Fréttablaðið - 02.12.2004, Blaðsíða 72
GOLF „Ég hef notað undanfarnar
vikur til hvíldar og er bjartsýnn
fyrir þetta mót í Afríku,“ segir
Birgir Leifur Hafþórsson, kylf-
ingur úr Golfklúbbi Kópavogs og
Garðabæjar. Heldur hann um
helgina á sitt fyrsta mót á Evrópu-
mótaröðinni sem hann vann sér
inn þáttökurétt á fyrir skemmstu.
Þrátt fyrir að mótið sé hluti af
evrópsku mótaröðinni fer það
fram hinu megin á hnettinum í
S.Afríku og mun þáttaka Birgis
kosta um 400 þúsund krónur.
„Þetta er vissulega dýrara en
gengur og gerist en ég læt mig
hafa það í þetta sinn enda hef ég
verið að spila vel og er í ágætu
formi. Þarna verða nokkrir vel-
þekktir kappar og mig hlakkar til
að takast á við þetta verkefni,“
sagði Birgir Leifur.
Hann segir óvissu enn ríkja
hvað varðar næsta ár. „Ég hef
þátttökurétt á 35 mótum á næsta
ári en það veltur að mörgu leyti á
stuðningsaðilum og því fjármagni
sem ég hef aðgang að hversu
mörgum ég enda á að taka þátt í.
Persónulega vill ég taka tvö til
þrjú mót í röð og taka þá nokkurra
vikna frí á milli því engum er
hollt að keyra sig út í þessari
íþrótt. Ég geri ráð fyrir að ná
á milli 20 og 25 mótum ef allt
gengur eftir.“
Mótið sjálft hefst ekki form-
lega fyrr en á fimmtudaginn í
næstu viku svo Birgir Leifi gefst
góður tími til að kynna sér að-
stæður og venjast hitanum sem
er nokkuð hærri en frostbarðir Ís-
lendingar eiga að venjast á þess-
um tíma. ■
32 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR
„Við eigum eftir að spila við Hauka, HK og FH. Það eru sem sagt tveir erfiðir leikir eftir hjá okkur.“
Ólafur Arnarsson, formaður handknattleiksdeildar Fram, er greinilega búinn að bóka sigur í einum af þeim þrem
leikjum sem strákarnir hans eiga eftir að spila. Stóra spurningin er sú hver sé létti leikurinn sem Fram á eftir?
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
29 30 1 2 3 4 5
Fimmtudagur
DESEMBER
■ ■ LEIKIR
18.00 Stjarnan 2 og Grótta/KR
mætast í Ásgarði í SS-bikar
kvenna í handbolta.
19.15 Fjölnir og Snæfell mætast í
Grafarvogi í Intersportdeild karla í
körfubolta.
19.15 Haukar og Hamar/Selfoss
mætast á Ásvöllum í
Intersportdeild karla í körfubolta.
19.15 KFÍ og Grindavík mætast á
Ísafirði í Intersportdeild karla í
körfubolta.
19.15 Keflavík og Skallagrímur
mætast í Keflavík í Intersportdeild
karla í körfubolta.
19.15 Tindastóll og Njarðvík
mætast á Sauðárkróki í
Intersportdeild karla í körfubolta.
19.15 ÍR og KR mætast í Seljaskóla
í Intersportdeild karla í körfubolta.
19.15 Valur og Fram mætast í
Valsheimilinu í SS-bikar kvenna í
handbolta.
19.15 ÍBV og Haukar mætast í
Vestmannaeyjum í SS-bikar
kvenna í handbolta.
19.15 Víkingur og Stjarnan
mætast í Víkinni í SS-bikar kvenna
í handbolta.
■ ■ SJÓNVARP
17.30 Þrumuskot - ensku mörkin
á Skjá einum.
17.45 Olíssport á Sýn.
19.00 European PGA Tour á Sýn.
Sýnt frá Volvo Masters-mótinu á
evrópsku mótaröðinni í golfi.
20.30 Race of Champions 2002 á
Sýn. Kappakstur hinna ýmsu
meistara í akstursíþróttum frá
árinu 2002.
21.30 NFL-tilþrif á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
23.15 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn.
Það er ekki ofsögum sagt að
manni hafi brugðið verulega
þegar greint var frá úrskurði
aganefndar HSÍ eftir leik Þórs
og Fram sem fram fór á Akur-
eyri. Þar fékk Framarinn Ingólf-
ur Axelsson ansi þungan dóm
fyrir að stjaka við einstaklingum
sem ögruðu honum er hann gekk
af velli með rautt spjald á bak-
inu. Þessi dómur er gjörsamlega
glórulaus með hliðsjón af fyrri
dómum aganefndar í vetur.
Leikmaður Þórs gerði sig
sekan fyrr í vetur um að hlaupa
af varamannabekknum og inn á
leikvöllinn þar sem hann kýldi
leikmann FH. Fyrir þetta mjög
svo grófa brot fékk hann sama
bann og Ingólfur fékk fyrir að
stjaka við mönnum sem ögruðu
honum. Fyrir skemmstu fór síð-
an fram leikur í yngri flokkum
þar sem leikmaður bæði kýldi og
sparkaði í annan leikmann og
hann fékk fyrir vikið aðeins eins
leiks bann. Samræmið í þessum
dómum er nákvæmlega ekkert
og að leggja að jöfnu framkomu
Ingólfs og leikmanns Þórs er al-
veg út í hött. Það sér hver maður.
Undirritaður ætlar ekki að
draga fjöður yfir framkomu Ing-
ólfs sem er langt frá því að vera
til fyrirmyndar og verðskuldar
refsingu. Refsingin verður samt
að vera í samræmi við glæpinn.
Hún er það ekki í tilviki Ingólfs.
Dómurinn sem Þór fær er
einnig furðulegur. Miðað við að
þeir hafa verið ávíttir fyrr í vet-
ur og að samkvæmt dómnum sé
það þeirra sök að þessi uppá-
koma skyldi hafa átt sér stað er
það með hreinum ólíkindum að
þeir skuli hafa sloppið með 25
þúsund króna sekt. Enn og aftur
er ekkert samræmi á milli glæps
og refsingar.
Þórsarar geta varið sitt mál
með kjafti og klóm, sagt að gæsl-
an sé sú sama hjá þeim og ann-
ars staðar en það breytir ekki
þeirri staðreynd að skipulag
þessa leiks brást hjá þeim og því
verða þeir að axla sína ábyrgð.
Leikmennirnir sem sendu
Ingólfi tóninn hefðu aldrei átt að
vera þar sem þeir voru og ef
skipulag leiksins hefði verið eins
og það á að vera hefðu þessi læti
aldrei farið fram. Það er bláköld
staðreynd og hún verður ekki
flúin.
Orðspor aganefndar HSÍ hef-
ur beðið verulega hnekki með
þessum dómum og á því verður
stjórn HSÍ að taka með einhverj-
um hætti. Sú aganefnd sem
starfar í Laugardalnum í dag er
á verulegum villigötum.
Aganefnd á villigötum
HENRY BIRGIR GUNNARSSON
ÍÞRÓTTAFRÉTTAMAÐUR
UTAN VALLAR
STÖRF AGANEFNDAR
HANDKNATTLEIKS-
SAMBANDS ÍSLANDS
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson:
Í víking til Afríku
BIRGIR LEIFUR Hann heldur um helgina alla leið til Suður-Afríku en þar mun hann etja
kappi við ekki ófrægari kylfinga en Ernie Els, Trevor Immelman og Justin Rose.
FÓTBOLTI Norska úrvalsdeildarliðið
Brann og KR hafa komist að
samkomulagi um kaupverð á
varnarmanninum sterka Kristjáni
Erni Sigurðssyni eftir snarpa
samningalotu sem hófst í
gærmorgun þegar Brann gerði
KR tilboð í Kristján Örn.
Sigurður Helgason, fram-
kvæmdastjóri KR Sports, stað-
festi í samtali við Fréttablaðið
seint í gærkvöld að félögin hefðu
komist að samkomulagi en
ítrekaði þó að Kristján Örn ætti
enn eftir að ná samkomulagi við
norska félagið og því væri ekkert
öruggt.
Kristján Örn á eitt ár eftir af
samningi sínum við KR og hefur
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins ekki viljað skrifa undir
nýjan samning við vesturbæjar-
liðið. Per Ove Ludvigsen, yfir-
maður knattspyrnumála hjá
Brann, vildi ekki tjá sig um það
hvort félagið væri búið að senda
KR tilboð þegar Fréttablaðið
ræddi við hann í gær en sagði þó
að Kristján Örn hefði staðið sig
mjög vel þann tíma sem hann var
til reynslu hjá félaginu og væri
áhugaverður leikmaður.
Kristján Örn sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær að Brann væri
mjög áhugavert félag. „Þeir eru
bikarmeistarar og eitt af bestu
liðum Noregs. Þetta er mjög
spennandi dæmi en það verður að
koma í ljós hvort félögin ná sam-
an,“ sagði Kristján Örn.
Brann varð bikarmeistari á
dögunum en félagi Kristjáns í
vörn íslenska landsliðsins, Ólafur
Örn Bjarnason, leikur með norska
félaginu.
Það má því búast við að tveir
íslenskir landsliðsmenn leiki í
vörn Brann á komandi tímabili.
oskar@frettabladid.is
KRISTJÁN ÖRN SIGURÐSSON Sést hér í leik með KR gegn Fram en hann mun að
öllum líkindum spila í Noregi á næsta tímabili.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
KE
TI
LS
SO
N
KR tók tilboði Brann
Samingaviðræður KR og Brann um Kristján Sigurðsson hófust í gærmorgun
og þeim lauk seint í gærkvöld með því að félögin komust að samkomulagi.
Dynamo St. Petersburg, lið JónsArnórs Stefánssonar í Rússlandi,
vann sinn fimmta leik í Evrópukeppni
FIBA í fyrrakvöld þegar liðið
lagði París PBR á útivelli,
74-80. Jón Arnór var stiga-
hæstur í liði Dynamo með
16 stig. Leikurinn var
jafn og spennandi og
þurftu leikmenn
Dynamo að
hafa mikið
fyrir því að
knýja fram
sigur en aðeins þrjú
stig skildu liðin að-
fyrir lokaleikhlutann.
Leikurinn réðst að
mestu á vítalínunni
þar sem franska lið-
ið hitti aðeins úr 8
skotum af 19 en
Dynamo var með
90% vítanýtingu. Jón
hitti vel utan af velli,
tók átta skot og hitti úr fimm og var
að auki með þrjú fráköst og þrjár
stoðsendingar.
Lið Hauka í Intersportdeildinni íkörfuknattleik, hafa ráðið til sín
Bandaríkjamanninn
Damon Jay Flint.
Flint er 29 ára að
aldri og hefur leikið
með fjölmörgum lið-
um eftir að hann út-
skrifaðist úr háskóla.
Predrag „Kuki“
Bojovic mun hins
vegar hætta að leika
með liðinu um stund
og einbeita sér að
þjálfun, bæði sem aðstoðarmaður
Reynis Kristjánssonar hjá meistara-
flokknum sem og í yngri flokkunum.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM