Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.12.2004, Qupperneq 68

Fréttablaðið - 02.12.2004, Qupperneq 68
Jón Loftsson skógræktarstjóri er 59 ára í dag. Tímamótin hringdu í hann þar sem hann var á snöggri ferð í höfuðstaðnum en aðalstöðvar Skógræktar rík- isins eru á Egilsstöðum eins og kunnugt er. Við spurðum fyrst um horfur í skógræktinni. „Okkur eru nú efst í huga já- kvæð viðhorf almennings til skógræktar. Niðurstöður stórrar Gallupkönnunar leiddu í ljós að þjóðin er nánast einhuga í af- stöðu sinni til skógræktar. Þetta kom okkur skemmtilega á óvart, því maður gæti stundum haldið, eftir umfjöllun fjölmiðla að dæma, að þessu væri ekki svona farið. Þá er ég að vísa til umfjöll- unar um skógrækt á Þingvöllum, deilna um rjúpuna og annað slíkt. Raunar má segja að um- ræður um það hvort aukin skóg- rækt þrengdi að rjúpnastofnin- um hafi fengið farsælan endi, því þær leiddu til rannsóknar- verkefnis um vistkerfi skógar- ins, sem nú stendur yfir.“ En horfurnar í skógræktinni. Hvaða áhrif hefur hlýnun and- rúmsloftsins til dæmis? „Þröstur Eysteinsson varpaði því nú fram á afmælisráðstefnu til heiðurs Sigurði Blöndal um daginn að kannski ættu menn ekki að tala um fyrirhugaðan þjóðgarð norðan Vatnajökuls, heldur þjóðskóga. Það er ljóst að hlýnunin getur orðið til þess að auka mjög víðáttur mögulegs skóglendis.“ Hvað um plágurnar? Grenilúsin hefur gert Sunnlend- ingum og Vestlendingum skrá- veifur, þótt hún hafi látið undan síga í bili. „Það munu alltaf koma ný kvikindi með nýjum plöntum. En náttúran gengur í bylgjum og skógurinn lagar sig að þessum kvikindum. En það getur tekið tíma, stundum kynslóðir.“ Heldurðu upp á afmælið? „Þetta er nú ekki stórafmæli. En sonardóttir mín, níu mánaða göm- ul, hefur boðið mér í mat í kvöld.“ Að lokum er ekki hægt annað en að spyrja mann með þessu nafni hvort hann sé kominn af stórhöfð- ingjanum í Odda, nafna hans. „Því hefur lengi verið haldið fram í ættinni að við séum Odda- verjar í beinan karllegg. Reyndar er nú ekki hægt að staðfesta þetta í Íslendingabók en ég hef það samt fyrir satt.“ ■ 28 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR MARÍA CALLAS FÆDDIST ÞENNAN DAG 1923 Hún hét reyndar Maria Sofia Cecilia Kalogeropoulos. Skógurinn lagar sig að þessum kvikindum á endanum JÓN LOFTSSON SKÓGRÆKTARSTJÓRI: ER 59 ÁRA Í DAG “Fyrst missti ég röddina, svo missti ég vöxtinn og svo missti ég Onassis.“ Þessi frægasta díva óperunnar var svo nærsýn að hún sá ekki sprota hljómsveitarstjórans. Hún harðneitaði að nota gleraugu eða linsur. timamot@frettabladid.is Snemma árs 1950 vakti lítt þekktur öldungadeildarþingmaður frá Wisconsin athygli þegar hann lýsti því yfir í ræðu að hann hefði í fór- um sínum lista með nöfnum 205 kommúnista sem væru í vinnu í bandaríska utanríkisráðuneytinu. Á svipstundu komst Joseph McCarthy, en sá var maðurinn, í sviðsljós fjöl- miðlanna. Öldungadeildin setti á stofn sérstaka nefnd til þess að kanna fullyrðingar þingmannsins og nefndin fann litlar stoðir fyrir full- yrðingum McCarthys. En hann lét ekki deigan síga, jarðvegurinn var góður fyrir kommahatur og þótt sumar ásakanir hans þættu hrein firra, svo sem þegar hann sakaði Marshall, fyrrverandi utanríkisráð- herra í stjórn Trumans, um komm- únisma var teningunum kastað. McCarthy varð formaður nefndar með langt nafn, sem kölluð hefur verið „Óameríska nefndin“ og hóf yfirheyrslur yfir grunuðum komm- únistum sem vöktu geysilega at- hygli. Fjöldi manna var hrakinn úr starfi og sumir heimsþekktir lista- menn fluttu úr landi. Má þar nefna menn á borð við leikarann Charlie Chaplin. Hundruð manna áttu um sárt að binda eftir þessa herferð. Þar kom að McCarthy beindi spjót- um sínum að hernum, sem hann taldi eitt kommúnistahreiðrið enn. Eisenhower forseti beitti sér fyrir stofnun sér- stakrar rannsóknar- nefndar og yfirheyrslum á hennar vegum var sjónvarpað. Þar var leitt í ljós að flestar ásakanir þing- mannsins voru rakalaus þvættingur. 2. desember 1954 fordæmdi svo öldungadeild Bandaríkjaþings Jos- eph R. McCarthy með yfirgnæfandi meirihluta. Þessi fánaberi kommún- istahatursins lést af afleiðingum drykkjusýki 1957, einangraður og vinafár. ■ ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1804 Napóleon Bonaparte krýnd- ur keisari. 1902 Frakkinn Levavasseur fær einkaleyfi á fyrstu V-8 vél- inni. 1929 Minnsti loftþrýstingur sem mælst hefur hérlendis, 919,7 millibör, mælist í Vestmannaeyjum. 1941 Togarinn Sviði frá Hafnar- firði ferst úti af Snæfellsnesi með allri áhöfn, 25 manns. 1942 Enrico Fermi kemur af stað keðjusprengingu í úran- íumatómi. 1961 Castro Kúbuleiðtogi lýsir því yfir að hann sé marxisti. 1985 Mafíuforinginn John Gotti verður höfuð Gambino-fjöl- skyldunnar. Hann var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir morð 1992. McCarthy fordæmdur AFMÆLI Soffía Jakobsdóttir leikkona er 65 ára. Ármann Reynisson vinjettu- höfundur er 53 ára. Logi Bergmann Eiðsson fréttamaður er 38 ára. Einar K. Guðfinnsson alþingismaður er 49 ára. Júlíus Kemp kvikmyndagerðarmaður er 37 ára. Hallvarður Einvarðsson, fv. ríkissak- sóknari, er 73 ára. Ágústa Johnson líkamsræktarfrömuður er 41 árs. ANDLÁT Sigrún Einarsdóttir, Heiðarhjalla 35, Kópavogi, lést sunnudaginn 28. nóvem- ber. Ingunn Björnsdóttir, Brekkukoti, lést mánudaginn 29. nóvember. Jón Sigbjörnsson lést mánudaginn 29. nóvember. Kristín Guðlaugsdóttir frá Hokinsdal í Arnarfirði, síðast til heimilis í Furugerði 1, Reykjavík, lést sunnudaginn 28. nóv- ember. JARÐARFARIR 11.00 Minningarathöfn verður um Þor- steinu Kristjönu Jónsdóttur frá Hanhóli, Bolungarvík, í Fossvogs- kirkju. 13.00 Sólborg Júlíusdóttir, áður til heim- ilis á Hörpugötu 4, Reykjavík, verður jarðsungin frá Neskirkju. 13.00 Ragnheiður Finnsdóttir, fyrrv. kennari og skólastjóri, verður jarð- sungin frá Langholtskirkju. 13.00 Gísli Friðrik Þórisson læknir, Sól- túni 28, Reykjavík, verður jarð- sunginn frá Digraneskirkju. 15.00 Jón S. Erlendsson verkstjóri, Dala- landi 12, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík. 15.00 Jóhanna Björnsdóttir, Hringbraut 50, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Jóhann Kristinsson fyrrverandi framkvæmdastjóri, Ránargötu 9, Akureyri, sem lést á Dvalarheimilinu Hlíð, sunnudaginn 21. nóvember s.l., verður jarðsunginn föstudaginn 3. desember kl. 13.30 í Akureyrarkirkju. Guðrún Aspar, Kristinn Halldór Jóhannsson, Margrét Alfreðsdóttir, Elín Björg Jóhannsdóttir, Sævar Sæmundsson, Ingunn Þóra Jóhanns- dóttir, Skúli Eggert Sigurz, Björn Jóhannsson, Sigrún Harðardóttir, Jóhann Gunnar Jóhannsson, Ragna Ósk Ragnarsdóttir, Ásta Hrönn Jóhannsdóttir, Gísli Agnar Bjarnason, Magnús Jóhannsson, Sólveig Jóhannsdóttir, Þröstur Vatnsdal Axelsson, afa- og langafabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, Sigrún Einarsdóttir Heiðarhjalla 35, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 28. nóv- ember. Hún verður jarðsungin frá Digraneskirkju þriðjudaginn 7. desember kl. 11.00. Jón Kristfinnsson, Guðrún Björk Jónsdóttir, Kristrún Jónsdóttir, Jón V.Guðmundsson og Einar Kjartan Jónsson. Tilkynningar um merkis- atburði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. 2. DESEMBER 1954 JÓN LOFTSSON SKÓGRÆKTARSTJÓRI Viðhorf almennings gríðarlega jákvæð.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.