fæðinu mínu er kolvetni svo ég haldi krafti því mesta orkan kemur úr kolvetnunum.“ ■ Nú styttist óðum í Íslandsmeistaramótið í Galaxy fitness í Laugardalshöll og aðeins tæplega vika til stefnu. Sunnudaginn 7. nóvember er forkeppnin haldin, föstudaginn 12. nóvember er samanburðurinn og loks verða úrslitin kynnt laugardaginn 13. nóvember. Fréttablaðið hefur fylgst með tveim keppendum, þeim Sólveigu Einarsdóttur og Ívari Guðmundssyni, síðustu vikur og heldur uppteknum hætti í þessari viku. Tekur hvíldardaga á laugardögum: Þarf að bæta sig mest í armbeygjum Sólveig lyftir mikið þessa dagana en er meira í því að byggja upp þol og gera armbeygjur. Mataræðið einhæft: Prótín, haframjöl og kjúklingabringur Ívar er aðeins farinn að hægja á í ræktinni og lyftir þrisvar í viku og brennir þrisvar eða fjórum sinnum í viku. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Keppendur í Galaxy fitness-mótinu: Mataræðið einfalt og orkan mikilvæg

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.