Fréttablaðið - 02.12.2004, Side 28
FIMMTUDAGUR 2. desember 2004
Þorvaldur Skúlason Louisa Matt
- Svavar Guðnason - Karl Kvaran
- Júlíönu Sveins - Jóhannes Jóhannesson
- Jóhannes Geir - Karólína Lárusd.
- Jón Þorleifsson - Hafsteinn Austmann
- Valgarð Gunnarsson - Tolla
- Sigurbjörn Jónsson - Guðbjörgu Lind
- Jón Engilberts
Leitum eftir módelmyndum eftir Gunnlaug Blöndal
fyrir fjársterkan aðila
EINNIG VERK EFTIR:
Gæði og góð þjónusta
SMIÐJAN
Innrömmun-Listhús • Ármúla 36, sími 568 3890
Opið alla virka daga : 10-18 • laugardaga: 12-16
Jóhann Briem
MÁLVERKASÝNING
Kjarval
Sími 587 3400
burek@burek.is
www.burek.is
HEILDSÖLUDREIFING:
Ljósakross
Það er ódýrara að kaupa
ljósakross en að leigja hann
Fást um land allt!
Hvítu plastkrossarnir frá Búrek henta þeim
sem vilja annast lýsinguna fremur en að
leigja sér kross. Þeir eru með innbyggðu
ljósi og tengjast rafmagnsleiðslu í görðunum
eða rafhlöðu sem endist í allt að 20 daga.
Gömul húsgögn eiga sögu og sál
og geta lífgað verulega upp á um-
hverfið.
Oft áskotnast fólki gamlir hlut-
ir í gegnum fjölskyldu og vini en
svo er líka hægt að fara í búðir
eins og Góða hirðinn og Skeifuna
Húsgagnamiðlun og finna dýrind-
is húsgögn á góðu verði.
Gömul húsgögn eru líka yfir-
leitt vel úr garði gerð, vandað er
til allrar smíði og þau standast vel
tímans tönn.
Áklæðið er yfirleitt það sem
fyrst sést á og undirlagið er oft
orðið lúið, en það er ekki mikið
mál að skipta þessu út með litlum
tilkostnaði.
Óhætt er að blanda gömlum
húsgögnum við ný og búa sér til
svolítið persónulegan stíl.
Oft vill fólk breyta til fyrir jól-
in og einn „nýr“ gamall sófi gæti
verið skemmtileg tilbreyting.
Gamlir sófar eru til í þó nokkru
úrvali í fyrrnefndum verslunum
en betra er að hafa hraðar hendur
því setið er um sófana sem og
aðra fallega muni og þeir renna út
eins og heitar jólalummur. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Sófar með sál
Gamlir sófar á góðu verði
Sófar úr Skeifunni
Sófar úr Góða hirðinum
„Þetta rýkur út, það er ótrúleg
spenna í loftinu með þessi tré,“
segir Helga Thorberg í Blómálfin-
um sem selur bleik og hvít plast-
jólatré. „Við vorum með tvo bleika
liti en þessi fölbleiki er búinn og
ég gæti tárast fyrir því að liturinn
sé farinn úr glugganum, en lítið
við því að gera,“ segir Helga og
hlær. Hún er nú með dökkbleik tré
og hvít og selur stykkið á 2.500 kr.,
frá 60 cm upp í 180 cm, en þó eru
þessi stærstu uppseld.
IÐA í Lækjargötu hefur einnig
boðið litskrúðug jólatré fyrir
þessi jól og er sömu sögu að segja
þaðan, bleiku trén eru uppseld.
Trén eru þar í tveimur stærðum,
40 cm og 60 cm, og kosta 2.990 kr.
og 3.990 kr. Í IÐU fengust þær
upplýsingar að trén hefðu gjör-
samlega slegið í gegn og von væri
á fleiri til landsins í næstu viku
þannig að þeir sem syrgja bleika
litinn úr gluggunum geta tekið
gleði sína að nýju. ■
Öryggi
barna á
heimilum
Aldrei má sofna á verðinum
þar sem ungbörn eru á
ferðinni
Börnin eru okkur afar mikil-
væg og ber okkur að búa þeim
öruggt heimili og huga að
heilsu þeirra. Flest slys á börn-
um eiga sér stað innan veggja
heimilisins og er tíðnin mun
hærri hérlendis en gengur og
gerist í nágrannalöndum okkar.
Ekki er of brýnt fyrir fólki að
huga að öryggisþáttum heimil-
isins og fara skipulega yfir öll
herbergi því slysagildrurnar
leynast víða. Mikilvægt er að
gera viðeigandi ráðstafanir og
vel tímanlega.
Hættulegir hlutir eins og
þvottaefni og lyf eiga alls ekki
að vera þar sem börn ná til, auk
þess sem loka þarf fyrir
innstungur og hafa millistykki
vel falin. Hurðir, eldavélar og
skúffur eru þekktar slysagildr-
ur sem þarf að fylgjast vel
með.
Öryggismiðstöð Íslands
býður upp á sérstakan barna-
öryggispakka með því helsta
sem til þarf á heimilið til að
auka öryggi barna. Ekki er ráð
nema í tíma sé tekið og best að
huga að þessum málum strax. ■
[ SLYSAVARNIR ]
Börn þarf sérstaklega að passa í
kringum eldavélar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Síbleikt jólatré
Litskrúðug tré hafa hafið innreið sína á heimili landsmanna
Fölbleiku jólatrén hafa gersamlega slegið í gegn og eru nú uppseld. Þetta dökk-
bleika tré fæst í Blómálfinum við Vesturgötu og kostar kr. 2.500.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
- mest lesna blað landsins
Á LAUGARDÖGUM
Hin hliðin á bílum
Stærsti bílamarkaður landsins
Auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is