Fréttablaðið - 04.11.2004, Blaðsíða 55

Fréttablaðið - 04.11.2004, Blaðsíða 55
FIMMTUDAGUR 4. nóvember 2004 35 Heillandi ráðgáta „Það á ekki að mæla lífið í gáfum. Það á að mæla það í gleði,“ segir á einum stað í Barn að eilífu, heillandi sögu um óvenjulegt lífshlaup föður og dóttur. Bókin fylgir sögu dótturinnar frá fæðingu til átján ára aldurs og það er óhætt að segja að frásögnin er æði skrautleg, að minnsta kosti lengi fram- an af. Dóttirin, sem virðist vægast sagt bráðger – farin að ganga sjö mánaða, tala, jafnvel mynda heilar setningar upp úr eins árs og virðist þroskast um tvö ár í senn fram til þriggja, fjögurra ára; vekjandi furðu og hrifningu þeirra sem á horfa og hlýða, væntingar for- eldra og ættingja – reynist búa yfir leyndum galla. Að vísu eru vissir þættir í fari barns- ins unga sem vekja upp áleitnar efa- semdir um þroskaferli og hegðunar- mynstur hjá foreldrunum strax þessi fyrstu ár en er vinkað í burtu af þar til gerðum starfsmönnum heilbrigðis- kerfisins. Langar og óeðlilegar vökunætur, höfnun barnsins á snert- ingu virkar ekki eðlilega á foreldrana en þeim er sagt að þetta lagist. Ekkert lagast. Allt versnar. Og þar kemur að foreldrarnir standa frammi fyrir því að horfa upp á barnið sitt þroskast aftur á bak í stað þess að þroskast áfram. Margar bækur hefur maður lesið um átök fólks við lífið – en enga eins og þessa. Þótt hér sé sagt frá lífs- reynslu sem er full af öfgakenndum sársauka, er sagan svo skemmtileg að það er ekki hægt að leggja bókina frá sér. Dóttirin, sem er hrikalega erfið, er svo uppátækjasöm, sniðug og skemmtileg að það er ekki hægt ann- að en að heillast af henni, jafnvel þótt samúðin með foreldrunum risti djúpt. Um það leyti sem stúlkan byrjar í skóla, er afturábak-ferlið í þroska hennar orðið ljóst – og síðan versnar ástandið andlega og líkamlega. Allir standa ráðþrota frammi fyrir meini sem ekki er hægt að skilgreina eða gefa heiti til þess að róa skilningsvana og dómhart umhverfið. Foreldrarnir sitja uppi með barn sem lætur ekki að stjórn og hafa ekkert haldbært til þess að útskýra, eða réttlæta, hegðun þess. Barnið er ráðgáta. Sigmundur Ernir hefur valið að segja söguna blátt áfram, upphrópun- ar- og dramalaust. Þetta er saga af hversdagslífi mjög óvenjulegrar fjöl- skyldu. Frásögnin er æðrulaus, svo full af ást og hlýju – allri þeirri ást og hlýju sem barnið hafnaði – að stúlkan sem örugglega enginn vildi eignast, eignast nógu mikið pláss í hjarta lesandans til þess að honum finnist hann hafa rétt á að spyrja hvað sé að frétta af henni núna. Eins og hverjum öðrum ná- komnum ættingja. Barn að eilífu er einhver fallegasta og besta lífsreynslusaga sem ég hef lesið, auk þess að vera margfalt betur skrifuð en maður á að venjast. Hún er saga um ógnvekjandi hliðar kærleik- ans, takmarkalausa og sanna ást og eftir lestur bókarinnar stendur maður frammi fyrir því að hafa hlotið óvenju- lega lífsreynslu og aukinn skilning á margbreytileika lífsins. 0 50.000 100.000 150.000 200.000 Fréttablaðið Ríkissjónvarpið Stöð 2 Morgunblaðið Skjár 1 *F jö lm ið la kö nn un G al lu ps , o kt ób er 2 00 4. T ek ið e r t ill it til fr íd re ifi ng ar M bl . Te ki nn e r m eð al le st ur p r. da g og u pp sa fn að m eð al áh or f á s jó nv ar p pr . d ag . ** A BS -s ký rs lu r u m m ag n í d ag bl öð um Bilið breikkar Mest notaði fjölmiðill á Íslandi - daglega Viðskiptavinirnir velja Fréttablaðið! Fréttablaðið er sá fjölmiðill sem flestir Íslendingar koma að á hverjum degi* Að meðaltali 69% landsmanna les eða flettir blaðinu hvern dag. Ríkissjónvarpið er í öðru sæti, en 62% landsmanna að meðaltali fylgist með því á hverjum degi. Morgunblaðið er fallið í 4 sætið, og sé tekið tillit til frídreifingar í könnunarvikum er blaðið nú komið niður í tæp 46% í lestri*. Yfirburðir Fréttablaðsins á dagblaðamarkaðnum eru verulegir. Það er alveg sama hvaða hópur er skoðaður. Fréttablaðið gnæfir yfir aðra prentmiðla á markaðnum. Stærstu birtingahúsin á landinu verja nú yfir 70% af dagblaðabirtingamagni sínu í Fréttablaðið - eðlilega.** Hvar er þín auglýsing? M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN 1 1 0 4 69% 62% 55% 46% 38% Fjöldi lesenda/áhorfenda Hjá Almenna bókafélaginu erkomin út Rauð mold eftir Úlfar Þormóðsson. Um er að ræða sögu- lega skáldsögu, sjálfstætt framhald af Hrapandi jörð sem kom út 2003 og fjallar um Tyrkjaránið og ferð hinna her- leiddu Íslendinga suð- ur. Í Rauðri mold er lýst lífsbaráttu Íslend- inganna í þessum nýja veruleika; persónurnar heyja harða baráttu við andsnúin yfirvöld, veita lífi sínu í nýjan og ókunnan far- veg og kljást við ágenga heimþrá. Og á sama tíma taka Íslendingarnir þátt í heiftugum átökum í æðstu stjórn hins nýja heimalands. Samhliða meginfrá- sögn bókarinnar eru raktar ævintýra- legar örlagasögur sem fléttast listilega saman við söguþráðinn og mynda sterka heild sem er í senn spennandi, fróðleg og sveipuð suðrænni dulúð. Vaka/Helgafell hefur gefið út Sak-leysingjana eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Dagur Alfreð Huntingfield fæddist á hurð á norðanverðu Íslandi á fyrri hluta 20. aldar. Bernska hans er viðburðarík, hann flyst út í heim og í lífi hans vegast á ljós og skuggar áður en örlögin leiða hann aftur til Íslands. Eftir sársaukafullt upp- gjör rifjar hann upp ótrúlegt lífshlaup sitt til þess að leggja í dóm annarra hvort hann sé sekur eða saklaus. Í þessari áhrifamiklu bók hrífur Ólafur Jóhann Ólafsson les- andann með í magnað ferðalag þar sem sögusviðið er Ísland, England, Indland og Bandaríkin. Um leið og óvenjuleg ævi og örlög Dags Alfreðs eru í forgrunni fléttast inn í líf hans saga margbrotinna einstaklinga – og þeirrar aldar sem nú er að baki. Sak- leysingjarnir eftir Ólaf Jóhann Ólafsson er stórbrotin saga um mannlegan breyskleika, djúpa einsemd, ást, sökn- uð og mikil örlög. Hjá Máli og menningu er komin útljóðabókin Lesarkir landsins eftir Sigurlaug Elíasson. Í bókum sínum hefur Sigurlaugur þró- að ljóðmál sem með tilstilli jarðbundinna lýsinga er nákomið og þekkilegt en hefur um leið fólgið í sér breidd og dýpt. Í Lesörkum landsins er myndmál- ið ríkt og gjöfult, sum- arljóð og glaðlegar svipmyndir áber- andi; sólskin og gróður, náttúra, veiði- skapur og kímni. Sigurlaugur er mynd- listarmaður og rithöfundur, búsettur á Sauðárkróki. Lesarkir landsins er átt- unda ljóðabók hans en fyrsta bók hans, Grátónaregnboginn kom út 1985. JPV útgáfa hefur sent frá sér bókinaHeppin eftir Alice Sebold en á síð- asta ári kom út eftir sama höfund met- sölubókin Svo fögur bein. Áleitnar minn- ingar Alice Sebold um þá reynslu að vera barin og nauðgað átján ára að aldri gríp- ur lesandann sterkum tökum og heldur hon- um föngnum. Með beittum húmor og næmu auga fyrir fjarstæðukenndum aðstæðum sem komið geta upp í lífinu lýsir hún tilveru sinni sem ungur háskólanemi fyrir og eftir hrottafengna líkamsárás, hvernig hún berst hatrammlega gegn einangr- un og fordómum og baráttu hennar við að ná fram réttlæti í dómskerfinu. NÝJAR BÆKUR BÆKUR SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR Barn að eilífu Höf: Sigmundur Ernir Rúnarsson. Útgefandi: JPV útgáfa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.