Fréttablaðið - 05.12.2004, Síða 39
SUNNUDAGUR 5. desember 2004
Þ órður heitinn Halldórssonfrá Dagverðará á Snæ-
fellsnesi var kostulegur mað-
ur. Hann var sögumaður góð-
ur, svo góður að þeir sem
heyrðu voru stundum langt
í frá vissir hvort Þórður
segði satt eða skáldaði. Fyrir
nokkrum árum sat ég í stof-
unni heima hjá Sigurði Krist-
jónssyni á Hellissandi. Sigurð-
ur var í áratugi einn aflasæl-
asti skipstjóri landsins. Stýrði
lengst Skarðsvík SH til mikilla
afreka. Sigurður var að rifja
upp sérstaka skipsfélaga sína
á löngum og glæstum ferli.
Þórður frá Dagverðará er
sennilega sérstakasti maður
sem ég hef kynnst, sagði
Sigurður. Um áramót, á einni
vertíðinni, var Þórður munstr-
aður um borð, en það var áður
en fyrsta Skarðsvíkin var
keypt. Sigurður sagðist hafa
verið skipstjóri á Haföldunni.
Fyrst eftir áramótin gekk illa,
fiskuðu minna en flestir.
Þórður var við gogginn í fiski-
leysinu og segir að eitthvað
verði að gera svo fiskur gefi
sig. Hann tók tindabykkju og
skar í hana rúnir. „Við verðum
að galdra fyrir hann“, sagði
Þórður og henti tindabykkj-
unni fyrir borð. Það var einsog
við manninn mælt, fiskur nán-
ast á hverjum krók og eftir
mánuð var Hafaldan orðin
aflahæst allra báta.
Sigurður kann sögu af
Þórði sem Þórður hafði bæði
sagt og skrifað, en borið hafði
á efasemdum um söguna.
Það var snemma í febrúar,
að lokinni löndun var Hafald-
an fest utan á flutningskip
sem hét Otur. Allir fóru heim
að sofa, nema Þórður sem svaf
um borð. Um nóttina gerði
sunnan albrjálað veður. Flýtir-
inn var mikill að koma Otri á
sjó, svo mikill að Hafaldan var
enn bundin við Otur þegar var
farið var úr höfninni. Hafald-
an slitnaði frá Otri og rak upp
á næsta sker. Þórður komst
efst í mastrið þar sem hann
batt sig fastan. Svo fór að Haf-
aldan losnaði af skerinu og
sökk til botns, en svo heppi-
lega vildi til að ekki var dýpra
en svo að masturstoppurinn,
þar sem Þórður hafði bundið
sig, var einn ofansjávar.
„Þetta var svo ótrúlegt, svo
ótrúlegt hvernig menn komast
af,“ sagði Sigurður skipstjóri
þegar hann hugsaði til baka.
Tryggvi Jónsson, sem var
aflakall á Víkingi, Guðmundur
bróðir Sigurðar og fleiri fóru
út að leita Haföldunnar og
Þórðar. Þeir sáu ljósglætu og
sigldu að, mikil hættuför. Það
reyndist vera ljóstýran í toppi
masturs Haföldunnar. Þeir
tóku áhættu og sigldu nær. Þá
sáu þeir Þórð í mastrinu þar
sem hann fór á kaf í sjó í
hverri veltu. Tryggvi var
áræðinn, sigldi nær og
Guðmundur hikaði hvergi,
stökk yfir á mastrið, kom taug
á Þórð, skar hann lausan og
nær dauða en lífi var honum
bjargað. „Þannig bjargaðist
Þórður.“
Saga af... lífsháska
SIGURJÓN M. EGILSSON sigurjon@frettabladid.is
með Sigurjóni
NÝJAR
ÍSLENSKAR
ÞJÓÐSÖGUR
Carl J. Eiríksson skotmaður
vill gera eftirfarandi at-
hugasemdir við sögu sem
sögð var í síðustu viku.
1. Carl segir rangt að þegar
hann mætti á skrifstofu ÍBR
hafi hann hrundið upp hurð-
inni. Carl segist hafa bankað.
2. Carl segist ekki geta tekið
undir með sögumanni, um að
sér haf verið tekið af kurt-
eisi og sér hafi verið sýnd
þolinmæði.
3. Carl segir aldrei hafa
komið til greina að mæta
aftur eftir helgi með kæruna
sem hann var að leggja inn.
Þá hefði kæran dagað upp
þar sem kærufrestur hefði
liðið.
4. Carl segir að kæran hafi
ekki verið lesin þegar hann
kom með hana á skrifstof-
una.
5. Carl segir rangt hjá sögu-
manni að svartamyrkur hafi
skollið á. Það hafi verið
rökkur.
6. Carl segir vanta í söguna
að hann hafi gáð hvort hann
gæti hjálpað til við að laga
rafmagnsbilunina.
Athugasemd:
Rökkur en ekki myrkur
- mest lesna blað landsins
Á MÁNUDÖGUM
Fasteignaauglýsingar sem fara
inn á 75% heimila landsins
Auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is