Fréttablaðið - 04.11.2004, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 04.11.2004, Blaðsíða 26
Útlit er fyrir nokkuð vætusama helgi. Suðaustlægur vindur og úrkoma einkum sunnan- og vestantil á morgun. Suð- væstlæg átt og úrkomulítið á laugardag en á sunnudag snýst hann aftur í suðaustan með vætu um allt land. Milt verður í veðri víða 8 til 13 stig. Ferðaþjónusta Iceland Express Sími 5 500 600, icelandexpress.is Kynnið ykkur skilmálana á icelandexpress.is Nú geturðu notað MasterCard ferðaávísun upp í ferð með Iceland Express! Þreföld ástæða til að brosa! Nýir vinir Himinn og ha f - S Í A Margir kófsvitna bara við til- hugsunina um einn spinning-tíma í ræktinni. Það er þó aðeins dropi í hafið fyrir hin fjögur fræknu: Kristinn Karl Dulaney, Ingi- björgu Richardsdóttur, Bjarna Helgason og Sigrúnu Harðardótt- ur. Þau lögðu af stað 27. maí í vor í pílagrímsferð þar sem þau hjól- uðu tæplega þúsund kílómetra á Jakobsveginum svokallaða þvert yfir Norður-Spán. Ferðin tók mánuð en skildi mikið eftir sig. „Ég hafði heyrt af þessari leið og hafði einsett mér að ganga hana. Ég leitaði að korti og upp- lýsingum en var svo gefin bókin Road to Santiago. Pílagrímaleiðin er náttúrlega mjög þekkt leið og margar bækur hafa verið skrif- aðar um hana. Ég gluggaði einnig í bókina Á Jakobsvegi eftir Jón Björnsson þar sem farið er vel ofan í sögu leiðarinnar. Ég kynnti mér leiðina mjög vel og við Bjarni ákváðum að hjóla hana því við höfum verið að hjóla mjög mikið saman,“ segir Kristinn en Ingibjörg og Sigrún ákváðu sein- na að skella sér með. „Við byrjuð- um í spinning hjá Eyrúnu í Hreyfingu um áramótin eftir að við ákváðum að fara með. Okkur fannst þetta vera það mikið ævin- týri að við gátum hreinlega ekki sleppt því,“ segir Sigrún. Fjórmenningarnir hófu ferða- lagið með því að fljúga til Stan- sted á Englandi og þaðan til Biarriz í Frakklandi. Þar eyddu þau nokkrum dögum, skoðuðu sig um og gerðu allt klárt fyrir ferð- ina. Síðan hjóluðu þau til St.- Jean-Pied-de-Port í Frakklandi og skráðu sig inn á leiðina ef svo má segja. Þar fengu þau ítarlegar upplýsingar um til dæmis gisti- staði og hjólreiðaviðgerðir á leið- inni og einnig svokallað „píla- grímavegabréf“. Á hverjum stað sem þau stoppuðu á á leiðinni fengu þau stimpil í vegabréfið og á endanum, þegar komið var til Santiago de Compostela á Spáni, var farið yfir alla stimplana og fengu ferðalangarnir syndaaf- lausnarbréf fyrir vikið. „Hægt er að skrá sig í ferðina á fleiri en einum stað en St.-Jean-Pied-de- Port er einn af aðalstöðunum,“ segir Kristinn og bendir á að flestir gangi þessa leið. Um áttatíu til hundrað þúsund manns alls staðar að úr heimin- um ferðast um Jakobsveginn á hverju ári. Fjórmenningarnir mæla tvímælalaust með Norður- Spáni í sumarfríinu. „Það er allt öðruvísi á Norður-Spáni en á sól- arströnd. Öll leiðin er gróðursæl og landslag stórbrotið. Veitinga- staðir eru reknir af fjölskyldum og það er enginn McDonalds í sjónmáli. Umhverfið er miklu hreinna og menningin allt önnur. Það var helst að við þurftum að venjast sólinni og mikilvægt er að bera alltaf á sig sterka sólar- vörn því sólin skín á mann allan daginn,“ segir Ingibjörg en hin fjögur fræknu fengu aldeilis ekki nóg af hjólaferðum í sumar. „Það er alltaf einhver ferð í bígerð. Við getum sagt sem svo að ég eigi hjólakort af Þýskalandi. Það er líka draumur að fara til Ítalíu, til dæmis til Toscana en það kemur allt í ljós,“ segir Bjarni að lokum. lilja@frettabladid.is Fjórmenningar í öðruvísi sumarfríi: Hjóluðu Jakobsveg Hörpuskelin – tákn Jakobsvegarins Santiago de Compostela er einn af tveim vinsælustu pílagrímastöðunum í Evrópu. Hinn eru Róm sem hefur tvo lykla sem tákn. Tákn Jakobsvegarins er hörpuskelin. Jakob var einn af lærisveinum Krists og er verndardýrlingur Spánar. Margar sögur eru til af því af hverju hörpuskelin varð fyrir valinu sem tákn en ein útgáfan hljóðar svo að aðalsmaður nokkur ætlaði að gifta sig. Hann fór ríðandi á vesturströnd Spánar. Hesturinn fældist undir honum og hljóp í sjóinn. Aðdjúpt var og maðurinn ósyndur. Heilagur Jakob lyfti þá manni og hesti úr sjó og voru þeir alsettir hrúðukörlum og hörpuskeljum. Hér er kort af leiðinni sem fjórmenning- arnir hjóluðu. Kristinn hæstánægður með að hafa náð í þrettán hundruð metra hæð. Ný ferðaskrifstofa og umferðar- miðstöð Iceland Excursions Allra- handa var opnuð með pompi og pragt síðastliðinn miðvikudag. Ferðaskrifstofan er í Höfðatúni 12 í Reykjavík. Þórir Garðarsson mark- aðsstjóri segir að eftir að Bifreiða- stöð Íslands var einkavædd hafi Iceland Excursions verið meinaður aðgangur að aðstöðu þar. „Það var því ekki um annað að ræða en að opna eigin umferðamiðstöð nálægt miðbænum, þar sem góð tenging væri við almenningssamgöngur og staðsetningin góð með tilliti til hótela,“ segir Þórir. „Niðurstaðan varð að færa söluskrifstofuna í stórt og glæsilegt húsnæði í Höfða- túni, steinsnar frá Hlemmi, aðal- bækistöð Strætó bs. „ Bifreiðafloti félagsins hefur verið endurnýjaður verulega und- anfarin ár og í dag er félagið er með einn yngsta hópferðabílaflota á Ís- landi. Hjá Iceland Excursions Allrahanda starfa á milli 50-70 manns. Auk þess að vera ferðaskrifstofa annast félagið akst- ur fyrir fatlaða, sér um almenningsvagnaþjónustu fyrir Mosfellsbæ og er með almenna rútubílaþjónustu. ■ Iceland Excursions Allrahanda: Ný ferðaskrifstofa í Höfðatúni Smáauglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.