Fréttablaðið - 02.12.2004, Page 4
4 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR
MÓTMÆLI Hópur fólks mótmælti
stuðningi Íslands við innrásina í
Írak fyrir framan alþingishúsið í
gær, líkt og undanfarna daga.
Minna var þó um að alþingismenn
ræddu við mótmælendur en daginn
áður því þingstörf lágu niðri í gær.
Í dreifibréfi sem einn af skipu-
leggjendum mótmælanna sendi í
tölvupósti kemur fram að skiltin
hafi á þriðjudaginn vakið nokkur
viðbrögð meðal þingmanna sem
sumir hafi jafnvel reiðst mjög orða-
laginu sem á þeim er viðhaft. Í
dreifibréfinu kemur fram að til
nokkurra orðaskipta hafi komið, en
niðurstaða mótmælendanna eftir
þau hafi verið að frekar væri þörf á
fleiri skiltum en færri.
Mótmæli þessi hafa þó ekki ver-
ið ýkja fjölmenn, á þriðjudaginn
voru átta manns sem mótmæltu
þegar fjölmennast var og í hópnum
voru sex þegar ljósmyndara bar að
garði í gær. - óká
ÁTVR segir að ekkert
útboð hafi farið fram
Forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins segir að ekkert útboð hafi farið fram í Hveragerði.
Auglýst hafi verið eftir samstarfsaðila. Eigandi Sunnumarkar vísar rökum forstjórans á bug.
MÁLAFERLI Forsvarsmenn Áfengis-
og tóbaksverslunar ríkisins þver-
taka fyrir það að útboð hafi farið
fram vegna reksturs vínbúðar í
Hveragerði. Fréttablaðið greindi
frá því í gær að verið væri að und-
irbúa stefnu gegn ÁTVR fyrir brot
á lögum um framkvæmd útboða.
Stefna er meðal annars byggð á því
að tilboð hafi ekki verið opnuð að
bjóðendum viðstöddum og enginn
þeirra hafi fengið upplýsingar um
það hvað Essó, sem fékk rekstur-
inn, bauð.
Í bréfi sem Höskuldur Jónsson,
forstjóri Áfengis- og tóbaksversl-
unarinnar, sendi Fréttablaðinu í
gær kemur fram að auglýst hafi
verið í blöðum eftir leiguhúsnæði
og samstarfsaðila í Hveragerði.
Leyfi hafi fengist hjá bæjaryfir-
völdum að leggja fram möppu með
gögnum um málið á skrifstofu
bæjarins.
„Hvergi í gögnum eða auglýs-
ingu var minnst á útboð.“ segir í
bréfi Höskuldar. „Í lok auglýsing-
arinnar segir: Með allar upplýsing-
ar verður farið sem trúnaðarmál.“
Hins vegar kemur fram í bréf-
inu að þó ekki hafi verið um útboð
að ræða hafi ÁTVR óskað eftir því
að fulltrúi fjármálaráðuneytisins
yrði viðstaddur opnun tilboðanna.
Vegna þess að málið hafi verið skil-
greint sem trúnaðarmál hafi ekki
verið tilefni til að biðja um nær-
veru tilboðsgjafa. Í bréfi Höskuld-
ar kemur fram að þó ÁTVR telji sig
ekki þurfa að taka lægsta boði í
krónum talið hafi „langhagstæð-
asta“ tilboðið komið frá Essó.
„Að huglægu og peningalegu
mati loknu ákvað ÁTVR að ganga
til samninga við Olíufélagið ehf.,“
segir í bréfinu.
Höskuldur furðar sig á því að
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri SS verktaka sem á
Sunnumörk, sé að undirbúa stefnu
þar sem hann hafi ekki gert tilboð.
Sveinbjörn segist vera að undirbúa
málsókn sem eigandi húsnæðisins.
Spurður um rök ÁTVR fyrir því að
þetta hafi ekki verið útboð, segir
Sveinbjörn: „Hvað var þetta þá?
Auðvitað var þetta útboð. Þegar
ákvörðun var tekin um að opna vín-
búð í Hveragerði sögðu forsvars-
menn ÁTVR sjálfir að þeim væri
ekki stætt á öðru en hafa útboð.“
Þessi skoðun Sveinbjörns virð-
ist vera nokkuð almenn meðal ein-
staklinga á Suðurlandi sem hafa
gert tilboð í rekstur ÁTVR en ekki
fengið. Þegar Fréttablaðið ræddi
við nokkra einstaklinga sem buðu í
reksturinn á Vík, Kirkjubæjar-
klaustri og Þorlákshöfn voru þeir
sammála um að á þessum stöðum
hefðu farið fram útboð. Höskuldur
sagði hins vegar í Fréttablaðinu í
gær að þar hefði ekki verið um út-
boð að ræða heldur verðkönnun.
trausti@frettabladid.is
Opnaðir þú jóladagatal í morgun?
Spurning dagsins í dag:
Hefur þú áhyggjur af fuglaflensu?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
81,3%
18,7%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
Hæstiréttur:
Hafnar
vitnavernd
DÓMSMÁL Maður, sem ákærður er
fyrir að ráðast á mann vopnaður
öxi á veitingastaðnum A. Hansen í
Hafnarfirði í byrjun september,
þarf ekki að víkja úr réttarsal á
meðan vitni koma fyrir réttinn.
Kemur þetta fram í dómi Hæsta-
réttar sem sneri ákvörðun Hér-
aðsdóms Reykjaness um að vitni
fengju vitnavernd.
Þótti Hæstarétti ekki nægilega
sýnt fram á raunverulega ógn við
öryggi vitnanna. Þrjú vitni sem
notið höfðu nafnleyndar við
skýrslutöku hjá lögreglu höfðu
óskað eftir áframhaldandi nafn-
leynd við dómsmeðferð. - hrs
KEYRÐI Á UMFERÐARLJÓS Öku-
maður keyrði á umferðarljós á
gatnamótum Strandgötu og Gler-
árgötu um klukkan hálf tvö í
fyrrinótt. Engin slys urðu á fólki.
Ekki lágu fyrir upplýsingar um
hvað varð til þess að ökumaður-
inn missti stjórn á bíl sínum.
„Fróðleg og skemmtileg“
„Málsvörn og minningar er fróðleg lesning,
oft skemmtileg og stundum nærgöngul.“
- Silja Aðalsteinsdóttir, Mbl.
Matthías Johannessen
skáld gerir upp við samtíma
sinn í þessari hressilegu
bók. Hann var í áratugi í
eldlínu þjóðfélagsumræð-
unnar, nú horfir hann á
vígvöllinn úr fjarlægð sem
veitir honum færi á að
greina og túlka það sem
hann sér.
Innlifun og eldmóður
einkenna stíl skáldsins
sem fer geyst og kemur
víða við.
Matthías les úr bók sinni á
Súfistanum í kvöld
- Allir velkomnir!
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Dæmdur í fangelsi:
Stal jakka og
debetkorti
DÓMSMÁL Maður á fimmtugsaldri
var í vikunni í Héraðsdómi Norð-
urlands eystra dæmdur í þrjátíu
daga fangelsi fyrir að stela jakka
og debetkorti síðasta sumar.
Debetkortið var í jakkanum,
sem maðurinn stal af þvottasnúru
á Akureyri. Maðurinn notaði kort-
ið í viðskiptum og stal af reikningi
þess tæplega átta þúsund krónum.
Hann játaði brotið og hefur að
fullu bætt tjónið sem hann olli.
Þótti því mega dæma hann til lág-
marksrefsingar, sem þó var ekki
hægt að skilorðsbinda vegna
sakaferils hans. - hrs
MÓTMÆLI VIÐ ALÞINGISHÚSIÐ
Síðustu daga hefur komið saman nokkur
hópur fólks með mótmælaskilti á Austur-
velli í þeim tilgangi að mótmæla stuðningi
Íslands við innrásina í Írak.
Mótmæli framan við Alþingishúsið:
Þingmenn reiðast
orðalagi mótmælenda
FORSTJÓRI ESSÓ TALAÐI
UM ÚTBOÐ
Þegar fjallað var um verslunarrekstur
Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins í
Hveragerði í júní í sumar sagði Hjörleif-
ur Jakobsson, forstjóri Essó, að um út-
boð væri að ræða.
„ÁTVR bauð út eða óskaði tilboða í
samstarf um þennan rekstur og í þeim
útboðsgögnum var mjög vel skilgreint
hver stærð verslunar ætti að vera,
opnunartími og svo framvegis,“ sagði
Hjörleifur í Ríkisútvarpinu 16. júní. „Við
buðum einfaldlega hagstæðast í þann
rekstur og okkur finnst að það sé það
sem skiptir máli í þessu sambandi.“
FORSTJÓRI ÁFENGIS- OG TÓBAKSVERSLUNAR RÍKISINS
Höskuldur Jónsson sendi Fréttablaðinu bréf í gær þar sem hann þvertekur fyrir það að út-
boð hafi farið fram um rekstur vínbúðar í Hveragerði.