Fréttablaðið - 04.11.2004, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 04.11.2004, Blaðsíða 44
Baugur í banka Menn biðu spenntir eftir því hvort einhver stór við- skipti yrðu með bréf Íslandsbanka fyrir hluthafa- fundinn í gær. Skömmu fyrir fund skiptu bréf að verðmæti tæplega 1,5 milljarðar um hendur og þar með atkvæðisréttur upp á tæp 1,5 prósent. Bankinn hafði lækkað um morguninn líkt og mörg önnur fyrir- tæki, en rétti síðan úr kútnum. Við- skiptin voru á genginu 9,7 og kaup- andinn var Baugur. Nokkuð er um lið- ið síðan Jón Ásgeir Jóhannesson, for- stjóri Baugs, stóð í slag í kringum Ís- landsbanka og ekki loku fyrir það skotið að hann hafi ætlað að leggja lóð á vogarskálar ef kosið yrði í bankaráðið. Lokagengi Íslandsbanka var 10 í gær og Jón Ásgeir með þriggja prósenta ávöxtun frá hádegi eða 46 milljónir. Geest á matseðlinum Breska matvælafyrirtækið Geest hækkaði á mark- aði eftir að fjármálafyrirtækið Citigroup hækkaði verðspá sína á fyrirtækið. Ástæða hækkunar mats- ins er sú að Citigroup telur næsta víst að Bakkavör ætli sér að yfirtaka fyrirtækið. Sérfræðingar á breska markaðnum búast við allt að 650 pensum fyrir hlutinn í Geest, en gengið í gær var 572 pens á hlut. Bakkavör hefur ekkert mátt aðhafast við yfirtöku, en leiðin verður greið 28. nóvember. Venja er að menn sýni þá kurteisi að ryðjast ekki í yfir- töku á fyrsta degi. Breskir sérfræðingar bú- ast við að lagt verði í hann í byrjun desember. Bakkavör og Geest framleiða kældar matvörur og auðvitað hugsanlegt að kæl- ingu verði beitt á hlutabréf Geest ef verðið spennist upp, líkt og KB banki gerði við Sin- ger and Friedlander. Peningaskápurinn… MESTA HÆKKUN ICEX-15 3.309 KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ] Fjöldi viðskipta: 718 Velta: 7.497 milljónir +2,89% MESTA LÆKKUN MARKAÐSFRÉTTIR... 24 4. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR Lending náðist við kjör í bankaráð Íslandsbanka. Hún náðist þó ekki fyrr en á elleftu stundu, rétt áður en hluthafafundur hófst. Allt fram til síðustu mínútu fyrir hluthafafund Íslandsbanka leit út fyrir að fylkingar tækjust á um kjör í bankaráð Íslandsbanka. Fylkingar náðu saman rétt áður en fundur hófst og dró einn full- trúi hvorrar fylkingar framboð til baka og varð því sjálfkjörið í bankaráðið. Einar Sveinsson var endurkjörinn formaður banka- ráðsins, en auk hans voru úr fylk- ingunni kjörin í bankaráðið Karl Wernersson, Jón Snorrason, Ró- bert Melax og Steinunn Jónsdóttir. Steinunn er fyrsta konan sem kjörin er aðalmaður í bankaráð Ís- landsbanka. Þessi hópur hefur nú fulla stjórn á bankanum og fylkir sér að baki forstjóra bankans, Bjarna Ármannssonar. Hin fylkingin fékk tvo fulltrúa, þá Helga Magnússon og Úlfar Steindórsson. Úr bankaráðinu fóru Víglundur Þorsteinsson, Guð- mundur B. Ólafsson og Orri Vig- fússon, en Orri var kjörin vara- maður í bankaráðið. Þessi fylking telur sig eiga meira inni, en Straumur gat ekki nýtt átta pró- sent af hlut sínum í bankanum vegna þess að ekki liggur fyrir heimild Fjármálaeftirlitsins til eignar meira en tíu prósenta hluts Straums í bankanum. Hin fylkingin mat stöðuna svo að lífeyrissjóðir ætluðu sér ekki að blanda sér í átök um stjórn bank- ans og því einsýnt að ekki væru at- kvæði fyrir nema einum manni miðað við að Straumur gæti ekki beitt fullum atkvæðisrétti. Með þessari niðurstöðu er talið að friður verði um stjórn bankans um sinn. Hins vegar má búast við að aftur verði tekist á um stjórn bankans þegar og ef Fjármálaeftir- litið samþykkir hæfi Straums til að eiga virkan eignarhlut í bankanum. Bjarni Ármannsson, forstjóri bankans, fór yfir rekstur hans að undanförnu. „Það eru spennandi tímar fram undan hjá Íslands- banka. Markviss vöxtur hefur skil- að sér í traustum rekstri og mikilli arðsemi,“ sagði Bjarni við hlut- hafa bankans. Engin sundrung einkenndi hlut- hafa bankans á fundinum. Einróma var samþykkt heimild til stjórnar til hlutafjáraukningar sem bank- inn hyggst nýta til frekari sóknar. haflidi@frettabladid.is vidskipti@frettabladid.is Actavis Group+1,38... Bakkavör Group+5,86%... Burðarás hf. +1,28%... Atorka +3,00%...Grandi +0,00%... Íslandsbanki +0,00%... KB banki +6,09%... Landsbankinn +0,00%... Marel +4,53%... Medcare Flaga -0,81%... Og fjarskipti... +2,10%...Opin Kerfi +1,52%... Samherji +0,00%... Straumur +0,00%... Össur -1,74% Náðu samstöðu Hlutabr.sj. Bún.bankans -1,95% Össur hf. -1,74% Medcare Flaga -0,81% Landsbanki Ísl. hf. -6,69% Og fjarskipti hf. -6,20% Tryggingamiðst. hf. -4,76% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: nánar á visir.is sem gerast áskrifendur að DV í 12 mánuði sem greiða með boðgreiðslum eða beingreiðslum Sláðu til og komdu í hóp ánægðra áskrifenda DV. Allir þeir sem gera 12 mánaða áskriftarsamning geta valið sér eina af þessum gjöfum. Takmarkað upplag er af hverri gjöf þannig að það er ekki eftir neinu að bíða. Hringdu í síma 550 5000 og tryggðu þér áskrift að spennandi blaði - og veldu þér eina gjöf. Áskriftarsíminn er 550 5000 - Hringdu núna! Besta blandan - Þeir sem búa utan dreifingarsvæðis Fréttablaðsins og gerast áskrifendur að DV fá Fréttablaðið og Birtu með - ókeypis. Hvað vilt þú fá? 1 DVD - spilari frá Radíóbæ 4 mánaða leiga á öryggiskerfi ásamt uppsetningu! Gisting í eina nótt fyrir tvo á Hótel Örk3 2 Öryggiskerfið er með: • Innbyggðum hreyfiskynjara • Dyra- og gluggaskynjara • Fjarstýringu með neyðar- og ræsihnapp í lyklakippu -kominn tími til Til sölu hjá um helgar sími 845-6701 NÝ TORFÆRUHJÓL ÁRGERÐ 2005 á ótrúlegu verði 3 litir gult, svart, orange, rautt 2 vélastærðir 150 cc kr. 298.000,- 200 cc kr. 329.000,- Hagnaður Kaldbaks nam 1.737 milljarðar króna á þriðja ársfjórð- ungi. Hagnaður félagsins skiptist þannig að óinnleystur hagnaður nemur 1.149 milljörðum en inn- leystur hagnaður nemur 587 millj- örðum króna. Decode tapaði 856 milljónum króna á þriðja ársfjórðingi og hefur taprekstur félagsins aukist til muna frá sama tíma í fyrra þegar þegar tæplega 90 milljón króna tap var á rekstrinum. Skýring auk- ins taps er minnkandi tekjur og aukin vaxta- og þróunakostnaður. Gengi krónunnar hækkaði um 0,45% í gær. Gengisvísitalan fór lægst í 120,50 en hún byrjaði dag- inn í 121,20. Gengi dollara lækkaði í dag einkum vegna óvissu tengda for- setakosningum. Fjárfestar önduðu léttar í gær, en úrvalsvísitala Kauphallar Ís- lands hækkaði eftir tíu daga lækkun. Sérfræðingar á markaði telja að búast megi við áframhald- andi sveiflum á markaði, en lækkunarhrinunni löngu sé lokið í bili. Vísitalan hækkaði um 2,89 prósent og réttu nokkur félög verulega úr kútnum frá deginum áður. ■ Loksins hækkun FRIÐUR Í BILI Talsverðar breytingar urðu á bankaráði Íslandsbanka í gær. Forstjóri bankans nýtur óskoraðs stuðnings meirihluta nýja bankaráðsins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.