Tíminn - 30.09.1973, Qupperneq 33

Tíminn - 30.09.1973, Qupperneq 33
Sunnudagur 30. september 1973 TÍMINN 33 Svona fór fyrir þessum litla eplaþjófi, — en það sem Einar fékk fannst honum beiskara en flenging. höfðu einu sinni sagt honum, að pabbi þeirra væri með glerauga. Það var þá hann, sem faðir hans hafði orðið að meini og hafði liðið svo mikið fyrir um dagana. Og hann ákvað að gæta enn betur að þvi, að fara eftir þvi, sem faðir hans hafði beðið um áður en hann dó. Þarna rétt h já var stór og mikill herragarður. Þar fannst drengjunum gaman að leika sér, þeir fóru i feluleik og marga leiki fleiri og það voru svo góðir ávextirnir i garðinum. Ráðsmaður- inn gaf þeim oft þá ávexti, sem fallið höfðu niður úr trjánum. En þetta sumar þorðu þeir ekki að koma þarna nærri eða leika sér þar, þvi að eigandi herra- garðsins dvaldist þar sjálfur um sumarið og þeir höfðu heyrt, að hann væri mjög skap- stór og strangur. En garðurinn var freistandi og þeir fóru oft og léku sér þarna nálægt og alltaf mændu þeir löngunaraugum á fullþroskaða ávextina. Einn daginn sáu þeir að það vantaði rimil i girðinguna og réðust þeir nú á jarðarberin. Allt i einu heyrðu þeir hrópað með þrumu- raust: ,,Hver er að stela jarðarberjunum min- um?!” Þeir urðu dauðskelk- aðir og þutu burt á augnabliki. Einar hljóp lika fyrst, en svo nam hann allt i einu staðar og stóð kyrr og beið. Þá kom herragarðs- eigandinn til hans og sagði: ,,Nú, nú, af hverju stendur þú þarna?” ,,Ég hef étið af jarðar- ber junum! ” ,,Já, ég sá það. En hvað er svo um það?” ,,Þá verð ég að taka afleiðingunum af þvi!” „Flengingunni áttu við? Jæja, komdu þá með mér.” Herragarðs- eigandinn gekk á undan og Einar fylgi honum eftir. En nú var hug- rekkið horfið hjá honum. Herragarðseigandinn leit aftur öðru hverju. Hann virtist vera reiði- legur á svipinn, en þó voru einhverjir skrýtnir drættir i kringum munn- inn, eins og hann væri að stilla sig um að brosa. „Marta”, kallaði hann inn um opinn gluggann, „komdu með disk af jarðarberjum með sykri og rjóma út á!” Ætlar hann nú að fara að éta jarðarber lika? hugsaði Einar með sér og honum leið hálfilla. Svo kom Marta með berin. ,,Settu þig nú niður, drengur minn og borð- aðu eins og þú getur”, sagði þá herragarðseig- andinn með skipandi röddu og Einar gerði eins og honum var sagt, en honum fannst eins og berin stæðu föst i hálsin- um á sér, þegar hann var að hugsa um hvað myndi næst gerast. Nei, þótt berin væru góð, þá átti hann bágt með að koma þeim niður. Herragarðseigandinn hafði setið þarna og gef- ið Einari nánar gætur og komu þá sömu einkenni- legu drættirnir i ljós I kringum munninn, en nú skellihló hann. ,,Þú ert býsna skrýt- inn drengur. Ég held nú að þú sért búinn að fá nægju þina i dag. Þú læt- ur sennilega berin min i friði hér eftir”, Þvi lofaði Einar hátið- lega og hélt siðan af stað glaður i huga, en hálf- sneypulegur þó. ,,Hvað fékkstu svo, Einar, — flengingu, ha?” kölluðu drengirnir til hans, þar sem þeir biðu hans á bak við lim- gerði við veginn. „Jarðarber með sykri og rjóma”, svaraði Ein- ar stuttur i spuna. ,,Umm, þótti þér það ekki gott?” Mér fannst það beisk- ara en flenging!” Stóraukin varahluta- þjónusta fyrir Vauxhall & Bedford SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA @ Varahlutaverzlun BÍLDSHÖFÐA 8.RVÍK. SÍMI 86750 BlLDSHÖFÐI 8 K U B B U R ÁLFNAÐ ER VERK ÞÁ HAFIÐ ER M SAMVINNUBANKINN Bjarnarylur meö VARHAPLAST plasteinangrun Verksmiðjan Armula 16 bb Þ. ÞORGRÍMSSON & CO Suðurlandsbraut 6 simi 38640

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.