Fréttablaðið - 02.12.2004, Qupperneq 34
Áætlaður útgáfukostnaður viðannað bindi HannesarHólmsteins Gissurarsonar íævisöguritröð hans um
Halldór Laxness er um fjórar milljónir
króna. Þá er ótalinn auglýsingakostn-
aður. Útgefandi bókarinnar er Bókafé-
lagið, sem stofnað var af Jónasi Sigur-
geirssyni, nánum vini Hannesar Hólm-
steins. Að gefnu tilefni skal taka það
fram að það er ekki Nýja bókafélagið
sem gefur út bókina, en það er eitt af
forlögum Eddu útgáfu, sem gaf út fyrri
bók Hannesar um nóbelskáldið.
Jónas sagði í samtali við F2 að hann
væri hættur bókaútgáfu en bróðir hans,
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, hefði tek-
ið við Bókafélaginu og gæfi því út bók-
ina. Jónas Sigurgeirsson hefur framleitt
fjölda sjónvarpsþátta með Hannesi, svo
sem 20. öldina og Maður er nefndur. Þá
gaf hann út ævisögu Hannesar um
Benjamín H. J. Eiríksson fyrir jólin
1996 og bókina Íslenskar tilvitnanir
þegar hann vann hjá Almenna bókafé-
laginu.
„Hannes er sérstaklega góður vinur
minn og ég hef unnið með honum í
mörg ár. Aldrei hefur borið skugga þar
á enda eru betri samstarfsfélagar en
hann vandfundnir. Ég vil taka það fram
að ég hef lesið handritið að bókinni og
finnst hún frábær,“ sagði Jónas.
„Ég er á fullu að vinna í þessu núna
því bókin á að
koma út 10.
d e s e m b e r , “
sagði Sigurgeir Orri. Fyrsta upplag
bókarinnar verður í fjögur þúsund ein-
tökum og verður hún prentuð í Prent-
smiðjunni Odda. Samkvæmt heimild-
um F2 er prentkostnaður við hvert ein-
tak bókar sem þessar í kringum 1.000
krónur og heildarprentkostnaður fyrstu
prentunar verður því fjórar milljónir.
Fyrsta bindið, sem kom út í fyrra, seld-
ist í um 2.500 eintökum.
Sigurgeir Orri sagðist sannfærður
um að forlagið tapaði ekki á útgáfunni.
Aðspurður sagðist hann ekki óttast
samkeppnina við bók Halldórs Guð-
mundssonar um Halldór Laxness sem
er nýútkomin. „Samkeppni er svo und-
arlegt fyrirbæri og getur komið báðum
til góða með því að auka umfjöllun og
umstang um bækurnar,“ sagði Sigurgeir
Orri.
Það getur verið æði notalegt að lauma sér í kaffi-vélina í vinnunni og fá sér heitan sopa. Margireiga það þó til að drekka allt of mikið af kaffi í
vinnunni og sumir halda jafnvel að kaffi komi í staðinn
fyrir mat. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækjaþjón-
ustunni Selecta eru forritarar og fréttamenn mestu
kaffisvelgir allra stétta á Íslandi. Ekki er vitað ná-
kvæmlega af hverju þetta stafar en ein skýringin er sú
að óreglulegur vinnutími og miklar setur fyrir framan
tölvu auki kaffiþorstann.
Á mörgum vinnustöðum er farið að bjóða
upp á kælt vatn og sódavatn. Sagt er að það
dragi stórlega úr kaffidrykkjunni enda sé fólk oft
að leita að einhverju frískandi þegar það leggur
leið sína að kaffivélinni. Hjá fyrirtækjaþjónust-
unni Selecta fengust þær upplýsingar að fólk væri
farið að gera mun meiri kaffikröfur og það
þýddi ekki lengur að bjóða starfsmönnum
fyrirtækja upp á einhverja soðna uppáhell-
ingu.
F2 2 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR
F2 er vikurit
sem fylgir
Fréttablaðinu
á fimmtudög-
um.
Útgefandi
Frétt hf.
Ritstjórn:
Jón Kaldal
Höfundar efnis í þessu hefti Borghildur
Gunnarsdóttir, Freyr Gígja Gunnarsson,
Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján
Hjálmarsson, Marta María Jónasdóttir og
Sigríður Dögg Auðunsdóttir.
Hönnun Jón Óskar Hafsteinsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Aðalsími: 550 5000
Netfang: f2@frettabladid.is
Auglýsingar Auglýsingadeild Frétta-
blaðsins, Jón Laufdal, Einar Logi Vignis-
son, Ólafur Brynjólfsson.
Forsíðan Sturla Gunnarsson kvikmynda-
leikstjóri, sjá viðtal bls. 12.
Ljósmynd: Hari
Þetta og
margt fleira
4 Dauði myndbandsins
orðum aukinn
6 Göturnar í lífi
Einars Kárasonar
8 Jagúar á fljúgandi ferð
10 Heimstískan í Kron
12 Viðtal
Tveir menningar-
heimar Sturlu
Kolbrún Bergþórsdóttir ræðir
við kvikmyndaleikstjórann
vestur-íslenska Sturlu
Gunnarsson
14 Úttekt
Þau erfa flokkana
Býr næsta kynslóð stjórn-
málamanna yfir breyttu
hugarfari? Sigríður D.
Auðunsdóttir skrifar.
18 Rússnesk grænmetisbaka
með valhnetukæfu
20 Það sem ber hæst næstu
3 daga
22 Sigurður Gústavsson er
margverðlaunaður hönnuður
Morgunkaffið: Kíktu við á Kaffitári í
Bankastræti áður en þú ferð í vinnuna
eða þegar þú vaknar og fáðu þér ljúfan
latte. Ekki er amalegt
að fá sér rúnn-
stykki með
osti og
sultu með
kaffinu.
Leikhús-
ið: Sýningin
Faðir vor eftir
Hlín Agnarsdóttur er
alveg mögnuð. Hún fjallar um þrjár
systur og föður þeirra á mjög kómískan
hátt. Næsta sýning er 3. desember í
Iðnó og hefst hún kl. 20.00.
Dekrið: Komdu ástinni á
óvart og bjóddu henni í
nudd á Nordica Spa. Eftir
nuddtímann er notalegt
að slaka á í pottunum og
fara í ilmgufurnar. Þetta
er frábær leið til að ná úr
sér vetrarsleninu í eitt skipti fyrir öll.
Kvöldverðurinn: Það er mikil-
vægt að fá góða næringu þótt
maður nenni ekki að elda. Til-
búnu grænmetisréttirnir frá
Móður náttúru eru alveg frábær
lausn og það eina sem þarf að
gera er að hita þá upp. Þeir fást í
Heilsuhúsinu, Melabúðinni og Nóatúni.
Hittu vinkonurnar: Það er mjög
pæjulegt að hitta vinkonur sínar í drykk
á 101 hótel. Klæddu þig í pallíettutopp
og settu á þig nógu mikið af maskara
og glossi. Kvöldið mun ekki klikka.
Lesefnið: Drekktu í þig tísku, menn-
ingu og mannlíf á dönsku með því að
lesa tímaritin Eurowoman og Euroman
sem fást í næstu bókabúð.
Geisladiskurinn:
Brynhildur Guðjónsdóttir
sló í gegn í hlutverki Ed-
ith Piaf eftir Sigurð Páls-
son. Nú eru 12 tónar
búnir að gefa lögin úr
sýningunni út á geisladiski. Þetta er
diskur sem enginn má láta framhjá sér
fara.
Bíltúrinn: Taktu fjölskylduna í alvöru-
sunnudagsbíltúr á Þingvelli. Dragðu alla
út úr bílnum við Almannagjá og segðu
fjölskyldumeðlimunum heimatilbúna
sögu meðan þið gangið um og andið
að ykkur fersku loftinu. Eftir göngutúr-
inn er málið að fá sér kaffisopa á Val-
höll.
velurF2
Fréttamenn og
forritarar mestu
kaffisvelgirnir
Miklar setur taldar auka þorstann.
Ljósajólatré „Já, við byrjuðum með þetta fyrir tveimur árum og þetta varð
mjög vinsælt í fyrra,“ segir Ómar Ellertsson, blómaskreytir hjá Blómaval, en hann
skreytti meðal annars svona tré fyrir verslunina Casa í Síðumúla. Ljósatréð er
hugsað sem útiskreyting í görðum en hefur líka verið vinsælt í gluggum hjá
verslunum. Það er gert úr járni og er alsett ljósum, þannig að það virkar sem al-
vörujólatré í myrkri og er því hentugt fyrir þá sem ekki hafa garðpláss fyrir greni-
tréð.
Hannes bjartsýnn á gott gengi:
Fyrsta
upplag
4 þúsund
eintök
„Samkeppni er svo
undarlegt fyrirbæri
og getur komið
báðum til góða með
því að auka umfjöll-
un og umstang um
bækurnar.“