Fréttablaðið - 02.12.2004, Qupperneq 14
14
Húsabakkaskóli:
Sjálfstæðis-
menn sitja hjá
SVEITARSTJÓRNARMÁL Bæjarstjórn
Dalvíkurbyggðar kom í fyrsta sinn
saman aftur, eftir endurnýjað
stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks. Þar sam-
þykktu framsóknarmenn að setja á
fót þriggja manna vinnuhóp til að
útfæra gögn varðandi framtíðar-
skipan grunnskólamála í Dalvíkur-
byggð og framtíð Húsabakkaskóla.
Hópurinn á að skila áliti sínu fyrir
31. janúar 2005. Sjálfstæðismenn
sátu hjá við afgreiðslu málsins. Í
nóvember slitnaði upp úr meiri-
hlutastarfi framsóknar- og sjálf-
stæðismanna vegna ágreinings um
framtíð Húsabakkaskóla. ■
HEILBRIGÐISMÁL Svæðisstjóri
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunari
nnar (WHO) segir það tilfinningu
manna að dúfur eigi nú stærstan
þátt í að breiða asísku fugla-
flensuna út. Rannsóknir bendi til
þess að verstu plágurnar ríði yfir
þegar stærð dúfnastofna sé hvað
mest. Allt að 100 milljónir manna
gætu dáið í fuglaflensufaraldri, er
haft eftir svæðisstjóra Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar
fyrir Vestur-Kyrrahafssvæðið í
netútgáfu Guardian. Hann hvatti
þjóðir heims í fyrradag til bráðra
varnaraðgerða gegn hugsanlegum
faraldri.
Svæðisstjórinn, Shigeru Omi,
taldi heimsfaraldur af völdum
flensunnar nær óhjákvæmilegan;
að minnsta kosti 7-10 milljónir
manna muni deyja, en verstu spár
geri ráð fyrir að faraldurinn muni
granda 50 milljónum, jafnvel 100
milljónum manna.
Þá er haft eftir svæðisstjór-
anum að það tæki faraldurinn
ekki langan tíma að breiðast út
um heiminn eftir að hann væri
einu sinni lagður af stað. Það tæki
aðeins vikur og séu þjóðir heims
ekki í viðbragðsstöðu muni það
hafa alvarlegar afleiðingar.
Sagan hafi sýnt að faraldur
gjósi upp á 30 ára fresti að
meðaltali. ■
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin:
Dúfur taldar breiða fuglaflensu út
2. desember 2004 FIMMTUDAGUR
Foreldrar Feribu
fengu skaðabætur
Afgönsk stjórnvöld hafa greitt foreldrum stúlkunnar sem lést í
sprengjutilræði á Kjúklingastræti 140 þúsund króna skaðabætur. Til-
ræðismaðurinn kom gagngert frá Pakistan til að gera árásina.
STJÓRNMÁL Afganska ríkisstjórnin
hefur greitt fjölskyldu Feribu, 13
ára gamallar stúlku sem lést í
sjálfsmorðsárás á íslenska friðar-
gæsluliða í Kabúl, rúmar 140 þús-
und krónur í skaðabætur fyrir
dótturmissinn. Þetta kemur fram
í nýrri grein um tilræðið í vefriti
IWPR (Institute for War and
Peace Reporting).
Talibshah Khaksar, faðir
stúlkunnar, segir í viðtali við
IWPR að þetta hafi ekki hrokkið
fyrir útför hennar. Um hundrað
þúsund krónur söfnuðust handa
fjölskyldunni í söfnun hér á landi.
Haft er eftir heimildum innan
afgönsku leyniþjón-
ustunnar að tilræð-
ismaðurinn hafi
heitið Matiullah og
verið þekktur sem
félagi í hreyfingu
undir stjórn
Maulavi Younis
Khalis sem síðar
gekk í raðir Tali-
bana. Matiullah var búsettur í
Shamshatu-flóttamannabúðunum
í Peshawar í Pakistan en kom
gagngert til Kabúl til að fremja
hryðjuverk.
Afganskir embættismenn,
Sameinuðu þjóðirnar, erlend
sendiráð og ýmis hjálparsamtök
höfðu á undanförnum mánuðum
annað slagið varað við hættunni
af því að versla á Kjúklingastræti.
Feriba, 13 ára gömul afgönsk
stúlka, og 23 ára gömul bandarísk
kona létust í árásinni og þrír ís-
lenskir friðargæsluliðar særðust.
Þrátt fyrir dauða Feribu halda
börn ennþá áfram að stunda götu-
sölu í Kjúklingastræti. Haft er
eftir Rohullah, tíu ára, sem selur
kort og bréfsefni á Kjúklinga-
stræti, að hann sé ekki hræddur.
Tekjurnar af því að selja útlend-
ingum séu svo miklar að hann
geti ekki annað. Sima Gul, 12 ára,
sem selur plastsólgleraugu, seg-
ir: „Ég hræðist ekkert. Ég þarf að
sjá fjölskyldunni fyrir mat, ann-
ars deyjum við úr hungri.“
Mohammad Yousuf, yfirmað-
ur Ashiana, þjálfunar- og mennt-
unarmiðstöðvar fyrir börn í
Kabúl, segir að götusölubörnin
séu í mestri hættu vegna árása á
útlendinga.
„Börnin láta ekki í ljós
hræðslu en árásirnar hafa haft
slæmar sálfræðilegar afleiðing-
ar fyrir þau. Þau eru hrædd við
að verða rænd og verða fórnar-
lömb árása á útlendinga. Þau
hafa hins vegar engan annan
kost.“ Ashiana-miðstöðin hefur á
prjónunum námskeið þar sem
götubörnum verður kennt að
skynja þær hættur sem leynast á
götum Kabúl.
a.snaevarr@frettabladid.is
■ EVRÓPAStúlku rænt í Kópavogi:
Engin vitni
að brottnámi
MANNRÁN Ekki hefur enn borist
ábending frá neinum sem telur
sig hafa orðið vitni að því þegar
níu ára stúlku var rænt í Kópa-
vogi fyrir rúmri viku síðan. Þær
ábendingar sem lögreglunni hafa
borist beinast allar að mönnum
sem falla undir lýsingu stúlkunn-
ar á mannræningjanum.
Lögreglan hefur rætt við á ann-
an tug manna sem lýsingin á við
en enginn þeirra hefur verið
handtekinn. Friðrik Smári Björg-
vinsson, yfirlögregluþjónn í
Kópavogi, segir flestar ábending-
arnar hafa komið fyrst eftir að
óskað var eftir upplýsingum en
þeim hafi farið fækkandi.
Samkvæmt lýsingu stúlkunnar er
maðurinn krúnurakaður, með
gleraugu með svartri umgjörð. ■
RUMSFELD KÆRÐUR Fjórir
Írakar sem voru fangar í Abu
Ghraib hafa kært Donald
Rumsfeld, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna fyrir
mannréttindabrot. Þeir segja
hann bera ábyrgð á þeim
misþyrmingum sem bandarískir
hermenn beittu fanga í íröskum
fangelsum.. Hópur þýskra og
bandarískra lögmanna flytur
málið fyrir þeirra hönd. Málið er
flutt í Þýskalandi þar sem þýsk
lög heimila að útlendingar séu
kærðir fyrir stríðsglæpi.
ÞRÍR HANDTEKNIR Franskir lög-
reglumenn handtóku þrjá ein-
staklinga sem tengjast Mikel Iri-
arte, meintum höfuðpauri ETA.
Einn þremenninganna er bróðir
manns sem veitti Iriarte hæli en
tveir þeirra pössuðu son hans í
þrjú ár. Handtaka Iriarte fyrir
nokkrum vikum þótti mikill
áfangi í baráttunni gegn ETA.
STJÓRNMÁL Pétur H. Blöndal, for-
maður efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis, segist ekki van-
hæfur til að gegna þingstörfum
þrátt fyrir að hann hafi tekið að
sér stjórnarformennsku í SPRON:
„Það var fjallað um þetta á þing-
flokksfundi og niðurstaðan varð sú
að þingmenn væru kosnir á þing til
að gæta hagsmuna. Auk þess væri
SPRON lítil eining miðað við fjár-
málamarkaðinn í heild.“
Efnahags- og viðskiptanefnd
fjallar um málefni sem geta snert
starfsumhverfi banka- og fjár-
málafyrirtækja.
Jóhanna Sigurðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, segir
að Pétur sé sennilega ekki van-
hæfur en hins vegar sé það af-
skaplega óeðlilegt að hann gegni
formennsku í SPRON: „Þetta er
ákveðinn hagsmunaárekstur.“
Pétur bendir á að Ögmundur
Jónasson, þingmaður Vinstri
grænna, sé formaður BSRB og
margir þingmenn séu jafnframt
sveitarstjórnarmenn og Alþingi
fjalli ekki svo lítið um málefni
sveitarfélaga. Pétur segist munu
hér eftir sem hingað til gæta hags-
muna skattgreiðenda og almenn-
ings á Alþingi, ekki sérstaklega
stofnfjáreigenda í SPRON. - ás
Pétur Blöndal:
Segist ekki vanhæfur
VIÐVÖRUN
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hvetur
þjóðir heims til að vera viðbúnar
fuglaflensufaraldri.
FERIBA
Stúlkan sem lést í sprengjutilræðinu á Íslendinga í Kabúl. Kenna á götubörnum að læra
að skynja hættuna sem að þeim steðjar, aðallega vegna hugsanlegra árása á erlenda her-
menn og friðargæsluliða.
„Ég hræðist
ekkert. Ég
þarf að sjá
fjölskyldunni
fyrir mat,
annars deyj-
um við úr
hungri.“
PÉTUR BLÖNDAL
Segir að allir þingmenn gæti hagsmuna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
GENGIÐ Í NEFIÐ
Frönsk börn geta nú lært líffræði með því
að ganga inn um líffæri mannslíkamans
og skoða hann með margvíslegum hætti á
sýningu sem hefur verið sett upp í París. Á
henni er notast við orðaforða barna til að
kenna þeim sitthvað um öndunar- og
meltingarfæri líkamans.