Fréttablaðið - 05.12.2004, Blaðsíða 55

Fréttablaðið - 05.12.2004, Blaðsíða 55
■ TÓNLEIKAR  16.30 Aðventuhátíð Kórs Átthagafé- lags Strandamanna verður haldin í Bústaðakirkju. Þar syngur kórinn undir stjórn Krisztinu Szklenár auk þess sem barnakórinn syngur nokkur lög. Einsöngv- ari með kórnum er Signý Sæmundsdótt- ir. Meðleikari er Kári Þormar. Hugvekju flytur sr. Sigrún Óskarsdóttir.  17.00 Bandaríski orgelleikarinn Stephen Tharp leikur glæsilega orgeltón- list tengda aðventu og jólum á stóra Klaisorgelið í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir eru líður í Tónlistarhátíð á jólaföstu í Hall- grímskirkju.  17.00 Finnsku hjónin Sami Mäkelä sellóleikari og Taru Myöhänen-Mäkelä píanóleikari flytja verk eftir finnsk tón- skáld, meðal annars Jean Sibelius, Aulis Sallinen, Matti Rautio, á tónleikum í Nor- ræna húsinu.  17.00 Kvennakór Reykjavíkur flytur verk eftir Mozart, Brahms og Bach í Graf- arvogskirkju ásamt strengjasveit, orgeli og einsöngvurunum Huldu Björk Garðars- dóttur, Jóhönnu Halldórsdóttur og Sesselju Kristjánsdóttur. Stjórnandi er Sigrún Þorgeirsdóttir.  20.00 Diddú og Blásarasextett Mosfellsdals halda útgáfutónleika í Landakotskirkju og flytja verk af nýút- komnum diski sem heitir Ave María.  20.00 Aðventu- og jólatónleikar Kórs Hjallakirkju í Kópavogi verða haldnir í Hjallakirkju. Kristín R. Sigurðardóttir, Erla Björg Káradóttir, Kristín Halla Hannesdóttir og Gunnar Jónsson syngja einsöng.  20.00 KK, Ragnheiður Gröndal, Erp- ur Eyvindarson, Pollockbræður, Davíð Jóhannsson, Margrét Eir, Geir Harðar- son, Jóna Palla, Valur Gunnarsson og Hilmar Garðarsson koma fram á tónleik- um á Hótel Borg til styrktar Konukoti, næturathvarfi fyrir heimilislausar konur. Allir sem koma að tónleikunum gefa vinnu sína og allur ágóði af þeim rennur til reksturs athvarfsins.  20.30 Borgardætur, þær Andrea Gylfadóttir, Ellen Kristjánsdóttir og Berglind Björk Jónasdóttir, syngja í Laugarborg ásamt þriggja manna hljóm- sveit skipaðri þeim Eyþóri Gunnarssyni píanóleikara, Þórði Högnasyni á bassa og Helga Svavari Helgasyni á trommur.  20.30 Páll Óskar og Monika halda jólatónleika í Háteigskirkju ásamt strengjakvartett og kórnum Hljómeyki.  22.00 Reggítónleikar með Svasil á Grand Rokk. ■ LEIKLIST  14.00 Leikhópurinn Perlan verður með jólaskemmtun í Borgarleikhúsinu.  15.00 Brúðuleikritið Pönnukakan hennar Grýlu verður sýnt í Kringlusafni Borgarbókasafnsins. ■ FUNDIR  20.00 Kínaklúbbur Unnar kynnir næstu ferð til Kína, sem verður farin l3. maí til 3. júní, að Njálsgötu 33. Unnur Guðjónsdóttir sýnir skyggnur frá Kína. ■ SAMKOMUR  14.00 Jóladagskrá hefst í Ingólfs- nausti, Aðalstræti 2, með leik básúnu- kvartetts undir stjórn Vilborgar Jónsdótt- ur. Síðan verður reykvískum grunnskóla- nemanda afhent viðurkenning fyrir síð- ustu jólasveinasilfurskeiðina.  15.00 Sjónum verður beint að ís- lenskum og erlendum jólasiðum í Þjóð- minjasafni Íslands, þegar jóladagskrá hefst þar í dag. Toshiki Toma, prestur innflytjenda, tendrar ljósin á jólatrénu. Szymon Kuran, Reynir Jónasson og börn spila og syngja lög frá ýmsum löndum. Léttar veitingar á fjölþjóðlegum nótum.  15.30 Ljósin verða tendruð á Óslóar- trénu á Austurvelli í 53. sinn. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur jólalög og Dómkórinn syngur nokkur lög. Gunni og Felix fá alla til að tralla með sér og þeir bræður Giljagaur, Stekkjastaur og Stúfur segja sögur og taka lagið. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. SUNNUDAGUR 5. desember 2004 43 Hamrahlíðarkór syngur Bach Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands sl. fimmtudagskvöld sungu Hamrahlíðarkórar Þorgerðar Ingólfs- dóttur með hljómsveitinni. Stjórnandi var Robert King. Einsöng sungu Gillian Keith, Diana Moore, Gunnar Guð- björnsson og Stephen Richardsson. Á efnisskránni voru verk eftir Johann Sebastian Bach og Georg Philipp Telemann. Menn hafa oft velt fyrir sér saman- burði á samlöndunum og samtíma- mönnunum Bach og Telemann. Sá síð- arnefndi naut þeirra vinsælda og virð- ingar í lifanda lífi, sem þeim fyrrnefnda var jafnan neitað um. Á síðari tímum hefur þetta snúist við. Það er alþekkt að tíma tekur að átta sig á verkum hinna mestu afreksmanna og í tónlist er það algengast að þeir sem fram úr skara njóti ekki umbunar atgervis síns. Á þessum tónleikum gafst skemmti- legt tækifæri til þess að bera saman mismuninn á verki snillings og verki þess sem var aðeins frábærlega snjall og duglegur. Svíta Telemanns í C dúr, „Hamburger Ebb und Fluth“, er skemmtilegt verk, hugmyndaríkt og vel samið. Kaflinn um hinn ástfangna Neptúnus t.d. er virkilega fallegur. Það er í samanburðinum við Bach sem Tel- emann bliknar. Svíta Bachs í D dúr, sem þarna var flutt, er dýpri. Þó var flutningurinn á því verki af einhverjum ástæðum mun lakari en á verki Telemanns. Þetta heyrðist enn frekar í hinu fræga Magnificati í D dúr. Þar er dýptin og sá frumleiki, sem hvorki byggir á yfirlýsingum né teoríum, held- ur stærð sköpunargáfunnar og kemur sjálfkrafa hjá þeim sem atgervið hefur. Á þessum tónleikum fengu fulla merk- ingu hin fleygu ummæli Beethovens „er sollte nicht Bach sondern Meer heissen“ . Tónlistarfólkinu tókst yfirleitt betur upp með flutninginn eftir hlé en fyrir. Stjórnandinn valdi að spila frekar í hraðari kantinum, eins og hefur verið í tísku með enskum um hríð. Það gerir kröfur um hljóðfallslega samhæfingu, sem ekki var alltaf staðið undir. Telem- ann var hins vegar vel fluttur og Magni- ficatið hljómaði mjög vel. Kórinn var samsettur úr tveimur kórum núverandi og fyrrverandi nemenda Menntaskól- ans við Hamrahlíð. Þorgerður Ingólfs- dóttir, sem hefur marga fjöruna sopið þegar kemur að flutningi erfiðra tón- verka með sínu unga söngfólki, sýndi að hún er ekki á þeim buxunum að leggja árar í bát. Kórinn hljómaði mjög vel og það sem skorti á í nákvæmni á stöku stað var ríflega upp bætt með heillandi æskuþrótti . Einsöngvararnir gerðu margt vel, einkum í Magnificatinu. Sópranarían, bassaarían og hinn yndisfagri dúett tenórs og alts var allt saman mjög vel flutt. Það tók hinn frísklega stjórnanda nokkurn tíma að koma Íslendingunum í gang, en það gekk að lokum. Úr hópi hljómsveitarmanna áttu stórt hlutverk þau Ásgeir Steingrímsson, trompet, Daði Kolbeinsson, óbó, Bryndís Halla Gylfadóttir, selló, og flautuparið, Hallfríður Ólafsdóttir og Áshildur Har- aldsdóttir. Þau stóðu sig öll vel. TÓNLIST FINNUR TORFI STEFÁNSSON Sinfóníuhljómsveit Íslands og Hamrahlíðarkórarnir Stjórnandi: Robert King HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 2 3 4 5 6 7 8 Sunnudagur DESEMBER Bókaforlagið Ís-Land hefur gefiðút skáldsöguna PS: Ég elska þig, eftir Ceceliu Ahern, í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar. Rétt fyrir þrítugsafmælið missir Hollý eigin- manninn sem verið hefur í senn eig- inmaður, elskhugi, besti vinur og klettur í lífi hennar. En Gerri hafði lofað að vera henni ævinlega hollur og stendur við það fyrirheit með því að setja saman „Listann“ sem Hollý uppgötvar óvænt eftir lát eigin- mannsins, safn af gagnorðum orð- sendingum í umslögum sem opnuð eru samkvæmt leiðbeiningum hans, eitt í senn, í byrjun hvers mánaðar fyrsta árið eftir fráfall hans. SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Tónlistarfólkinu tókst yfirleitt betur upp með flutninginn eftir hlé en fyrir. NÝJAR BÆKUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.