Tíminn - 30.09.1973, Side 28

Tíminn - 30.09.1973, Side 28
28 TÍMINN Sunnudagur 30. september 1973 ÞAU A A AÐ JAFNA VIÐ JÖRÐU Mannlif er nú aftur farið að blómgast i Eyjum, og á þriðja hundrað fjölskyldur fluttar þangað. En margt er breytt. Heil hverfi og tún eru nú undir hrauni og vikri. önnur hverfi þarf að jafna við jörðu vegna skemmda, og reisa þarf ný hús. Vest- mannaeyjar verða ekki hin- ar sömu aftur, en áreiðan- lega á enn eftir að þrifast þar þróttmikið athafnalif eins og áður var og nýjar kynslóðir byggja á því hrauni, sem lagði gömlu byggðina í rúst. NÆK tvö hundruð og fimmtiu fjölskyldur eru nú al- fluttar út í Vestmannaeyjar, og fleiri hyggja á flutning á komandi vetri eða meðvorinu. Þó að hreinsun bæjar- ins hafi gcngið vonum l'ramar, er ótal margt annað, sem aðkallandi er, samfara fjölgun ibúa. Það vantar húsnæði. Húsin vestast i bænum eru óskemmd, enda flestar þær fjölskyldur, sem komnar eru til Eyja, bú- settar i þeim bluta bæjarins. Eftir þvi sem austar dregur fer að bera meira á skemmdum húsum, þó var vcrið að flytja inn i einstaka hús, sum hús var verið að hreinsa og viðgerð hafin á öðrum. Fjöldann allan af húsum i miðbænum þarf að meta, áður en viðgerð getur hafizt, svo hægt sé að flytja inn. Þó, að ibúarnir hugsi ekki til flutnings i augnablikinu, þarf að yfirfara öll hús, gera við og koma á kyndingu áður en frost kemur, annars er viðbúið að þau hús skemmist til muna i vetur. Ibúðir til leigu eru til stað- ar, en sá böggull fylgir skammrifi að ibúðir fást ekki leigðar lengur en til vors. Verið er að útbúa byggingarsvæði fyrir um 600 lóðir og hafa niutiu og tveir sótt um lóð, en úthlutun er ekki hafin. Einnig hefur bæjarstjórn Vestmannaeyja i at hugun að byggja blokkir, raðhús og einbýlishús til sölu og leigu og vonast er til að byggingarframkvæmdir

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.