Fréttablaðið - 02.12.2004, Side 6
6 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR
Alþjóðlegi alnæmisdagurinn:
Alnæmisfaraldurinn
ekki náð hámarki
ALNÆMI Alnæmisfaraldurinn hef-
ur ekki náð hámarki í heiminum
að sögn Haralds Briem, sótt-
varnalæknis hjá Landlæknisem-
bættinu. Í gær var alþjóðlegur
baráttudagur gegn HIV og al-
næmi.
„Faraldurinn er hvað lengst
fram genginn í Afríku fyrir sunn-
an Sahara, þar sem hann er að
valda miklu tjóni. Faraldurinn
hefur líklega náð hámarki þar,“
segir Haraldur. „Í löndum eins og
Kína, Indlandi, Suðaustur-Asíu og
Austur-Evrópulöndunum er far-
aldurinn hins vegar á byrjunar-
stigi. Þetta eru gríðarlega fjöl-
menn svæði og eru því miklu
meiri líkur á að hann geti breiðst
enn meira út en við höfum áður
séð.“
Haraldur segir að í þessum lönd-
um fari þeim fjölgandi sem greinist
með alnæmi. Hann bendir á að í
Kína hafi orðið stórslys í blóðgjöf-
um og notkun á blóði. Fjöldi manna
hafa smitast vegna þess hversu
ógætilega hafi verið farið með blóð
á heilbrigðisstofnunum þar í landi.
Að sögn Haraldar hafa fimm
einstaklingar greinst með alnæmi á
Íslandi það sem af er árinu. Einn
maður hafi látist, erlendur ferða-
maður sem lagðist mjög veikur inn
á sjúkrahús og kom í ljós að hann
var með alnæmi. - th
Stefnir í nýjar kosningar
Janúkovitsj og Júsjenkó vilja báðír ógilda forsetakosningarnar. Lögspekingar
þeirra ræða í dag lagabreytingar vegna nýrra kosninga. Þingið samþykkti vantraust
á Janúkovitsj en hann sagðist ekki hlusta á það.
ÚKRAÍNA, AFP Líkur á að Hæsti-
réttur Úkraínu úrskurði forseta-
kosningarnar 21. nóvember síð-
astliðinn ógildar jukust heldur í
gær þegar Viktor Janúkovitsj
forsætisráðherra fór þess á leit
við dómstólinn að hann ógilti
kosningarnar. Áður hafði
stjórnarandstæðingurinn Viktor
Júsjenkó farið þess á leit við
dómstólinn.
Javier Solana, utanríkismála-
stjóri Evrópusambandsins, sagði
í gær að áður en nýjar kosningar
færu fram þyrfti að breyta
lögum um framkvæmd kosninga
og undirbúa aðstæður fyrir
endurteknar kosningar. Solana
sagði jafnframt að lagaspeking-
ar Janúkovitsj og Júsjenkó
myndu hittast í dag til að ræða
hugsanlegar lagabreytingar.
Júsjenkó vill kjósa sem fyrst
og lagði til að kosið yrði 19. des-
ember. Þá þvertók hann fyrir að
endurtaka fyrri umferð kosning-
anna og sagðist aðeins sam-
þykkja að seinni umferð kosn-
inganna, sem nú er deilt um, yrði
endurtekin.
Að óbreyttum lögum verður
að endurtaka báðar umferðir
forsetakosninganna ef kosning-
arnar 21. nóvember verða lýstar
ógildar. Þá geta fleiri frambjóð-
endur bæst í slaginn og eins er
rætt um að Júsjenkó dragi sig í
hlé ef svo fer.
Júsjenkó og Janúkovitsj
ræddu saman í gær ásamt
Leóníd Kúsjma, fráfarandi for-
seta, og erlendum milligöngu-
mönnum. Á þeim fundi sam-
þykkti Júsjenkó að hefja við-
ræður um lausn deilunnar á ný
og hét því að kalla stuðnings-
menn sína frá stjórnarbygging-
um sem þeir hafa setið um og
ekki hleypt starfsmönnum inn í.
„Ég held að ríkisstjórnin sé að
gefa eftir vegna þrýstings frá al-
menningi og vestrænum stjórn-
málamönnum,“ sagði Júsjenkó
og bætti við: „Árangur hefur
náðst í skipulagningu nýrra
kosninga.“
Úkraínska þingið samþykkti
vantraust á ríkisstjórn
Janúkovitsj í gær. Óvíst er þó
hvaða áhrif það hefur því for-
sætisráðherrann neitaði að taka
mark á samþykkt þingsins.
Hann sagðist hvorki taka mark á
niðurstöðu atkvæðagreiðslu sem
færu fram undir miklum þrýst-
ingi, né gæti hann litið svo á að
farið hefði verið að þingsköpum
við framkvæmdina. Kúsjma
getur beitt neitunarvaldi á sam-
þykkt þingsins. ■
Vinnumiðlun
höfuðborgarsvæðisins:
Kennarar
skoða reglur
KJARAMÁL Kennarar hafa sagt upp
störfum í meiri mæli en venjulega
en þó hefur ekki verið um neinar
fjöldauppsagnir að ræða hjá
þeim.
Hugrún Jóhannesdóttir hjá
Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðis-
ins segir að kennarar hafi í þó
nokkrum mæli haft samband til
að kynna sér reglurnar. Hún getur
þó ekki metið strax hversu marg-
ir kennarar hafa sagt upp störfum
þar sem ekki þýði að skrá hjá
vinnumiðluninni sig fyrr en fólk
hætti að fá laun. - ghs
■ EVRÓPA
VEISTU SVARIÐ?
1Hvað er yngsti nemandi Listaháskól-ans, Geir Helgi Birgisson, gamall?
2Hvar í Þórsmörk er nú búið að boraeftir heitu vatni?
3Hve miklu mun hækkun áfengisgjaldsskila í ríkissjóð?
Svörin eru á bls. 46
„Já, ég man eftir Árna Johnsen,
hann var svo skrítinn.“
Gísli á Uppsölum
„Snilldarsaga.“
Jakob Bjarnar Grétarson, DV
Árni les úr bók sinni á
Súfistanum í kvöld
- Allir velkomnir!
Ríkisútvarpið:
Enn tvær
fréttastofur
FRÉTTIR Útvarpsráð afréð á fundi á
mánudag að ráðið yrði í stöðu
fréttastjóra útvarps.
Bogi Ágústsson, forstöðumað-
ur fréttasviðs, hafði mælst til að
ekki yrði ráðið í stöðuna heldur
yrði hann yfirfréttastjóri beggja,
Elín Hirst honum næstráðandi og
vaktstjórar stjórnuðu hvorri
fréttastofunni fyrir sig; sjónvarps
og útvarps. Nokkrar umræður
spunnust um málið en útvarpsráð
var einhuga um að hafna hug-
myndinni og halda í sjálfstæði
fréttastofanna. - gag
Selfoss:
Lést af
slysförum
ANDLÁT Maðurinn sem lést þegar
ekið var á hann á
Eyrarvegi á Sel-
fossi að morgni
sunnudagsins 28.
nóvember síðast-
liðinn hét Svein-
björn Júlíusson,
fæddur 22. des-
ember árið 1963.
Sveinbjörn var
til heimilis að
Reykjamörk 15 í Hveragerði.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og
þrjú börn. ■
Landspítali - háskólasjúkrahús:
Mælt með sam-
einingu stofnana
HEILBRIGÐISMÁL Sameining Rann-
sóknarstofnunar Landspítala - há-
skólasjúkrahúss, Blóðbankans og
Rannsóknarstofu í meinafræði í
eitt rannsóknarsvið er grunnur-
inn að frekari framförum í fag-
legu starfi, hagræðingu og bættri
þjónustu, að því er fram kemur í
skýrslu starfshóps sem forstjóri
sjúkrahússins skipaði um miðjan
september.
Starfshópurinn nefnir samein-
að svið stofnananna lífvísinda-
svið, en í skýrslunni kemur þó
jafnframt fram að hægt væri „að
ná áþreifanlegum árangri með
verulegum umbótum í húsnæðis-
málum rannsóknarsérgreina.“
Fram kemur að með sameiginlegu
eða samtengdu húsnæði „fengist
mikill faglegur og rekstrarlegur
ávinningur, bætt þjónusta og
verulega auknir samvinnumögu-
leikar á sviði kennslu og rann-
sókna.“
Starfshópurinn skilaði skýrslu
sinni í lok nóvember, en í honum
voru Jónas Magnússon sviðs-
stjóri, Oddur Fjalldal sviðsstjóri
og Guðbjartur E. Jónsson verk-
efnastjóri á Landspítala - háskóla-
sjúkrahúsi. - óká
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
RANNSÓKNARSTOFUR Í BLÓÐMEINA- OG MEINAFRÆÐI
Mælst er til að þrjár rannsóknarstofnanir verði sameinaðar í eina.
Sameinuðu þjóðirnar:
Fylgjast með
Íslendingum
MANNRÉTTINDI Louis Arbor, æðsti
yfirmaður mannréttindamála hjá
Sameinuðu þjóðunum, ætlar að
fylgjast grannt með þróun mann-
réttindamála á Íslandi eftir að
stjórnvöld ákváðu að hætta að
styrkja Mannréttindaskrifstofu Ís-
lands. Þetta kom fram í fréttum
Útvarpsins í gær.
Á opnum fundi hjá dönsku
mannréttindaskrifstofunni í gær
kom ástand mannréttindamála á
Íslandi til umræðu þar sem meiri-
hluti fjárlaganefndar Alþingis hef-
ur lagt til að hætt verði að veita fé
til Mannréttindaskrifstofu Íslands
og henni gert að sækja um árlega
styrki til tveggja ráðuneyta. Því er
óttast að sjálfstæði hennar sé
stefnt í hættu. Arbor sagði að
sterkar innlendar mannréttinda-
stofnanir væru áhrifamesta að-
ferðin til að vinna að mannréttind-
um í hverju ríki. Sérhver aðgerð til
að draga úr áhrifum slíkra stofn-
ana færu því gegn hugmyndum og
vilja alþjóðasamfélagsins. - ghg
STÆRSTA FÍKNIEFNAMÁL PORTÚ-
GALS Portúgalska lögreglan lagði
hald á nærri þrjú tonn af kókaíni
þegar hún kom upp um fíkniefna-
smygl frá S-Ameríku til N-Evrópu í
gegnum Portúgal. Aldrei hefur ver-
ið lagt hald á meira af fíkniefnum í
einu í Portúgal.
ALNÆMISSMITUÐ BÖRN Í KÍNA
Alls 160 af 216 börnum í skóla í Lulou í
Kína hafa greinst með alnæmi undanfarin
ár. Börnin smituðust af foreldrum sínum
sem smituðust þegar þeir fengu blóð eða
gáfu það.
SVEINBJÖRN
JÚLÍUSSON
JÚSJENKÓ OG JANÚKOVITSJ
Frambjóðendurnir sem enn takast á, hálfri annarri viku eftir kosningar, komust að
samkomulagi um að hefja viðræður á ný í gær. Júsjenkó hét því að láta stuðningsmenn
sína opna hringinn um opinberar byggingar en sagði fólk verða áfram á götum til að
leggja áherslu á kröfur sínar.