Fréttablaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 42
Það leika ferskir vindar um kærustu- parið Hugrúnu Dögg Árnadóttur fata- hönnuð og Magna Þorsteinsson, klippara á Rauðhettu og úlfinum. Hugrún hefur unnið að fatahönnun síð- an hún útskrifaðist frá Studio Bercot í París árið 2000 en samhliða því rekur hún skóverslunina Kron á Laugavegi. Í sumar opn- uðu þau aðra Kron-verslun hinum megin við götuna þar sem þau selja fram- sækinn og flottan fatnað frá erlendum hönnuðum á borð við Helle Mardahl, Lundgren og Windinge, By Iben Hoj, Kokon To Zai, Marjan Pejoski, Eley Kishimoto og Wood Wood ásamt hollenska merkinu Humanoid. „Mér fannst þetta vera mín skylda að opna þessa búð fyrst enginn annar var búinn að gera það á undan mér,“ segir hún. „Helle Mardahl er dönsk en hún útskrifaðist frá Central Saint Martins Collage árið 2001. Hún hefur verið að gera rosalega góða hluti og farin að selja hönnun sína í flottum verslunum í Lundún- um þótt hún sé ennþá svolítið „underground“. Á bak við bolamerkið Wood Wood standa tveir danskir strákar og sést það á hönnun þeirra langar leiðir, bæði í litavali og útliti. Þetta eru svona ekta strákabolir með printi. Eley Kishimoto er æðisleg og hefur verið kosin hönnuðir ársins tvö ár í röð. Hún er eiginlega hætt að vera „underground“ því hún er komin upp á yfirborðið og farin að selja í verslunum í Lundúnum og um heim allan. Marjan Pejoski hannaði svanakjólinn á Björk. Mér finnst mjög mikill heiður að fá að selja hönnun hans því hún er „súper- bjútífúl“. Kokon To Zai er hliðar- lína Marjan Pejoski, mjög villt fatalína fyrir stráka sem fer alla leið. Mér finnst mjög flott að blanda þessum bolum og peysum við gallabuxur. By Iben Hoj er danskur hönnuður sem sérhæfir sig í prjónavörum. Línan hennar er kannski aðeins fyrir þær eldri en hún er mjög falleg og elegant. Það eru tvær danskar stelpur sem standa á bak við Lundgren og Windinge. Sú lína er frekar plein og ættu fötin frá þeim að henta öllum hópum. Svo ættu Humanoid-aðdá- endur að geta tekið gleði sína á ný því við erum komin með línuna frá þeim,“ segir Hugrún en hún hafði töluvert fyrir því að fá þessi merki til Íslands og það dugði ekkert minna en að mæta á staðinn og sjarma hönnuðina upp úr skónum. Ég seldi hönnuðunum þá hug- mynd að ég ætlaði að gera þetta sjálf og myndi ekki blanda hönnuninni saman við ódýran fjöldaframleiddan fatnað. Þar sem það var frekar lítill fyrirvari á þessu hjá mér fékk ég sums staðar flíkur frá hönnuðunum sjálfum sem þeir ætluðu að selja í sínum búðum. Eftir jólin verð ég því með breiðari línu frá hverjum hönnuði.“ Laugavegsdama Þó að Íslendingar þyki fljótir að til- einka sér helstu tískutrendin þá þarf oft að mata þá þegar kemur að hönnun. Finnur þú fyrir þessu? „Það þarf að kynna hönnunina fyrir fólki. Ef ég tek strákalínuna Kokon To Zai sem dæmi þá þekkti ég kannski fimm stráka sem ég var viss um að myndu fíla þetta en svo þarf maður bara að kenna öllum hinum. Ég hef samt fengið ótrúlega góðar viðtökur, miklu betri en ég þorði að vona. Það eru margir mjög fegnir að þessi búð sé komin því aðdá- endur framúrst- e f n u l e g r a r hönnunar hafa verið mjög svelt- ir. Það er engin samkeppni því það er engin sams konar versl- un. Ég er því að sinna þeim hópi sem hefur orðið útundan,“ segir hún. En hvaða merki skyldi henni þykja vænst um? Ég elska Helle Mardahl. Ég var búin að velta því fyrir mér í tvö ár að opna þessa búð og þegar ég hitti Helle Mardahl sannfærðist ég um að ég væri með góða hug- mynd og ætti að hrinda henni í framkvæmd. Ég verð þó að viður- kenna að hin merkin í búðinni eru líka í mjög miklu uppáhaldi hjá mér.“ Hugrún er Laugavegskona. Skóverslunin Kron er á Laugavegi 48 en fataverslunin er rétt hinum megin við göt- una að Lauga- vegi 55. Hún getur því hlaupið á milli á bolnum einum fata. Það kom aldrei neitt ann- að til greina en að hafa þessar verslanir á Laugaveginum. Það kemur allt annað fólk á Laugaveginn en inn í Kringlu. Hér vil ég vera því ég er ekki að höfða til fjöldans. Ég vil frekar næra hina,“ segir Hugrún. Þegar hún tekur á móti blaðamanni er hún í ferskjubleikum kjól, með bera handleggi og uppsett hár eins og hefðardama. Ef það væri bjart úti og mið vika myndi ég halda að hún væri að fara á ball, en svona er Hugrún bara. „Ég er mjög mikil dama og er í miklum tengsl- um við kvenlegu hliðina í mér. En svo get ég alveg verið töffari líka. Ég er mjög öfgakennd í þessu. Fer alltaf alla leið í báðu,“ segir hún og brosir út í ann- að. Hún gleymir aldrei að vera kvenleg þó það sé mikið að gera. Í litla fyrirtækinu sínu gengur hún í öll störf, kaupir inn, sér um bókhaldið, fer í máln- ingargallann og breytir búðunum þegar hana langar til þess og svo mætti lengi telja. Hvað um frítímann? Það er ekkert frí. Ég er alltaf eitthvað að stússast í búðunum. Nú, ef ég vil gera mér dagamun fer ég á barinn og fæ mér hvítvínsglas,“ segir hún alsæl. ● F2 10 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR Kærustuparið Hugrún Árnadóttir og Magni Þorsteinsson fara alla leið HÖNNUN FYRIR FÓLK SEM ÞORIR Kokon To Zai er hliðarlína Marjan Pejoskis sem er mjög villt. Línan er sérstaklega hönnuð fyrir stráka og ekki er hægt að segja annað en hún fari alla leið. Humanoid-aðdáendur geta tekið gleði sína á ný því línan frá þeim fæst í Kron. Eley Kishimoto gerir vínberjum góð skil á þessari peysu. Hún hefur verið kosin hönnuður ársins tvö ár í röð í Lundúnum. Helle Mardahl er danskur hönnuður sem útskrifaðist frá Central Saint Marteins hönnunarskólanum árið 2001 og er búin að vera að gera frábæra hluti í tískuheiminum. Marjan Pejoski hannaði svanakjólinn á Björk. Hugrúnu finnst mikill heiður að fá að selja hönnun hans í Kron. Fataverslunin Kron er ekki stór í fermetrum en hönninin rúmast þó ákaflega vel þar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N K AR LS SO N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.