Fréttablaðið - 02.12.2004, Síða 48
hefur leikurinn að mörgu leyti jafnast,“
segir Björgvin.
„Á Íslandi ber mest á þessu í Sjálf-
stæðisflokknum því hann hefur verið
stórveldi í 70 ár á meðan aðrir flokkar
hafa verið bæði smáir og sundraðir.
Völd Sjálfstæðisflokksins fara hins veg-
ar þverrandi eins og best sést í við-
skiptalífinu. Það eitt kallar á enn frekari
einkavæðingu í samfélaginu, að stjórn-
málaflokkar geti misbeitt áhrifum sín-
um eins og Sjálfstæðisflokkurinn gerir í
gegnum Landsímann og Ríkisútvarp-
ið,“ segir Björgvin.
Spáir endalokum
Sjálfstæðisflokksins
Hallgrímur segist sannfærður um að
Sjálfstæðisflokkurinn muni líða undir
lok. „Sjálfstæðisflokkurinn á eftir að
lyppast niður því hann byggir á völdum
og hegðar sér eins og mafía. Við sáum
til dæmis glitta í fasískar hliðar hans í
fyrrasumar þegar flokkurinn neitaði að
fara eftir stjórnarskránni. Við erum öll
svolítið hrædd við Sjálfstæðisflokkinn
og ég held að það eigi eftir að koma sér
illa fyrir flokkinn í framtíðinni,“ segir
Hallgrímur.
Hann segir jafnframt að það muni
koma flokknum illa að nýju afreksmenn
frjálshyggjunnar eru ekki að moka pen-
ingum inn í flokkinn líkt og áður
þekktist. „Þeir eru ekki háðir honum að
neinu leyti, eru í raun stærri en Sjálf-
stæðisflokkurinn. Flokkurinn mun eiga
í tilvistarkreppu því hann hefur ekki
sama tilgang og áður, að redda sínum
mönnum hlut í viðskiptalífinu. Hann er
núna bara í því að redda sínum mönn-
um inn í Hæstarétt og svoleiðis poti,“
segir Hallgrímur.
Fylgispekt ber oft vott
um hugleysi
Jón segist ekki sérstaklega heillaður af
þeim stjórnmálamönnum sem eru í for-
ystu fyrir ungu kynslóðina. „Póli-
tíkusarnir hafa tilhneigingu til þess að
raða í kringum sig fólki sem eru þeim
tryggir. Þetta sést mest í valdaflokkun-
um, Framsóknarflokknum og Sjálfstæð-
isflokknum. Unga kynslóðin þar endur-
speglar á margan hátt hugsunarhátt for-
ystunnar og viðurkennir það fúslega.
Sem dæmi lýsti Guðlaugur Þór Þórðar-
son, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, því
yfir á fundi hjá okkur í Reykjavíkuraka-
demíunni um helgina, að hann væri oft-
ast fyllilega sáttur við stefnu og viðhorf
flokksforystu sinnar,“ segir Jón.
„Ungu stjórnmálamennirnir mæla
sig við forystumennina og vilja vera
eins, frekar en að þeir skapi sér sjálf-
stæða ímynd. Enda er það líklega væn-
legra til árangurs að fylgja forystu en að
setja sig upp á móti henni. Fylgispekt
ber þó því miður oft vott um hugleysi
og það væri synd að segja að maður sæi
mikið hugrekki frá ungum pólitíkusum
innan stjórnarflokkanna,“ segir Jón.
Hann segir að í Samfylkingunni sé
hins vegar meira umrót og spenna og
því sé ófyrirsjáanlegra hvað gerist þar.
„Ég vona að pólitísk umræða verði
dýpri þar sem það fer saman að fara
skynsamlega með vald og leitast við að
auka pólitíska þátttöku,“ segir Jón.
Hugsunarháttur eldri kynslóðar
auðveldar framgang
Andri segir að þrátt fyrir breytta hug-
myndafræði nýrrar kynslóðar séu sumir
einstaklingar af yngri kynslóðinni ávallt
reiðubúnir að tileinka sér hugsunarhátt
eldri kynslóðar í því skyni að auðvelda
sér framgang í heimi hennar.
„Spurningar um þetta hafa einna
helst vaknað í málum er varða umburð-
arlyndi og mannréttindi og voru breyt-
ingar á útlendingalögunum síðastliðið
vor gott dæmi um það. Einnig virtust
sumir vera furðu fljótir að gleyma yfir-
lýstum hugsjónum í fjölmiðlamálinu.
Upp vakna spurningar um það hvort
viðkomandi einstaklingar geri þetta til
þess að ná frama eða vegna þess að þeir
búi yfir þessum skoðunum í raun og
veru. Hvort tveggja eru slæmar skýr-
ingar,“ segir Andri.
Þjálfunarprógrömm ala
óhæfa leiðtoga
“Þeir sem hafa farið í pólitík í gegnum
þjálfunarprógrömm flokkanna og
þekkja ekkert annað reynast á endanum
óhæfir til að vera leiðtogar, en þetta á
við um marga af ungum pólitíkusum
stjórnarflokkanna,“ segir Jón. „Hins
vegar veit maður minna um þau sem
eru í stjórnarandstöðuflokkunum því
þau eru minna í sviðsljósinu,“ segir Jón
„Ef spurt er að því hvaða fólk sé
hægt að binda einhverjar vonir við í
pólitík myndi ég segja að horfa verði til
þeirra sem hafa fjölbreytta reynslu,
góða menntun og hafa verið erlendis.
Hvorki Halldór Ásgrímsson né Davíð
Oddsson hafa neina reynslu af því að
búa erlendis. Ég held að það verði ekki
mögulegt í framtíðinni að við eigum
leiðtoga sem eru jafn takmarkaðir í
reynslu sinni og þessir tveir menn eru,“
segir Jón.
Gengur ekki lengur að vera
heimaalningur í pólitík
“Vonandi er fólk að koma inn í pólitík
sem er vel menntað og víðsýnt, hefur
séð eitthvað af lífinu og er skynsamt.
Þorgerður Katrín sker sig til að mynda
úr í hópi ungra þingmanna stjórnar-
flokkanna, ekki vegna þess að hún er
kvenmaður heldur vegna þess að hún er
sú eina sem hefur búið í lengri tíma
einhvers staðar annars staðar en á Ís-
landi. Það má ef til vill vonast til þess að
það muni ekki ganga mikið lengur að
vera algjör heimaalningur í pólitík,“
segir Jón.
Hallgrímur er sömu skoðunar. „Nýja
kynslóðin sem hefur haslað sér völl inn-
an stjórnmálaflokkanna hefur ekki
komið inn með neitt nýtt. Þetta er bara
sama, gamla tuggan sem hún étur upp
eftir hinum eldri,“ segir Hallgrímur.
„Enda er þetta fólk mjög ósjálfstætt
í hugsunum, hrætt og algjörlega ósiglt,
hefur til dæmis aldrei búið í útlöndum.
Fólk er að fara inn á þing einmitt þeg-
ar það á að vera að fara til útlanda í nám
og dvelja þar í tíu ár og koma svo aftur.
Við sjáum þetta sérstaklega í Sjálfstæð-
isflokknum, þar sem foringjahræðslan
er allsráðandi,“ segir hann.
Hallgrímur segir að hann hafi hvatt
nokkur ung framtíðarforingjaefni sjálf-
stæðismanna í vor til þess að nota tæki-
færið til að standa gegn fjölmiðlalögun-
um. „Þar var tækifærið til þess að móta
sér sérstöðu í flokknum og verða
kannski framtíðarleiðtogaefni. Enginn
þorði því og er það alveg dæmigert,“
segir Hallgrímur.
Hann bendir á að meðal þingmanna
Framsóknarflokksins sé ungt fólk sem
hefur nýlokið háskólanámi. „Það vill
samt ekki hrófla við landbúnaðarkerf-
inu. Það er náttúrulega eitthvað að,“
segir hann.
Stjórnmálamenn risaeðlur
sem tölta á eftir tímanum
Hallgrímur bendir á að fram er komin
ný kynslóð menningar og viðskipta
með fólki sem er að gera nýja hluti og
hugsar alþjóðlega. „Við sjáum það að
Íslendingar sækja fram á svið menning-
ar og lista og viðskipta. Hins vegar sitja
stjórnmálamennirnir eftir – hugarfars-
breytingin hefur ekki náð þangað.
Stjórnmálamenn eru eins og risaeðlur
sem tölta á eftir tímanum. Þetta er ekki
ný kynslóð. Þetta er bara gamla kyn-
slóðin sem er búin að fara í fegrunarað-
gerð,“ segir hann.
Jón segir það mjög dapurlegt á að
líta, sérstaklega hjá framsóknarmönn-
um, að ungu mennirnir sem náð hafa
langt innan flokksins hafi að því er
virðist ekkert fylgst með heiminum.
„Þeir hafa bara verið að stúdera ein-
hverja heima- og hreppapólitík. Þarna
liggur helsti munurinn,“ segir Jón.
Hallgrímur segir að greina megi
smá breytingu í áherslunum hjá stjórn-
málamönnunum sem eru að taka við í
R-listanum, og nefnir hann Stefán Jón
Hafstein, Steinunni Valdísi Óskars-
dóttur og Dag B. Eggertsson. „Þetta er
fólk sem er til í að hlusta á öll sjónar-
mið, er með almennilegheit og er til-
tölulega opið. Það er ekki í föstum
skorðum fortíðarinnar eins og kyn-
slóðin þar á undan, sem ræður Sam-
fylkingunni. Það er kannski smá fram-
tíðarlykt af þessu fólki,“ segir Hall-
grímur. ●
F2 16 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR
Jón Ólafsson: „Ungu stjórnmálamenn-
irnir mæla sig við forystumennina og
vilja vera eins, frekar en að þeir skapi
sér sjálfstæða ímynd.“
Björgvin G. Sigurðsson: „Það er orðið
alviðurkennt í jafnaðarmannaflokkum í
dag að hlutverk ríkisvaldsins sé fyrst
og fremst bundið við rekstur á heil-
brigðiskerfi og menntakerfi og það eigi
alls ekki að vera í samkeppnisrekstri“
Framsóknarflokkur Frálslyndi flokkurinn Samfylking Sjálfstæðisflokkur Vinstri grænir
Árni
Magnússon
Vonarstjarna
flokksins sem
spáð er miklum
frama. Eftirlæti
Halldórs
Ásgrímssonar.
Dagný
Jónsdóttir
Oft kölluð yngri
systir Valgerðar
Sverris. Ef hún
tileinkar sér
taktík hennar
nær hún eflaust
langt.
Margrét
Sverrisdóttir
Einn nánasti
samstarfsmaður
Guðjóns A. og
líkleg til frama
innan flokksins.
Magnús Þór
Hafsteinsson
Vakti miklar
væntingar en
þykir kannski
ekki hafa staðið
undir þeim á
þingi.
Dagur B.
Eggertsson
Tvímælalaust
eitt mesta
foringjaefni
sinnar kynslóðar.
Hlýtur að enda í
Samfylkingunni.
Helgi
Hjörvar
Geysilega
framagjarn og
þykir gríðarlega
snjall og hættu-
legur. Ætlar sér
stóra hluti.
Þorgerður K.
Gunnarsdóttir
Hefur ef til vill
ekki verið nógu
sterk í ráherra-
starfinu en á
mikið inni.
Bjarni
Benediktsson
Krónprins
flokksins. Hefur
þroskast hratt
sem stjórnmála-
maður.
Sverrir
Jakobsson
Nýtur mikils
trausts innan
flokksins en er
ekki fyrir að
trana sér fram.
Katrín
Jakobsdóttir
Mikil hugsjóna-
kona.
Metnaðargjörn
og stefnir hik-
laust á toppinn.
Leiðtogaefni framtíðar?
Hallgrímur Helgason: „Ég spái því að
það muni taka tíu ár að endurbyggja
Sjálfstæðisflokkinn þegar Davíð
Oddsson fer frá.“
Andri Óttarsson: „Upp vakna spurning-
ar um það hvort viðkomandi einstak-
lingar geri þetta til þess að ná frama
eða vegna þess að þeir búi yfir þessum
skoðunum í raun og veru.“
Þeir sem hafa
farið í pólitík í
gegnum þjálf-
unarprógrömm
flokkanna og
þekkja ekkert
annað reynast á
endanum
óhæfir til
að vera
leiðtogar.
“
„