Fréttablaðið - 02.12.2004, Síða 50
F2 18 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR
á Hótel Örk
Fjáröflunardansleikur
Zontaklúbbs Selfoss til styrktar
Geðhjálp á Suðurlandi 8. janúar 2005
Hinn vinsæli Vínardansleikur verður haldinn
laugardaginn 8. janúar 2005 að Hótel Örk.
Hátíðin hefst klukkan 19.00 með fordrykk.
Glæsilegur fimm rétta hátíðarkvöldverður.
Dansleikur með hljómsveit hússins til 03.00.
Veislustjóri:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Einsöngvari:
Guðrún Ingimarsdóttir.
Undirleikur:
Anna Guðný Guðmundsdóttir
Einleikur á fiðlu:
Sigrún Eðvaldsdóttir
Hljómsveit:
Veislutríóið ásamt Sigrúni Eðvaldsdóttur
spilar milli 20.00 og 24.00.
Matseðill:
Humar og hörpuskelsmús með ástríðualdinsósu og
steinseljufrauði.
*
Villisveppa cappuchino.
*
Vatnsmelónu carpaccio með ávaxtatartar og mintu.
*
Andabringa gljáð með mandarínu og engifer,
framreidd með kryddsoðinni kartöflu og seljurótarkremi
ásamt aprikósupiparsósu og ristuðum fennel.
*
Súkkalaðiturn á vanillugrunni með pistasíuhnetum.
Verð með gistingu: 10.100,- kr. á mann í tvíbýli.
Verð án gistingar: 6.800,- kr.
Pantanir í síma 483 4700, info@hotel-ork.is
Hvar er staðurinn?
Jómfrúin, Lækjargötu, 101 Reykjavík
Hvernig er stemningin?
Hingað kemur fólk vegna þess hve
maturinn er góður. Staðurinn minnir
helst til of mikið á mötuneyti eða kaffi-
teríu en það virðist ekki aftra fólki frá
því að koma aftur og aftur. Staðurinn er
sérstaklega vinsæll í hádeginu á virkum
dögum og svo um helgar. Gestir á virk-
um dögum eru flestir úr viðskiptalífinu
og stofnunum í miðbænum. Um helgar
er meira um gesti sem annaðhvort eru
búsettir í miðbænum eða hafa gert sér
ferð í miðbæinn. Jakob Jakobsson, ann-
ar eigenda Jómfrúarinnar, er fyrsti karl-
maðurinn í heimi til að bera titilinn
„Smørrebrødsjomfru“...
Hvað er á matseðlinum?
Smørrebrød, smørrebrød og aftur
smørrebrød – allar mögulegar útgáfur
af þjóðarstolti Dana enda finna hér
allir eitthvað við sitt hæfi. Rauðsprett-
an er sérstaklega ljúffeng og sömuleið-
is buff tartar. H.C. Andersen er sér-
staklega danskur og góður – rúgbrauð
með lifrarkæfu og beikoni.
Þeir sem ekki kjósa smørrebrød geta
gætt sér á ljúffengri fleskesteg með
purru, rauðkáli, súrum gúrkum og
alles, sem boðið er upp á í hádeginu.
Stundum er einnig boðið upp á
hakkabuff á gamla mátann – og er
það sérstaklega vinsælt hjá börnun-
um. Auk hefðbundinna rétta er boð-
ið upp á sérstakan jólamatseðil í des-
ember.
Hver er mest seldi rétturinn?
Íslenska rauðsprettan er vinsælust
enda heitir hún „rauðsprettan vinsæla“
á matseðlinum.
Hvað kostar máltíðin?
Heil sneið kostar á bilinu 1.000 til
1.600 krónur, en buff tartarinn er dýr-
ari. Hálf sneið er frá 680 til 1.000
krónur. Rifjasteikin kostar 1.600.
Erdinger er þekktasti og mest seldi hveitibjór í heiminum í dag og
er eingöngu bruggaður í smábænum Erding rétt fyrir utan
München. Hann er eini hveiti-
bjórinn sem er með eftirgerjun í
flöskunni og ekki síst þess vegna er
hann jafn ferskur og bragðgóður og
raun ber vitni. Erdinger hveiti-
bjórinn skal alltaf drekka úr þar til
gerðu hveitibjórglasi. Nú eru fáan-
legar í Vínbúðunum Heiðrúnu og
Kringlunni gjafapakkningar með
tveimur Erdinger hveitibjórum og
einu hveitibjórglasi.
Verð í Vínbúðum 790 kr.
Jómfrúin:
Smørrebrødið alltaf vinsælt
Hvaða matar gætir þú síst verið án?
Grænmetis því ég er grænmetisæta. Ég
er brjáluð í brokkólí, súkkini og svo
finnst mér kartöflur rosalega góðar
ásamt tómötum.
Er einhver matur sem þér finnst
vondur? Ég er hætt að borða allan mat
sem mér finnst vondur. En versti matur
sem ég hef smakkað er grásleppa, rauð-
magi og hákarl. Alger viðbjóður.
Fyrsta minningin um mat?
Ég man bara þegar ég sat við eldhús-
borðið heima þegar mamma varð alveg
brjáluð því ég var alltaf að gretta mig
framan í kaffikönnuna sem ég notaði
sem spéspegil.
Besta máltíð sem þú hefur
smakkað? „Oh my got“, ég var í
Lundúnum um daginn og þar smakk-
aði ég bestu máltíð í langan tíma á veit-
ingastaðnum Memories Of India. Þetta
var einhver unaðslegur brokkólíréttur í
svakalegu kryddi, hvítlaukskartöflur,
tómatréttur og jógúrtsósa. Ég fékk mér
ferskan mangó í desert.
Hvað borðar þú þegar þú þarft
að láta þér líða betur?
Þá fæ ég mér koffínlausan Sojalatte á
Kaffitári og svo fer ég til Sæmundar á
veitingastaðnum Á næstu grösum.
Hvað áttu alltaf í ísskápnum?
Grænmeti og Egils Kristall.
Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvaða
mat myndir þú taka með þér?
„Ég veit það ekki, örugglega kartöflur
og brokkólí og reyni svo að naga mangó
af trjánum.“
Matgæðingurinn Helga Braga Jónsdóttir leikkona
Á þjóðlegu nótunum
Þótt það sé mikil hefð fyrir þvíað belgja sig út af kjötmeti ogvillibráðum á þessum tíma ergott að geta brugðið út af van-
anum og bjóða upp á girnilegan græn-
metisrétt. Mikael Levin, kokkur á
Grænum kosti, gefur hér uppskrift að
girnilegum ofnrétti sem kemur frá
Rússlandi og ber heitið Padach. Rúss-
neskur matur er ekki eitthvað sem
Íslendingar eru vanir og því tilvalið að
bjóða upp á girnilegan en framandi
ofnrétt sem er borinn fram með val-
hnetukæfu. Hér er um að ræða nokkra
fyrirhöfn sem er þess virði fyrir þá sem
vilja halda gæðum og glæsileika mat-
seldarinnar þó að hollustan sé í fyrir-
rúmi.
Fyllingin
Þar sem kartöflurnar eru ekki flysjaðar
þarf að þrífa þær mjög vel. Í hýðinu er
að finna vítamín sem gefur réttinum
enn meira hollustugildi. Þær eiga að
sjóða vel lengi, alveg þangað til að þær
eru orðnar vel mjúkar. Það á síðan að
mykja laukinn og hvítlaukinn á pönnu
og skera niður hvítkálið og bæta því
við. Þegar kartöflurnar eru tilbúnar, eru
þær muldar í höndunum og bætt út í,
svo krydda og allra síðast er ostinum
bætt út í.
Á meðan öllu þessu stendur á að
gera deigið klárt. Því á að hnoða sam-
an, fletja út í sömu stærð og það eld-
fasta mót sem á að nota. Fyllingin er
sett í eldfasta mótið sem á að smyrja,
deigið sett yfir og þetta bakað í ofn-
inum í 20 mínútur á 180 gráðu hita.
Rússnesk valhnetufylling
Á meðan rétturinn er að bakast á að
gera valhnetukæfuna. Steikja laukinn á
pönnu, grófsaxa hneturnar og mauka
baunirnar með matvinnsluvél með
kryddinu og sítrónusafa. Þessu er síðan
öllu blandað saman í skál og þá er kæf-
an tilbúin.
Íslenskt vatn með klökum eða græn-
metissafi ætti að vera punkturinn yfir i-
ið í þessari bragðgóðu hollustumáltíð.
Uppskrift
Fylling
800 gr. af soðnum kartöflum
1 stór laukur
1/2 hvítkálshaus skorinn
1 bolli ostur (soja)
1 búnt ferskt dill
salt og pipar eftir smekk
1/2 tsk. chilli
2 rif saxaður hvítlaukur
ólífuolía til steikingar
Deig
600 gr. hveiti
2 tsk salt
2 tsk lyftiduft
3 dl AB mjólk
volgt vatn eftir þörfum
Rússnesk valhnetukæfa
1 bolli canellini baunir (fást í dós)
1 meðalstór laukur
400 gr. valhnetur
1 búnt ferskur kóríander
salt og pipar
smá chilli
sítrónusafi úr einni sítrónu
1 matsk. olía til steikingar
Mikael Levin kokkur á Grænum kosti.
Með grænmetiskveðju frá Rússlandi
Girnileg baka með valhnetukæfu
Erdinger hveitibjór
í gjafaumbúðum