Fréttablaðið - 02.12.2004, Page 76
36 2. desember 2004 FIMMTUDAGUR
Í spilaranum hjá ritstjórninni
Destinyís Child: Destiny Fulfilled, Jimmy Eat World: Futures, U2: How to Dis-
mantle an Atomic Bomb, Clinic: Winchester Cathedral, Þeyr: Mjötviður mær og
Pinback: Summer in Abaddon.
[ TOPP 20 ]
X-DOMINOSLISTINN 1. DESEMBER
A PERFECT CIRCLE
Imagine
INTERPOL
Evil
GREEN DAY
Boulevard of Broken Dreams
THE USED
Take It Away
MAUS
Over Me Under Me
SNOW PATROL
How to Be Dead
SLIPKNOT
Vermillion
FRANZ FERDINAND
This Fire
THE LIBERTINES
What Became of the Likely Lads
THE THRILLS
Not for All the Love in the World
GOOD CHARLOTTE
Predictable
SUM 41
We're All to Blame
JET
Look What You¥ve Done
PLACEBO
Twenty Years
BRAIN POLICE
Coed Fever
THE BRAVERY
Honest Mistake
FUTUREHEADS
Meantime
JIMMY EAT WORLD
Pain
THE MUSIC
Breaking
LIGHTS ON THE HIGHWAY
Said Too Much
* Listanum er raðað af umsjónar-
mönnum stöðvarinnar
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
The Stranglers heldur
tónleika hér á landi á
laugardag. Bassaleik-
arinn J.J. Burnel rifj-
aði upp síðustu heim-
sókn sveitarinnar til
Íslands, í samtali við
Birgi Örn Steinars-
son.
The Stranglers heldur tónleika í
íþróttahúsinu í Smáranum á laug-
ardag. Hingað hefur sveitin ekki
komið síðan árið 1978, nokkrum
mánuðum áður en pönkbylgjan
flæddi yfir Ísland, á meðan diskó-
tekin voru enn allsráðandi. Miðað
við hversu sjaldgæfir tónleikar
með erlendum sveitum voru þá hér
á landi má ætla að The Stranglers
hafi haft töluverð áhrif á íslensk
ungmenni.
Það var þann 11. september
1974 sem liðsmenn The Stranglers
sóttu um einkaréttinn á nafninu.
Dagsetningin ógurlega hefur því
allt aðra þýðingu fyrir þá félaga,
og öllu léttari. Sveitin hefur aldrei
lagt árar í bát á þeim 30 árum sem
hún hefur starfað. Nokkrar manna-
breytingar hafa þó orðið, sú
stærsta þegar söngvarinn Hugh
Cornwell yfirgaf sveitina fyrir um
14 árum síðan.
The Stranglers gaf nýverið út
sína fyrstu plötu í sex ár, Norfolk
Coast, og hefur sveitin ekki fengið
betri viðbrögð við plötu í ein 20 ár,
að sögn bassaleikarans J.J. Burnel.
Hann viðurkennir fúslega að ald-
urinn hægi á sköpunarferlinu.
„Við erum líka bara orðnir
latari,“ viðurkennir Burnel fús-
lega. „Það eru aðrir hlutir í lífinu,
Guði sé lof. Ef maður væri bara að
gera tónlist hefði maður ekkert að
segja lengur, er það?“
Hvernig var það að skipta um
söngvara á sínum tíma?
„Það var mjög erfitt. Fólk hafði
ekki mikla trú á okkur þá og við
neyddumst til þess að sanna okkur
alveg upp á nýtt. Við erum búnir að
því núna. Paul er búinn að vera
með okkur í 14 ár. Fólk er í eðli
sínu íhaldssamt, það tók okkur
langan tíma að koma þessari breyt-
ingu í gegn. Fólk tekur Paul núna
loksins sem einum af sveitinni.“
Heldurðu einhverju sambandi
við Hugh?
„Nei, ég reyndi það. Hann
skellti á mig síðast þegar ég
hringdi. Ég vil ekki búa í fortíðinni,
þannig að ég velti mér ekkert upp
úr því að reyna að ná sáttum við
hann. Við skildum ekki í góðu.“
Þið voruð frekar grófir á yngri
árum, bæði í textum og framkomu.
Áttuð það til að fá strippdansara
upp á svið og svoleiðis. Þegar þið
brutust svo út á poppmiðin, brugð-
ust gömlu pönkararnir illa við?
„Við höfum hvort eð er alltaf
verið gagnrýndir harkalega. Alveg
frá fyrstu plötunni okkar, þannig
að það skiptir engu máli. Ég geri
mér ekki alveg grein fyrir því af
hverju þetta eltir okkur.
Áður en við gáfum út fyrstu
plötuna okkar lenti ég í miklu
rifrildi við Paul úr The Clash. Upp
frá því lentum við upp á kant við
alla þá sem voru aðdáendur Sex
Pistols og The Clash. Fjölmiðlarnir
tóku upp hanskann fyrir þá, jafnvel
þó að við seldum miklu fleiri plötur
en báðar þessar sveitir. Við urðum
bara að halda áfram, og höfum gert
það síðan. En það sem rústar manni
ekki gerir mann bara sterkari.“
The Stranglers spilar ekki oft á
tónleikum og vegna þessa segir JJ
hverja tónleika verða betri fyrir
vikið, auk þess sem fleiri mæti.
Hann segir þá félagana engan
veginn vana þessu lengur og vill
ekkert gefa upp um tónleikadag-
skrána á laugardaginn.
Nýja platan heitir Norfolk
Coast, eftir fallegri strandlengju á
austurströnd Bretlands.
„Ég bjó þarna í gömlu húsi frá
17. öld um tíma. Rétt hjá var friðað
fuglasvæði. Í einum hól, sem var
um 400 metra frá húsinu mínu,
fannst rúmlega 2000 ára gömul
bygging sem fornleifafræðingar
halda að drúidar hafi byggt. Það
var hringur af viðarkössum úr eik.
Þeir halda að þarna hafi mönnum
verið fórnað til guðanna. Núna
kalla þeir þetta Sea-henge. Ég fór
oft þangað til þess að vera einn,
hugsa og skrifa. Maður fær ekki
svona tækifæri oft, og mig langar
ekki að semja í hótelherbergjum.“
Fjalla lögin á nýju plötunni þá
eitthvað um þennan stað?
„Nei, bara þann heim sem við
búum í. Það er eitt lag á plötunni
sem fjallar um stærstu mótmæli
sem hafa verið haldin í breskri
sögu í fyrra, gegn stríðinu á Írak.
Mótmælin voru algjörlega
hunsuð. Það er líka lag um hvern-
ig það er til fólk í heiminum í dag
sem þykist stjórna því hver sann-
leikurinn sé. Þannig er verið að
klúðra heimsmálunum.“
Það þora ekki allir tónlistar-
menn að vera pólitískir.
„Það er þeirra vandamál. Sem
íbúi í þessu landi finnst mér það
okkar skylda að hafa skoðun á
heimsmálunum og tjá þau.“
Liðsmenn The Stranglers ætla
aðeins að stoppa hér í tvær nætur.
Burnel man þó vel eftir síðustu
heimsókn. „Ég man eftir að hafa
séð fallegustu stúlkur og yngstu
fyllibyttur sem ég hef á ævinni
séð. 12 ára strákar drekkandi
spíra! Svo fór ég á diskótek, og
þar brutust út heljarinnar slags-
mál, þannig að ég fór,“ segir
Burnel og hlær að endurminning-
unni.
Hljómar svo sannarlega eins og
Ísland. ■
Yngstu fyllibyttur í heimi!
THE STRANGLERS Sveitin kom hingað til lands fyrir 26 árum og ætlar að endurtaka leikinn á laugardaginn kemur.
Íslandsvinirnir í Keane ætla að
hefja upptökur á annarri breið-
skífu sinni um jólin. Sveitin lék
fyrir fullum sal í Listasafni
Reykjavíkur á Airwaves-hátíðinni
og er að komast í hóp stórstirna í
Bretlandi eftir útgáfu plötunnar
Hopes and Fears.
Hljómborðsleikarinn Tim
Rice-Oxley hefur verið iðinn við
að semja ný lög í hljómsveitarrút-
unni og eru liðsmenn ánægðir
með árangurinn. Sveitin hefur
þegar leikið nokkur af þessum
nýju lögum á tónleikum, þar á
meðal hér á landi. Þar á meðal
voru lögin Hamburg Song, Noth-
ing in Your Way og On a Day Like
Today.
Aðdáendur geta heyrt þessi lög
þegar Rás 2 leikur upptökur af
tónleikunum.
Eftir frábærar undirtektir
fyrstu plötunnar má búast við því
að fylgifiskur hennar skili sér í
búðir strax á næsta ári. ■
Keane byrjar á næstu plötu
KEANE Íslandsvinirnir í Keane eru að fara að byrja á nýrri plötu.
„And there won't be snow in Africa this Christmas
time. The greatest gift they'll get this year is life.“
- Stórstjörnurnar í breska poppinu sungu um jól í skugga hungursneyðar í laginu Do
They Know Itís Christmas? fyrir margt löngu. Lagið var svo endurupptekið nýlega.
A PERFECT CIRCLE Verma enn
toppsæti X-Dominoslistans með
Imagine.