Tíminn - 04.10.1973, Page 4
4
TÍMINN
Fimmtudagur 4. október 1973
Frank Sinatra í sviðsljósið
á nýjan leik
Fyrir röskum tveimur árum dró
stórstjarnan Sinatra sig i hlé og
hætti aö koma fram opinber-
lega. Allt viröist þó benda til
þess, aö hann sé oröinn leiöur á
aö gera ekki neitt og ætli aö
hella sér út i skemmtanaiönaö-
inn á ný af fullum krafti.
Nýjustu fregnir frá Los
Angeles herma, aö fyrst ætli
Sinatra aö syngja inn á LP-
hljómplötu, síöan hefjist gerö
nýrra sjónvarpsskemmtiþátta,
og loks sé hann á höttunum eftir
góöu kvikmyndahandriti.
Slúöurdálkahöfundar 1
Bandarikjunum velta nú vöng-
★
um yfir þvi, hver sé ástæöan
fyrir hinni skyndilegu ákvörð-
un. Sumir halda þvi fram, að
manninum leiöist einfaldlega aö
sitja auöum höndum, aðrir tala
um peningaleysi. Þriðji hópur-
inn er viss um aö hann geri
þetta af tillitssemi við aðdáend-
ur sina. Ef til vill hefur allt þetta
haft sitt að segja, en trúlega
hafa nú aðdáendabréfin fimm-
tiu þúsund, sem sagt er að hann
hafi fengið á þessum tveimur
árum, ýtt undir gamla mann-
inn. Þessi bréf eru vist ákaflega
samhljóða: Allir grátbiðja
Frank um að hefja söng aö nýju.
★
Hlý og falleg
peysa
Þessi mynd þarfnast svo sem
engra skýringa, og við ætluðum
eingöngu að birta hana vegna
þess.aö okkur fannst hún
skemmtileg. En viö nánari
athugun varð okkur ljóst, aö
fingraliprar mæöur gætu auð-
veldlega haft af henni nokkurt
gagn. Þaö er nefnilega hægðar-
leikur að prjóna eftir peysunni
þeirri arna. Prjónið er garða-
prjón, og ekkert er sjálfsagðara
en aö nota i hana garnafganga,
sem prjónakonur eru jafnan i
vandræðum meö aö koma i lóg.
Eftir svipnum að dæma er
þetta lika dæmalaust þægileg og
góö flik.
Hundarnir lifa
í lúxus
í Flórida
Frá Fort Lauderdale i Florida
höfum viðfrétt að 73 hundar þar
á staðnum þurfi nú ekki lengur
aö bera áhyggjur fyrir morgun-
deginum, þvi aö nýlega var
felldur dómurtsem kvað á um,
aö fyrrnefndir hundar mega
erfa milljónir dollara. Þetta
hafa verið langdregin málaferli.
t fimm ár hefur málið farið fyrir
ýmsa dómstóla, þar til alrikis-
dómari i Bandarikjunum rak
endahnútinn á þetta málaþras.
Hann dæmdi rétt vera, að
hundarnir mættu erfa þessa upp
hæð, sem þeim var áætluð i
erföaskrá milljónamærings,
sem hét Eleanor Richey. Það
voru ættingjar frú Richeys, sem
komu með málið fyrir dóm-
stólana fyrir fimm árum, þá var
arfur hundanna fjórar milljónir
dollarar, sem átti að skipta milli
150 hunda, en siðan hefur
hundunum fækkað um helming,
en upphæðin hefur hækkað upp i
14 milljónir dollara. Af þessum
peningum fá ættingjar frúarinn-
ar aðeins um það bil tvær
milljónir dollara, — þaö sem
eftir er af upphæðinni á að
tryggja hundunum áhyggju-
laust og þægilegt lif!
Einhentur fiðlusmiður
Fiðlusmiði er sögð vera ákaf-
lega vandasöm listgrein og
mikið nákvæmnisverk, og mætti
ætla að ekki veitti af báðum
höndum heilum við þá iðju.
Maðurinn ámeöfylgjar.di mynd
er einhentur, eins og glöggt má
sjá, en það hefur þó ekki aftrað
honum frá að smiða rúmlega
þrjátiu fiðlur.
Þetta er Rode Rasmussen,
sem býr i Mo i Rana, sögufræg-
um bæ I Norður-Noregi. Þótt
hann sé kominn yfir áttrætt,
heldur hann ótrauður áfram við
fiölusmiðina. Og þetta er
sannarlega ekkert fúsk hjá hon-
um, jafnvel þótt hann vanti
hægri höndina, þvi að fiðlurnar
hans eru mjög eftirsóttar og
hafa hlotið viðurkenningu sér-
fróðra manna.
kominn aftur.”
DENNI
DÆMALAUSI
Það þýðir ekkert að öskra. Það
gerir það ekki verra.