Fréttablaðið - 05.12.2004, Qupperneq 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
1
1
0
4
TÖFRANDI FERÐASAGA
LOKSINS EFTIR 6 ÁRA BIÐ NÝ BÓK FRÁ HÖFUNDI GÓÐRA ÍSLENDINGA
Þannig tekst Huldari að gera lengi vel tíðndalitla en kúltúrsjokkerandi ferð
að töfrandi sögu sem færir lesendur fyrirvaralaust til Kína.
... MÚRINN Í KÍNA ER FERÐASAGA SEM FÆR MANN TIL AÐ PAKKA NIÐUR
Í TÖSKUR OG FERÐAST Á FRAMANDI SLÓÐIR ÁN ÞESS AÐ HREYFA SIG.
– Hlynur Páll Pálsson, Fréttablaðið
Huldar Breiðfjörð skrifar skemmtilega skýran stíl – tilgerðarlausan
og blátt áfram. Það sem hann upplifir á ferðalaginu er blanda af
endurtekningu og dýpkandi innsýn. ... Múrinn í Kína lætur ekki
mikið yfir sér en skilur eftir sig þá hugmynd að maður hafi
fengið ósvikna hlutdeild í reynslu sem byrjar í stefnuleysi
en fer svo að taka á sig mynd, smátt og smátt.
– Jón Ólafsson, Morgunblaðið
Bjartur-1 22.10.2004 14:26:57
Samkvæmisleikir eftir Braga Ólafsson er mögnuð skáldsaga. Þrælmögnuð.
... eftir lestur bókarinnar situr maður gjörsamlega bergnuminn. Hvað gerðist
eiginlega? ... Samkvæmisleikir er spennandi og átakanleg samtímasaga
með lunkinni fléttu. – Hlynur Páll Pálsson, Fréttablaðið
ALVEG FRÁBÆR BÓK, SPENNANDI OG FYNDIN. – Jón Yngvi Jóhannsson, Kastljósið
Við lestur þessarar spennandi og vægast sagt mögnuðu sögu hefur
undirrituð endanlega sannfærst um að Bragi Ólafsson er án efa í hópi
okkar bestu rithöfunda. – Sigríður Albertsdóttir, DV
SAGA ÞESSI ER SNILLDARLEGA UPPSETT ... – Soffía Bjarnadóttir, Víðsjá Rás 1
,
Örvæntingin
Desember er mánuður örvænting-arinnar í skáldskap og bóksölu.
Bækurnar byrja að koma út í nóvem-
ber á bjartsýnisverði. Engin bók er
þá undir fjögur þúsund krónum sem
er hærra en verð á flösku af sterku
víni. Fáir karlmenn trúa að jafn
mikil víma fáist við lestur bókar og
að lepja úr flösku og halla sér að
henni en láta konur um léttvægi bóka
og borðvíns. Efni bóka og markaður-
inn miðast því við léttvínsneytendur,
ekki sterkra drykkja.
VERÐ Á BÓK er ekki lengi boru-
bratt í bókabúð, innan skamms er
það tvískipt í auglýsingum. Hið upp-
haflega verð fær á sig fyrsta kross-
inn: Fyrir neðan það er lægri núver-
andi tala. Eftir það er endalaus nið-
urvísandi straumur. Bókin verður
bók mánaðarins í bókabúð og fæst
með þrjátíu prósent afslætti. Ef bók
er heppin á afsláttarleiðinni lendir
hún í Bónus og hangir þar innan um
jólakex skreytt englahári og ljósaser-
íum, en færist síðan að kjötborðinu.
MEÐAN BÓKIN baslar nálægt
hangikjötinu hefst auglýsingaherferð
í blöðum. Stúlkur í bókabúðum bera
fram álit sitt sem dugar ekki lengi til
þess að bók dragi fram lífið. Þá er
byrjað að auglýsa hvar hún er á met-
sölulistunum. Þar gerist hið undar-
lega: Ótal bækur eru í fyrsta sæti.
Því er gleðilegt að til skuli vera
fyrsta sæti fyrir marga titla. Bekk-
urinn virðist vera þétt setinn. Á hann
komast auðvitað bækur fyrir létt-
vínsneytendur og þá sem hafa notið
fjöldaframleiðslu á lærdómi. Þær
girnilegu fjalla um konur sem verða
fyrir þeim hremmingum í lífinu að
hrökkva miðaldra upp um nætur við
hlið drumba sinna, kófsveittar og
langar til að fyrirfara sér. Þær gera
það auðvitað ekki; melta það bara
með sér að síðustu blaðsíðu.
En líka eru karlmenn sem lenda í
hremmingum og hafa tekið upp þráð-
inn þar sem hann slitnaði í eldhúsum
þegar ómenntaðar mömmur sögðu:
Böl barnanna er meira en það taki
nokkru tali.
MUNURINN ER SÁ að nú-
tímapabbarnir eru ritfærir hremm-
ingarfíklar. Til að undirstrika allt
hefja leikkonur tískusýningu sár-
anna. Þær ganga fram með eftirlík-
ingar sem snyrtidömur hafa gert af
áverkum kvenna sem urðu fyrir of-
beldi en koma ekki nálægt sýning-
unni, enda ekki nógu frægar og sæt-
ar til að vekja athygli. Þetta er dæmi
um það hvernig fyrrum bændasam-
félag varð siðfágað. ■
BAKÞANKAR
GUÐBERGS
BERGSSONAR