Tíminn - 04.10.1973, Side 20

Tíminn - 04.10.1973, Side 20
20 TÍMINN Fimmtudagur 4. október 1973 — Jú, ekki er þvl aö neita. Ég get til dæmis nefnt það sem henti á Möðruvöllum, þeim fræga stað. Þar urðum við þess áþreifanlega varir, að oft má ekki miklu muna að leiði týnist, ef áletranir verða ólæsilegar, — ég tala nú ekki um, ef þær hafa engar verið. Hellan yfir Bjarna Thorarensen, amt- manni, reyndist vera á öðrum stað en talið hafði verið, en að vísu á svipuöum slóðum I garðin- um. Þegar við höfðum þvegið og þvegið, marga legsteina og plöt- ur, kom allt I einu ljós nafn Bjarna amtmanns, þar sem viö áttum þess ekki von. Meira að segja hinn ágæti fræðimaður, séra Þórhallur Höskuldsson sóknarprestur, varð alveg hissa. Hann hafði ekki búizt við amt- manninum undir hellunni’ þeirri arna. Svona getur þetta verið, jafnvel þótt ekki sé lengra um lið- ið en þarna er raun á, og þótt jafn þjóöfrægur maður og sjálfur Bjarni Thorarensen eigi hlut að máli. Viö vorum farnir að halda, að við myndum ekki finna legstað Bjarna, en þarna var hann. — Er þá mjög langt siðan áletrunin á plötu amtmannsins var ólæsileg? — Ég veit það ekki meö vissu, en eftir þvl sem ég kemst næst, er þaö ekki neitt ákaflega langur tlmi. Llklega svo sem fimmtiu til sextlu ár, eöa svo. Það getur ekki talizt langt, þegar þess er gætt, að tslendingar eru fámenn þjóð, en aftur á móti sérlega minnug á menn og atburði. Ung kona i Grimsnesi — Kirkjugarðar með vel merkt- um leiöum eru auðvitað ekki neinar smáræðis heimildir. — Hvortþaðnú er. Já, og meira en heimildir. Þessir hlutir vekja okkur til umhugsunar. Ég var I sumar að þvo upp marmarakross á Mosfelli I Grlmsnesi. Þá kom þar I ljós letur, sem sagði frá þvi, að þarna hefði verið jörðuð ung kona. Hún hafði dáið árið 1826 og verið kornung, eitthvað 26 eöa 27 ára, minnir mig. Þetta kom þann- ig við mig, að ég gat ekki hætt að hugsa um þessa löngu horfnu manneskju. Hvað hafði orðið henni aö aldurtila, svo ungri? Auðvitað vissi ég ekki neitt um það. Hverra manna? Jú, það stóð þarna, að hún hefði verið Stephensen, en Stephensenarnir voru ekki svo fáir á Islandi á þessum árum, að neinn teljandi stuðningur væri I að vita þetta. Ég varð að láta hugmyndaflugið nægja. En svona er þetta. Ef þarna hefði ekki verið annað en gróin þúfa, hefði ég I hæsta lagi rekið I hana tærnar og hnotið við, án allra hugbrigða, en um þessa ungu stúlku, sem ég vissi ekkert um, gat ég ekki hætt að hugsa það sem eftir var dagsins. Að hreinsa letur — Þú nefndir þvott. Upp úr hverju þvoið þið legsteina og minnismerki? — Það er talsvert misjafnt, eft- ir því hvaða efni er I minnismerk- inu. Við notum saltsýrublöndu á marmara og aðra sterkar berg- tegundir. Það verður að gera þetta mjög gætilega, bursta alveg jafnóðum það sem losnar og hafa alltaf tiltækt nægilega mikið af köldu vatni til þess að þvo salt- sýruna af, þvi að vissulega getur hún verið eitur i höndum þeirra, sem ekki kunna með hana að fara. Þótt mosagróður og skófir séu ekki há I loftinu, þá hafa þau þann eiginleika að sýna lit, þann- ig að eftir hæfilega langan tíma er öll hellan orðin jafnlit, þótt gróðurinn á henni sýnist ekki Hirðan innan garðs er óneitan- lega að lagast, en sú þróun er allt- of hæg. Það eru sóknarnefndir, sem eiga að sjá um þá hluti, jafn- hliða öðru safnaðarstarfi. Ég hef oft verið að ala á þvi, að það þurfi að ráða sérstaka umferðarmenn, til þess að fara á milli prófasts- dæma og hriðá garðana. Þeim yrði vitanlega að greiða laun, en það eru mörg sveitarfélög og sjávarþorp úti á landsbyggðinni, sem vel hafa efni á þvi að kaupa sér slika aðstoð við að halda görðunum I viðunandi horfi. ég það, þegar byggðir eru varan- legir veggir úr islenzkum berg- tegundum. Þá þarf aldrei að mála, þeir batna fremur en versna I útliti með árunum og við- haldið verður ekkert. En að vlsu eru þeir dýrir I byrjun. VerjUm fengnu fé skynsamlega — Er eitthvert fé ætlað sérstak- lega til þessara hluta? — Já, vissulega er það svo. Og sumir kirkjugarðar á Islandi eru ágætlega efnaðir. I kirkjugarðs- lögum frá 1963, er sóknarnefnd- um viðast hvar á landinu veitt til- efni til þess að lagfæra sina kirkjugarða mjög þokkalega. En þvl miður var það fé, sem sóknar- nefndirnar fengu, viða lagt á vöxtu — og það er ekki skynsam- leg meðferð á peningum I allri þeirri verðbólgu, sem við höfum átt við að búa, nú um margra ára skeið. Það er alltaf dýrara að gera það næsta ár, sem við hefð- um getað gert á þessu ári. Það á að nýta peningana til fram- kvæmda árlega, en ekki geyma þá ár frá ári. Fólkið, sem greitt hefur þessa peninga I formi skatta, á heimtingu á þvl, að þeir séu notaðir til skynsamlegra hluta, en ekki látnir rýrna að verðgildi frá ári til árs. Hér eru þeir félagar, Marteinn og Aðalsteinn að virða fyrir sér einar tröppurnar, ssm liggja upp að þjóðargrafreitnum á Þingvöllum. Hellurnar i tröppunum eru teknar þarna I nágrenninu, sagaðar og lagðar af Martcini Davfðssyni. fyrirferöarmikill. Það er alveg furðulegt, hversu mjög hellur og legstejnar skýrast við það eitt að vera þvegin. — Þegar nú hellan hefur verið þvegin, farið þið þá með meitli niður I letriö? — Nei« yfirleitt er það alls ekki gert. I fyrsta lagi er marmarinn svo harður, að það er illmögulegt, I ööru lagi yrði sllkt svo seinlegt, aö það væri naumast fram- kvæmanlegt, fjárhagsins vegna, og I þriðja lagi er þess sjaldnast þörf. Þvotturinn nægir. Hitt er aftur annað mál, að oft eru hellur sprungnar, brotnar eða flisað úr þeim. Þær eru þá llmdar saman með mikilli nákvæmni, um leið og þvotturinn fer fram. Eins eru minnismerki rétt við, ef þau hall- ast, legsteinar settir á stall, svo aö þeir sökkvi ekki strax I jörð. Gamlar og fornar legstaða- girðingar úr steypujárni eru hreinsaðar og málaðar I dökkum lit. Sama er að segja um gamla krossa úr potti eða járnf, þeir fá einnig slna aðhlynningu, enda eru þeir oft fallegir og setja sinn svip á garðinn. Ég kom einu sinni inn I venju- legan, opinn hvildargarð I Svl- þjóð. Ég fann þar bekk og settist á hann. Ég hafði ekki lengi horft I kringum mig, þegar ég rakst á gamla legstaðargirðingu, sem eins vel hefði getað verið I Flóan- um eða einhverri annarri sveit á íslandi. Hún var ævagömul, enda bera Svíar mikla virðingu fyrir slnum gömlu legstaðagirðingum. Nýjar framkvæmdir ættu aldrei að vera á kostnað sögu- legra heimilda — Nú vitum við þaö báðir, Aðal- steinn, aö kirkjugarðar tapa frið- helgi sinni eftir ákveðinn tlma. Finnst þér rétt að byggja til dæmis á þeim stórhýsi, eins og ekki er dæmalaust á Islandi? — Þaö er nokkuð algengt, hér eins og viðar, aö þegar nútlminn þarfnasteinhverra framkvæmda, er ekki verið að spyrja um for- tlðina. En með öllum þess háttar aðgeröum er verið að spilla sögu- legum verðmætum. Það er — ef mér leyfist að komast svo að orði — verið að taka fram fyrir hendurnar á sjálfri sögunni, og það er sannarlega ekki góður vitnisburður um menningar- ástand þeirrar kynslóðar, sem svo hagar sér. Kirkjugarður get- ur verið heimildin um mannllf til- tekins svæðis, — jafnvel eina beina sönnunin fyrir því, að þar hafi verið mannabyggð á ein- hverju vissu timabili. Hvers vegna mætti ekki sú heimild geymast? Hvaða ástæða er til þess aö afmá gamla kirkjugarða, jafnvel þótt þeir séu margra alda? Það er meira en nóg land- rými á tslandi enn, og verður það áreiðanlega I næstu framtið. Sums staðar er kvartað yfir þvi, að erfitt sé að hirða kirkju- garða, þar sem leiði eru þétt og dálltiö há — þetta er auðvitað feikilega óslétt land. Það er sagt, að einu megi gilda, þótt sléttað sé yfir leiði, sem ekki eru merkt og fáir þekkja. Nú, sjálfur hef ég slegið kirkjugarða, sem þóttu ill- slægir sökum þýfis, og ég gat satt að segja ekki fundið, að þaö væri nein þrekraun. Þetta er vitanlega seinlegt verk, en sjaldnast er þarna um stór svæði að ræða, og ánægjan yfir því að vita sig vera að snyrta hinzta hvílustað geng- inna kynslóða gerir miklu meira en að vega upp þau óþægindi, sem þvl fylgja að vinna slikt verk. En það er með þetta eins og allt annað: Það verður að vera I fólkinu sjálfu. Ég get ekki útveg- að mönnum þennan áhuga, ef þeir eiga hann ekki I eigin brjósti. Hitt getég frætt menn um, að frændur okkar á Noröurlöndum eru að minnsta kosti hundrað árum á undan okkur hvað snertir um- gengni og hirðu á kirkjugörðum. — Finnst þér okkur samt ekki hafa farið fram að þessu leyti á siöari árum? — Jú, þaðer staðreynd. Ég verð llka að segja, að okkur fari fram, þvi að það er nú einmitt ég, sem á að sjá um það. Jú, að allri gamansemi slepptri, þá verður þvi ekki neitað, að þessum mál- um hefur þokað til réttrar áttar á undan förnum árum, þótt hinu verði ekki neitað, að enn eigum við margt ólært. Það, sem liklega er bezt um þróun undanfarinna ára er það, að stórframkvæmdum hefur fjölgað. Stórframkvæmdir kalla — En svo að við snúum okkur aftur að verklegu hliðinni? Hvaða umbúnað telur þú heppilegastan um leiði? — I þeim hinum sömu lögum, sem ég minntist á áðan, er það bannað að steypa I kringum leiði, ■ eða að setja þar girðingar af neinu tagi. Þetta var talið tor- velda alla hirðu, eins og llka hefur orðið raunin á. Steinþrær I kring- um leiði eru mjög gjarnar á að safna I sig vatni og klaka á vetr- um. Þetta gerir legstaðinn dapur- legan og ljótan að sjá, auk þess sem vatnið vill oft grafa undan steypunni, svo að þróin skekkist og springur með timanum. Þetta er ekki heppilegur útbúnaður, og þvl verri, sem hann verður eldri. Slétt, vel hirt grasflöt er aftur á móti næstum alltaf falleg. Hún heldur sér, vetur, sumar, vor og haust og er alltaf snyrtileg, að minnsta kosti ef hún er I mátu- lega hallandi landi. Við, Is- lendingar, eigum nóg af fallegum lágplöntum, sem eru nærri þvi eins og skapaðar til þess að prýða legstaði. Við getum sannarlega veriö sjálfum okkur nógir með þá hluti. Útlendar plöntur geta verið fallegar og vaxið hátt upp, en fall- ið svo til jarðar I næstu stórrign- ingu. Okkar plöntur þekkja okkar veðráttu og hafa lært að standast hana, — meira aðsegja hver I sin- um landshluta. ,, ...Ég hugsa oft til þeirra....” — Nú ert þú, Aðalsteinn, sannarlega að vinna fyrir nútlm-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.