Fréttablaðið - 02.12.2004, Síða 73
HANDBOLTI Leikur Þórs og Fram,
sem var leikinn síðastliðinn laug-
ardag, hefur svo sannarlega dreg-
ið dilk á eftir sér. Upp úr sauð
undir lok leiksins og í kjölfarið
var Framarinn Ingólfur Axelsson
dæmdur í fjögurra leikja bann og
tveir aðrir leikmenn fengu þrjú
refsistig.
Þór fékk þar að auki 25 þúsund
króna sekt vegna hegðunar áhorf-
anda og ónógrar öryggisgæslu
þar sem leikmönnum var ekki
tryggð greið leið að búningsher-
bergjum. Bæði félög eru verulega
ósátt við dóminn og sér ekki fyrir
endann á þessu máli.
„Þetta er algjört rugl,“ sagði
Ólafur Arnarsson, formaður
handknattleiksdeildar Fram, og
vitnaði hann þar til bannsins sem
Ingólfur fékk. Aganefnd HSÍ gaf
Ingólfi tíu refsistig fyrir fram-
komu sína en leikmenn fá tíu
refsistig fyrir ofbeldi utan vallar,
fyrir, eftir og á meðan leik stend-
ur. Að sögn vitna, og Ingólfs
sjálfs, stjakaði Ingólfur við leik-
manni 3. flokks Þórs, sem öskraði
svívirðingar að honum, á leið
sinni til búningsherbergja eftir að
hafa fengið rautt spjald í leiknum.
„Aganefndin virðist dæma út
frá dómaraskýrslunni og það er
furðulegt því dómararnir sögðu
við mig persónulega að þar stæði
ekkert sem gæfi tilefni til svona
langs banns,“ sagði Ólafur. Frétta-
blaðið hafði samband við Bjarna
Viggósson, annan dómara leiks-
ins, og hann sagði að dómarar
mættu ekki tjá sig um leiki við
fjölmiðla.
Ólafur er ekki bara ósáttur við
bann Ingólfs heldur hefði hann
líka viljað sjá harðar tekið á Þórs-
urunum.
„Þeir voru búnir að fá aðvörun
og fá 25 þúsund króna sekt núna.
Aganefndin er búin að setja for-
dæmi fyrir önnur félög með þess-
um dómi. Núna er hægt að haga
sér eins og vitleysingur í íþrótta-
húsum landsins og komast upp
með það. Ég hefði viljað sjá 100
þúsund króna sekt á Þór sem og
heimaleikjabann,“ sagði Ólafur
sem ætlar að kæra dóminn þó það
sé ekki hægt. Fyrst til HSÍ og að
lokum til ÍSÍ.
Þórsarar eru ekki sáttir við
sektina sem þeir fengu og skilja
ekki af hverju þeir fengu hana.
Skapti Hallgrímsson, formaður
handknattleiksdeildar Þórs, hafði
lítið um málið að segja er eftir því
var leitað en sagði þó eftirfarandi:
„Ég er búinn að skrifa greinar-
gerð til HSÍ því ég vil gjarnan fá
nánari skýringar á því á hverju
dómurinn er byggður. Við erum
mjög ósáttir. Þetta er ekki í sam-
ræmi við annað og þetta mál er
stormur í vatnsglasi. Niðurstaðan
er alveg óskiljanleg. Sektin og
refsistigin sem okkar maður fær
er óskiljanlegt,“ sagði Skapti.
henry@frettabladid.is
UPPHAF HASARSINS Bjarni Viggósson dómari rekur hér Framarann Ingólf Axelsson af
velli í leik Þórs og Fram um helgina. Í kjölfarið gerðust hlutir sem áttu eftir að draga dilk á
eftir sér.
Þetta er algjört rugl
Forráðamenn Fram og Þórs eru ósáttir við dóm aganefndar HSÍ sem dæmdi
leikmann Fram í fjögurra leikja bann og sektaði Þór um 25 þúsund krónur.
FIMMTUDAGUR 2. desember 2004 33
! "#
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ Íslenskir skíðamenn á
Evrópumótaröðinni:
Féllu báðir
úr leik
SKÍÐAÍÞRÓTTIR Björgvin Björgvins-
son, skíðamanni frá Dalvík, gekk
illa á skíðamóti sem fram fór í
Levi í Finnlandi í gær en mótið
var liður í Evrópumótaröðinni í
alpagreinum. Björgvin, sem gekk
afar vel á síðasta móti, náði sér
aldrei á strik. Varð hann 60. eftir
fyrri umferð en datt í seinni um-
ferðinni og varð því úr leik.
Annar íslenskur skíðamaður,
Kristján Uni Sigurðsson, tók
einnig þátt í mótinu. Varð hann í
44. sæti eftir fyrstu umferð en féll
út í þeirri seinni eins og Björgvin.
- aöe
Knattspyrnumaðurinn og fyrirliði U-21 árs landsliðsins, Ólafur Ingi Skúlason:
Allt að verða klappað og klárt
FÓTBOLTI Fátt virðist geta komið í
veg fyrir að knattspyrnumaður-
inn Ólafur Ingi Skúlason gangi til
liðs við hollenska liðið Groningen
á næstunni. Hollenska liðið hefur
náð samkomulagi við Arsenal um
kaupverð á Ólafi Inga og er það
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins um tíu milljónir.
Ólafur Ingi sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær að hann ætti
von á því að fá leyfi frá Arsenal á
næstu dögum til að ræða við for-
ráðamenn Groningen um sinn
eigin samning auk þess sem hann
þarf að gangast undir læknis-
skoðun.
Ólafur hefur átt við meiðsli að
stríða í nára að undanförnu en
sagðist þó ekki hafa
neinar áhyggjur af því að það
gæti skemmt fyrir.
„Þetta eru ekki alvarleg meiðsli
en þau geta verið þrálát. Ég er
enn hálfslappur og er ekki alveg
búinn að jafna mig. Ég æfði með
liðinu í gær og fann til eftir æf-
inguna en er miklu betri í dag,“
sagði Ólafur Ingi.
-ósk
ÍSHOKKÍ „Þetta helgast af því að
flestöll mál voru látin sitja á hak-
anum þar sem formleg stofnun
Íshokkísambandsins hefur verið
á döfinni mestallt árið,“ segir
Viðar Garðarsson, formaður Ís-
hokkísambandsins. Furðu hefur
vakið að þrátt fyrir að rúmur
mánuður sé þangað til landslið Ís-
lands keppir á erlendri grund hef-
ur enginn þjálfari verið ráðinn
enn og engar æfingar haldnar.
„Hingað til hefur það verið
samkomulag að nota þjálfara
þeirra liða sem hér spila til að
þjálfa landsliðin líka en það er
orðið afar erfitt fyrir félögin að
missa þjálfara sína í lengri tíma
og því er enn verið að skoða þann
kost að ráða sérstaklega mann til
verksins.“
Ástæðan fyrir töfinni er hins
vegar sú að allt árið hafa mál ver-
ið látin sitja á hakanum þar sem
fyrir dyrum stóð að stofna form-
lega Íshokkísamband um mitt
sumar. - aöe
Rúmur mánuður í lands-
leiki Íslands í íshokkí:
Enn án
þjálfara
Green farinn heim:
Snæfell
sektað
KÖRFUBOLTI Það er engin lognmolla
í kringum körfuknattleikslið
Snæfells í Intersportdeildinni um
þessar mundir. Eftirlitsnefnd KKÍ
úrskurðaði í síðustu viku að
körfuknattleiksdeild Snæfells
skyldi greiða sekt sem nemur
100.000 kr. fyrir að brjóta reglu-
gerð sambandsins varðandi launa-
þak liða og þyrfti að auki að láta
einn leikmann fara. Forráðamenn
Snæfells óskuðu eftir fundi með
nefndinni en úrskurðurinn hélst
óbreyttur eftir fundinn.
Þá hefur Pierre Green, annar
erlenda leikmanna Snæfells, sagt
skilið við liðið og haldið til síns
heima vegna forræðisdeilu sem
hann stendur frammi fyrir í
heimalandi sínu. Þar sem Snæfell
hafði verið skikkað til að leika án
eins launaðs leikmanns undan-
farna leiki þá hefur málið leyst af
sjálfu sér. - sj
BJÖRGVIN BJÖRGVINSSON Tókst ekki
að fylgja eftir góðum árangri í Hollandi fyr-
ir skömmu síðan þrátt fyrir góðan vilja.
HANDBOLTI „Það er engin spurning
að þessi stuðningur kemur sér
afar vel og ánægjulegt að samn-
ingurinn er lengri en venja er,“
segir Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, eftir að gerð-
ur var þriggja ára styrktarsamn-
ingur við flutningafyrirtækið
DHL í gær.
Samningurinn þýðir að efstu
deildir kvenna og karla í hand-
boltanum næstu þrjú árin munu
heita DHL-deildirnar en samning-
urinn færir HSÍ rösklega 20 millj-
ónir króna á þessum tíma. Á sama
tíma skrifað undir samstarfs-
samning við Ríkisútvarpið en sá
samningur þýðir að áfram verður
vel gert við handboltann þar á bæ
og jafnvel aukið við það efni sem
nú þegar er á boðstólum. - aöe
HSÍ komið með bakhjarl:
DHL styrkir
handboltann
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ED
RO
M
YN
D
IR
/Þ
Ó
R
IR
T
RY
G
G
VA