Fréttablaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 54
Íslenskir hönnuðir hafa verið að geraþað gott erlendis undanfarið. Einnþeirra er Sigurður Gústafsson, arkitekt, en hann hefur hlotið mikið lof fyrir hönnun sína og hefur sænski hús- gagnaframleiðandinn Sven Lundh hjá Kallemo framleitt og markaðsett hönn- un eftir hann. Sigurður er margverð- launaður og hefur meðal annars hlotið sænsku Bruno Mattson verðlaunin og Torsten og Wanja – Söderbergs- verðlaunin sem voru afhent í nóvember í fyrra, en það eru einhver eftirsóttustu hönnunarverðlaun Skandinavíu. Í kjöl- farið var honum boðið að vera með yfirlitssýningu yfir hönnun sína í Röhsska safninu í Gautaborg en auk þess hefur Sigurður sýnt um allan heim, meðal annars í Rússlandi og Kína. Sigurður er nýkominn frá Svíþjóð en þar stjórnaði hann workshop með ungum dönskum og sænskum hönnuð- um um Hans J. Wegner, einn þekktasta núlifandi hönnuð Dana. Skortur á hefð er bæði kostur og galli Sigurður segir landamæri lista og hönnunar að renna saman og að menn séu auknum mæli farnir að sækja innblástur inn í listköpun. „Þetta er breyting frá því sem var þegar list- formið var bannorð í heimi hönnuða,“ segir Sigurður. En hvernig fær Sigurður hugmyndir sínar að hönnun sinni? Hann segir hönnuð verði að læra að skynja um- hverfi sitt á skapandi hátt í stað þess að njörva allt niður að þetta sé hönnun og annað sé list. Hann er til dæmis alin upp við sjómannahefð og notfærir sér þann bakgrunn í sinni hönnun, bæði báta og haf. „Maður endurspeglar land sitt og tíma í hönnun sinni.“ En hvað með íslenska hönnunar- hefð? Sigurður segist sjá bæði kosti þess og galla að ekki sé meiri hefð fyrir íslenskri hönnun. „Við höfum til dæmis ekki einhverja risa eins og Arne Jakobsen og Hans J. Wegner hjá Dönum, sem gnæfa yfir öllu og eru viðmið fyrir alla hönnunarframleiðslu í Danmörku. Þetta hefur til að mynda háð og heft unga danska hönnuði þó nokkuð.“ Vakning hjá íslenskum stjórnvöldum Sigurði segir að þó íslenskum stjórn- völdum skorti smá skilning á því að styrkja þá hönnuði sem þegar hafa skapað sér nafn, þá sé nokkur vakning í gangi og margt gott hafi gerst á undan- förnum árum. Stjórnvöld hafi smám saman gert sér grein fyrir því að íslensk hönnun sé góð auglýsing fyrir íslenska menningu. Þannig hafi sendiráð Íslands í Svíþjóð, í samvinnu við sænska inn- flutningsráðið, komist í samband við sænska húsgagnaframleiðendur sem hafa áhuga á að framleiða húsgögn eftir íslenskum teikningum og ráðgert sé halda sýningu á íslenskri hönnun á næsta ári í Svíþjóð. Þetta segir Sigðurður vera mjög jákvæða þróun því auk þess sé hér á landi starfandi hönnunarmiðstöð og hönnunarsafn. Ungir íslenskir hönn- uðir ættu því að sjá fram á bjarta tíma í framtíðinni. ● F2 22 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR Allir klárir í bátana – stökkir að utan, mjúkir að innan! ar gu s 04 -0 71 3 Fröken Freyja leysir vandann Freistingar Það hefur lengi verið eitthvað í gangi milli mín og konu sem vinnur með mér en er þó í annarri deild. Mér finnst spennan á milli okkar næstum áþreifanleg þegar ég hitti hana í mötuneytinu, svo ekki sé talað um þegar við mætumst ein við kaffivélina. Hún er í sambúð en það er jólaglögg framundan og ég er að velta fyrir mér hvort ég eigi að láta til skarar skríða? KHG, Reykjavík Freistingar eru til að falla fyrir þeim. Svo einfalt er það. Allt er leyfilegt í stríði og ástum. Ef þú ert einhleypur skaltu berjast með sverði og skildi til að ná þessari konu í jólarekkjuna til þín. Jólaglögg er tilvalin stund til þessarar orrustu, sem ég reyndar hef á tilfinningunni að sé unnin nú þeg- ar. Vinnupartí eru til þess fallin að bera uppi lostafullar játningar til vinnufélaganna, sofa hjá þeim og sleppa sér lausum án makans. Þeir sem mæta í makalaus staffapartí eru hvort eð er lausari í rásinni, tilkippilegri og oftar en ekki með það að markmiði að gera eitthvað syndsamlegt af sér. Óþolandi óþekktarormur Besta vinkona mín á fimm ára son sem er svo fordekraður að hann er að gera mig vitlausa. Þegar þau koma í heimsókn hleypur hann upp um alla veggi og um daginn braut hann fyrir mér forláta postulíns- vasa sem amma mín heitin gaf mér. Það var nógu slæmt út af fyrir sig, en enn þá verra að mamma hans skammaði ekki einu sinni strák- skrattann. Hefði það verið með öllu óviðunandi að ég hefði tekið aðeins í hnakkadrambið á honum? Þetta var nú einu sinni vasinn minn. BH, Hafnarfirði Sko! Vasinn var þér dýrmætur með tilfinningalegt gildi. Óbætanlegt tjón fyrir þig. Ekki rís amma þín upp frá dauðum með annan vasa að gjöf! Skinnið á krakkaorminum jafnar sig hins vegar furðu fljótt þótt þú takir aðeins í rassinn á honum. Reyndar heyrist mér það vera orðið tímabært að einhver taki að sér að sýna vin- konu þinni hvernig ala á upp soninn. Sniðugast af öllu væri að þú leggðir hana sjálfa á kné þér og veittir ærlega ráðningu því auðvit- að er það hún sem ber ábyrgð á hegðun piltsins og virðingar- leysi hans fyrir ann- arra manna heimilum. Sendið fyrirspurnir og vandamál til fröken Freyju, F2, Skaftahlíð 24, 105 Rvk eða sendið henni tölvupóst á netfangið frkfreyja@frettabladid.is. Nöfn sendenda verða ekki gefin upp í blaðinu. Sigurður Gústafsson. „Maður endurspeglar land sitt og tíma í hönnun sinni.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI Sigurður Gústafsson Verðlaunahönnuður Nú er tími kerta og jólakransa og eykst brunahættan samfara því. Til þess að sporna við þessari hættu hefur danski hönnuðurinn og arkitektinn Knud Johannsen hannað sjálfvirkan kerta- slökkvara, sem kom á markað fyrir síð- ustu jól í Danmörku, en fyrirtækið Zenax ehf. hóf innflutning á því í haust til Íslands og fæst hann nú í flestum blóma - og gjafavöruverslunum. Guðrún Brynjólfsdóttir hjá Zenax, segir kertaslökkvarann vera gott öryggis- tæki en eigi ekki að leiða til kæruleysis í kringum kertin. „Þetta tæki er hannað, ef svo kynni að fara að einhver gleymdi að slökkva á kertunum. En auðvitað á fólk alltaf að ganga úr skugga um að öll kerti séu slökkt áður en farið er út eða að sofa.“ Tækið er hringur með litlum örm- um, sem er smeygt uppá kert- ið, í þeirri hæð sem fólk kýs að láta það brenna að. A m a r n i r kæfa svo l o g a n n , þegar hann er kominn í þá hæð Aðspurð hvort að Íslendingar séu að kaupa sér svona tæki segir Guðrún landa sína ekki alveg vera vaknaða til vitundar um þann eldmat sem er í kertum og jólakrönsum. „Fólk þarf að venja sig af þeim hugsunarhætti að þetta kemur ekki fyrir hjá mér.“ Nýr öryggisbúnaður fyrir kerti og jólakransa Hannaður af dönskum arkitekt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.