Fréttablaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 26
Kertastjakar
Jólin eru sannarlega hátíð ljóssins. Þess vegna má ekki vanta kertastjaka á
heimilið. Gerðu þér ferð og skoðaðu helstu verslanir í bænum og ekki
hætta fyrr en þú finnur hinn fullkomna kertastjaka.[
Sígildur kollur með gæru
Árið 1972 hannaði og smíðaði Sig-
urður Már Helgason koll sem sló í
gegn og varð einhver vinsælasta
fermingargjöf allra tíma. Að auki
hannaði Sigurður umbúðir utan
um kollinn og fékk verðlaun fyrir,
enda umbúðirnar sérlega sniðug-
ar og handhægar, með sérstöku
handfangi. Stóllinn er nú orðinn
klassík og er á ferðalagi víða um
heim á sýningum. Hann er líka til
á tveimur söfnum, annars vegar í
Noregi og hins vegar í Svíþjóð.
Setan á kollinum er úr íslenskri
gæru og fæst í öllum regnbogans
litum.
Sigurður var í húsgagnahönn-
un á sínum tíma en segist undan-
farin ár aðallega hafa hannað leik-
föng handa barnabörnunum sín-
um. Hann sér líka um smíðavelli
barna fyrir ÍTR. Nú er Sigurður
þó að hugleiða nýja hönnun á koll-
inum fyrir Dorit Moussaieff for-
setafrú. „Hún var að spyrja hvort
ég ætti hann í fleiri útfærslum og
ég hef verið að hugsa um hvernig
ég gæti útfært hann. Ég held ég sé
kominn með það,“ segir Sigurður.
Sigurður er mikill listasmiður
og ákvað einhverju sinni að smíða
eitthvað sem væri svo sérstakt að
það væri ekki til í henni stóru Am-
eríku. „Konan hélt ég væri orðinn
klikkaður en ég smíðaði flugvél
eins og enginn hefur gert áður og
flaug með hana alla leið til Seattle
handa sonarsonunum,“ segir
Sigurður og hlær. ■
Var til á nánast hverju heimili á áttunda áratugnum og er nú kominn í tísku aftur.
Þeir sem eru gefnir fyrir hannyrðir hafa ýmsar leiðir
til að nálgast fallegar hannyrðavörur. Ein er að
kaupa þær gegnum Altex ehf. Í gegnum það má fá
vörur frá Margaretha, sem er stærsta póstverslun
á Norðurlöndum í hannyrðavörum og býður meðal
annars ámálaðan útsaum, harðangur og rya. Að
sjálfsögðu er gott úrval af jólahannyrðum líka.
Ingimar Ísaksson, framkvæmdastjóri Altex,
segir að fyrirtækið hafi síðan það var stofnað,
árið 1998, vaxið hægt og sígandi og þjónusti í
dag alla landsbyggðina auk höfuðborgarsvæð-
isins. Í vörulista sem dreift er að kostnaðar-
lausu til viðskiptavina tvisvar á ári er að finna
mikið úrval af útsaumi við allra hæfi, bæði
fyrir byrjendur og fagfólk. Altex starfar að-
allega sem póstverslun og þegar pantað er úr vöru-
listum eða af vefnum www.altex.is er afgreiðslutíminn
um þrjár vikur. ■
Hannyrðavörur með póstinum
Útsaumur frá Margaretha
Útsaumur frá Margaretha.
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
LISTASMIÐJAN KERAMIK
OG GLERGALLERÍ
MIKIÐ ÚRVAL AF JÓLAKERAMIKI
OG FÖNDURVÖRUM
OPIÐ ALLA DAGA TIL JÓLA
Opið föndurkvöld alla fimmtudaga frá kl. 18-22
t.d. fyrir keramikmálun, korta- og lampagerð
Kothúsum, Garði
Vandaðar heimilis og gjafavörur
Kringlunni - sími : 533 1322
Englavakt
Örryggisgler yfir kerti
5 stk. í kassa
1.200 kr.
]
Sigurður Már fékk verðlaun fyrir umbúð-
irnar sem hann hannaði utan um kollinn.
Kollurinn sjálfur er sígild hönnun.