Tíminn - 04.10.1973, Blaðsíða 21

Tíminn - 04.10.1973, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 4. október 1973 TÍMINN 21 ann og framtíðina, en finnst þér þú ekki lika vera i þjónustu þeirra, gömlu mannanna, sem sofa undir fótum þér, þegar þú ert að störfum i kirkjugarði? — Þakka þér fyrir umsögnina. Jú, vist reyni ég að gera gagn sem lifandi maður samtiðar minnar. Hitt er engu að siður staðreynd, að ég hugsa oft til þeirra, sem farnir eru á undan okkur og gerðu sjálfir sitt bezta á meðan þeir stóðu hér við. Ég var einu sinni að mæla og teikna upp kirkjugarð. Ég kannaðist svolitið við einn, sem lá þar, og ég hafði þann sið að geyma mælingatækin min hjá honum. Svo varð mér það á að týna smáhlut, sem ég þurfti að nota. Ég leitaði, en fann ekki. Þá varð mér að orði: ,,Æ, hvað gerð- irðu við þetta, Jói minn?” Nú, ég hafði varla sleppt orðinu, þegar ég fann það, sem ég leitaði að, svo að þú sérð, að það borgar sig að halda vinsamlegu sambandi við þá, þessa gömlu. En að visu verð- ur það alltaf fleiri takmörkunum háð en samskiptin við hina, sem enn eru á ferli ofar moldu._vs Kyrrð, friður og fullkomið jafnvægi einkennir þessa mynd. Þannig voru ÞingvéHir, þegar við komum þar siðla dags I haust ' í ' í ' Félag íslenzkra iðnrekenda: önnur gengishækkun ríður iðnaðinum að fullu IÐNAÐUKINN er hart leikinn núna, og þarf langan tfma til að ná sér á strik. Ef önnur gengis- hækkun verður gerð, verður það örlagarfkt fyrir iðnrekendur. Leggja verður niður tolla á hrá- efni og vélum, sem flutt er inn, ef islenzkur iðnaður á að vera sam- keppnisfær á hinum væntanlega tollfrjálsa markaði samfara EFTA aðild. Þetta og ýmislegt annað heyrðist á blaðamanna- fundi, sem Félag isl. iðnrekenda efndi til í gær, til að ræða stöðu iðnaðarins og þá sérstaklega með hliðsjón að aðild okkar að EFTA. A fundinum voru mættir stjórn- armeðlimir Félags ísl. iðnrek- enda, og kynntu þeir blaðamönn- um samþykkt, sem gerð var á fundi hjá félaginu 25. sept. s.l., en hún hefur verið send iðnaðar- ráöuneytinu. Er i þessari sam- þykkt harðlega deilt á stjórnvöld, fyrir gengishækkanir þær, sem orðið hafa undanfarið á islenzku krónunni. Telur stjórn félagsins aö i þeim felist varhugavert til- litsleysi við hagsmuni iðnaðarins, enda i mótsögn við yfirlýsta iðn- þróunarstefnu. Hér á eftir fer svo samþykktin, sem gerð var á fundi stjórnar Fé- lags islenzkra iðnrekenda, vegna áhrifa gengisbreytinga og þróun- ar verðlagsmála, og sem send hefur verið iðnaðarráðherra: „Með inngöngu tslands i EFTA hinn 1. mars 1970, var stigið ör- lagarikt skref fyrir islenzkan framleiðsluiðnað, þar sem ákveð- inn var tollfrjáls innflutningur allra iðnaðarvara.sem framleidd- ar eru i landinu. Jafnframt skyldi stefnt að mikilli eflingu islenzks framleiðsluiðnaðar til að standast aukna samkeppni á heimamark- aði og til að ná fótfestu á erlend- um mörkuðum. Af þessu leiðir að breytingar á gengi islenzku krón- unnar geta haft úrslitaáhrif á af- komu framleiðsluiðnaðarins. Þrátt fyrir þessa staðreynd hefur gengi krónunnar nú verið hækkað tvivegis á undanförnum mánuð- um. Lýsir stjórn F.t.I. vanþóknun á að til aðgerða þessara var gripið án þess að nokkurt tillit væri tekið til hagsmuna framleiðsluiðnaðar- ins. Augljóst mátti þó vera að staða framleiðsluiðnaðarins var ekki slik, að hann gæti tekið á sig afleiðingar þessara aðgerða. Tel- ur sjórnin að i þeim felist var- hugavert tillitsleysi við hagsmuni iðnaðarins enda i mótsögn við yf- irlýsta iðnþróunarstefnu. Sér- stökum erfiðleikum hafa þessar aðgerðir valdið þeim fyrirtækj- um, sem selja verulegan hluta framleiðslu sinnar á erlendum markaði. Lausn á þeim vanda, er fram-. leiðsluiðnaðurinn á nú við að glima vegna óhagstæðrar verð- lagsþróunar hvað hann snertir, felst ekki i nýrri gengisfellingu. Gengisfelling, ein sér án hliðar- ráðstafana a.m.k., hefði þær af- leiöingar, að hinar auknu tekjur sjávarútvegs ykju á verðbólgu. Leita verður að varanlegri lausn til þess að hindra að timabundnar sveiflur i sjávarútvegi valdi jafn- vægisleysi i efnahagslifinu og ráði þar með afkomu annarra at- vinnuvega. Jafnvægi i efnahags- málum er skilyrði heilbrigðrar iðnþróunar. Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðar- ins var ætlað þetta hlutverk, þeg- ar hann tók til starfa á árinu 1969. Hins vegar er ljóst, að sjóðnum er ekki nema að takmörkuðu leyti stýrt út frá þvi jöfnunarsjónar- miði, sem lögum samkvæmt er hlutverk hans. Ekki hefði veriö nauðsynlegt að gripa til undan- farinna gengisbrey tinga, ef sjóðnum hefði verið beitt af nægi- legum styrk til jöfnunar. Gengishækkanir og verðbólga hafa nú mjög þrengt hag iðnaðar- ins. Þegar hefur verið nefnt þýð- ingarmikið grundvallaratriði i efnahagsmálum en að fleiri atrið- um þarf að huga, sem ekki er vik- ið að i þessari samþykkt. Til þess að skapa raunhæf skil- yrði til iðnþróunar i landinu er að auki nauðsynlegt að eftirfarandi verði framkvæmt tafarlaust: 1. Að fella niður tolla af fram- leiðslutækjum og efnivörum framleiðsluiðnaðarins til að skapa framleiðsluiðnaðinum nauðsynlegt svigrúm til upp- byggingar, áður en tollvernd er að fullu brott fallin. 2. Að fella niður eða, endurgreiða söluskátt af framleiðslutækjum og efnivörum framleiðsluiðn- aðarins, svo sem gert er i öllum helztu viðskiptalöndum okkar. 3. Að létta launaskatti af fram- leiðsiuiðnaðinum til samræmis við sjávarútveg og landbúnað. 4. Að lækka raforkuverð til iðnað- ar til jafns við raforkuverð i helztu samkeppnislöndum okk- ar og láta þannig islenzkan framleiðsluiðnað njóta hag- kvæmra virkjunarskilyrða hér á landi. 5. Að endurgreiða iðnfyrirtækjum gengistap við gengishækkanir til samræmis við upptöku geng- ishagnaðar við gengislækkan- ir”. —hs- Heilsuhælið í Skjaldarvík: Bygging Stjórn Félags islenzkra iðnrekenda talið frá hægri: Gunnar J. Friðriksson, formaður, Davið Tharsteinsson.Ilaukur Eggcrtsson, Kristinn Guð- jónsson, Björn Guðmundsson og Ólafur Sigurðsson, blaöafulltrúi félagsins. — (Timamynd: Gunnar) að vori SB-Reykjavik — Náttúrulækn- ingafélagið á Akurevri inun að likindum gcta hafið byggingu heilsuhælis sins i Skjaldarvik að vori. Undanfarin ár hefur fjár til byggingarinnar verið aflað með ýmsu móti.og enn vantar mikið upp á. Það verður fyrsti áfangi heilsu- hælisins, sem bvrjað verður á i vor, tvær herbergjaálmur. Verð- ur þar rúm fyir 50 vistmenn, ásamt eldhúsi, borðstofu og ein- hverri endurhæfingaraðstöðu. Heitt vatn verður fengið frá Laugalandi á Þelamörk, þar sem Akureyrarbær á vatnsréttindin, en kalda vatnið er þegar kontið á staðinn. Teikning af heilsuhælinu er fullgerð, en gerð vinnuteikninga mun Ijúka um áramótin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.